Víkurfréttir - 11.08.1988, Blaðsíða 18
\)iKun
18 Fimmtudagur 11. ágúst 1988
^Húsnæðisstofnun ríkisins
TÆKNIDEILD
Simi 696900
Útboð
Hundur
beit
barn
Stjórn verkamannabústaða Hafnahrepps,
Gullbringusýslu, óskar eftir tilboðum í
byggingu tveggja íbúða í einnar hæðar
parhúsi byggðu úr steinsteypu. Verk nr.
V.20.06 úr teikningasafni tæknideildar
Húsnæðisstofnunar ríkisins.
Brúttóflatarmál húss 194 m2.
Brúttórúmmál húss 695 m3.
Húsið verður byggt við götuna Djúpavog
7-9, Höfnum og skal skila fullfrágengnu,
sbr. útboðsgögn.
Afhending útboðsgagna er á skrifstofu
Hafnahrepps, Djúpavogi 1, Höfnum, og
hjá tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkis-
ins, frá fimmtudeginum 11. ágúst 1988
gegn kr. 10.000 - skilatryggingu.
Tilboðum skal skilað á sömu staði eigi síð-
ar en þriðjudaginn 23. ágúst 1988 kl. 11:00
og verða þau opnuð að viðstöddum bjóð-
endum.
F.h. stjórnar verkamannabústaða Hafna-
hrepps,
Tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins.
íþrótta- og
leikjaskóli
fyrir börn
Lögreglunni í Keflavík
barst síðasta laugardag til-
kynning þess efnis að hund-
ur hefði í tvígang bitið í
dreng í Njarðvík svo á hon-
unt sá. Er síðast fréttist var
beðið áverkavottorðs frá
lækni svo hægt væri að að-
hafast eitthvað í máli þessu.
Ha... ha... 35
María Ragnars-
dóttir, velkomin í
hópinn.
SJ. HB.
Nú standa yfir
íþrótta- og leikjanámskeið fyrir 6-12 ára, allan ágúst-
mánuð. Nóg pláss og hægt er að taka V2 mánuð.
Heilt námskeið kr. 1.200-
Hálft námskeið kr. 600-
Körfuboltaskóli
verður starfræktur 15.-26. ágúst fyrir börn á aldrinum
8-12 ára. Kennd verða öll helstu undirstöðuatriði í
körfuknattleik. Námskeiðið er haldið kl. 9-12 og þátt-
tökugjald er 600 kr.
Innritanir standa yfir frá kl. 9 til 16 alla virka daga
í íþróttahúsinu við Sunnubraut.
íþróttaráð Keflavíkur
Hluti þátttakenda í gönguferðinni á síðasta ári.
Messa í Kirkjuvogs-
kirkju og gönguferð
Á sunnudaginn kemur, 14.
ágúst, verður messað í Kirkju-
vogskirkju í Höfnum. Þar er
messað að jafnaði einu sinni í
mánuði árið um kring. Kirkju-
vogur er forn kirkjustaður og
er vitað að kirkja í Kirkjuvogi
var helguð Maríu guðsmóður í
kaþólskum sið. Þar hafa vænt-
anlega staðið mörg guðshús í
gegnum aldirnar en í illviðri
miklu í ársbyrjun 1799
skemmdist þáverandi kirkju-
hús mikið. Ný kirkja var síðan
byggð 1861 og stendur enn.
Bygginguna kostaði Vilhjálm-
ur Kristinn Hákonarson sem
fæddur var í Kirkjuvogi 1812.
Sagt er að kirkjan hafi kostað
1800 ríkisdali og altaristaflan
134 ríkisdali. Hann bætti um
betur síðar og lét byggja for-
dyri sem kostaði 605 ríkisdali
og 80 skildinga. Þetta fagra
guðshús var endurnýjað fyrir
nokkrum árum í samráði við
þjóðminjavörð.
Um líkt leyti á síðasta ári var
farið í gönguferð eftir messu í
Kirkjuvogskirkju og þá geng-
inn svonefndur prestastígur
sem liggur úr Höfnum, nánar
tiltekið frá Kalmanstjörn
(Junkaragerði) og í Staðar-
hverfi í Grindavík, en þar sátu
prestar forðum er þjónuðu
Höfnum. Þessi ganga tókst vel
og nú er í ráði að fara aðra ferð
og ganga fyrir Ósabotna, um
Básenda, i Stafnes og enda við
Hvalsneskirkju. Fólk er því
hvatt til að koma ferðbúið til
kirkju, í góðum fatnaði, með
nesti og góða skó. Lagt verður
af stað strax að lokinni mess-
unni og gengið eftir leiðsögn
kunnugs heimamanns, As-
björns Eggertssonar, hrepps-
stjóra. Ymislegt fróðlegt er að
sjá á þessari leið og verður án
efa gaman að ganga hana.
Gönguferðir eru góðar fyrir
sál og líkama. Maður kynnist
landinu sínu, samferðamönn-
um og sjálfum sérá nýjan hátt.
Gönguferðir geta líka verið
einskonar guðsþjónustur, því
Guð vitjar okkar í náttúrunni
og birtir kraft sinn og vísdóm.
Margir verða því fyrirhughrif-
um úti í náttúrunni og skynja
þannig nálægð Guðs. En næst-
ur er Guð okkur í kirkjunni
þar sem orð hans heyrist og við
fáum að kynnast honum sem
persónu í Jesú Kristi. Þess
vegna hvet ég fólk, bæði heim-
amenn og burtflutta Hafna-
menn svo og alla aðra sem
áhuga hafa, að slást í hópinn,
koma til messu og taka þátt í
göngunni.
Hafnamaðurinn séra Jón
Thorarensen talar m.a. um
trúrækni í bók sinni, Litla
skinnið, og segir:,,.... á þessari
blómaöld stórútgerðarHafna-
manna (19. öldinni) kom það
aldrei fyrir á helgum degi, eða
hátíðum, að þeir reru til fiskj-
ar. I þau 40 ár, sem Vilhjálmur
Hákonarson var formaður,
var það aðeins einu sinni, að
hann fór á sjó á sunnudegi.
Það var til þess að „lóðsa“
danskt kaupskip inn á Þórs-
höfn. Hins vegar gættu þessir
yfirmenn þess stranglega, að
ekki félli úr einn einasti dagur
alla föstuna, svo að ekki væri
lesinn húslesturinn og Passíu-
sálmarnir sungnir, og varð
hver maður að hlýða á lestur
og söng. Sama mátti segja þeg-
ar messudagar voru. Þá gættu
formenn þess, að allir sjó-
menn, bæði heimamenn ogað-
komumenn, færu í kirkju og
hlýddu heigum tíðum. Kirkju-
vogskirkja var þá svo troðfull
á messudögum á vertíðum, að
sæti rúmuðu ekki alla kirkju-
gesti.“
Vonandi verða kirkjubekkir
jafn þéttsetnir n.k. sunnudag
og forðum og gönguferðin
fjölmenn. Hittumst hress!
Sr. Örn Bárður Jónsson,
sóknarprestur.
TILBOÐ
Óska eftir tilboði í viðgerðir og smíð-
ar, svo sem skipti á þakrennum og
smíðum á anddyri, Hjallavegi 5.
Nánari uppl. í síma 14354 á kvöldin og
um helgar (Bergþór).