Víkurfréttir - 16.02.1989, Side 15
\)iKun
juMi
Framkvæmdir við innsigiinguna og
höfnina í Sandgerði:
„Lífsnauðsyn-
legar fyrir
höfnina og
byggðarlagið“
- segir Sigurður Bjarnason, hafnarstjóri
Fimmtudagur 16. febrúar 1989 15
„Höfnin sjálf er orðin ágæt til þess að liggja í henni, en framundan er stórt verkefni við dýpkun á inn-
siglingunni". Ljðstn;: hbb.
Ein þeirra innsiglinga, sem taldar eru erfiðar ókunnugum, er inn-
siglingin í Sandgerðishöfn. Hún getur reyndar einnig verið hættu-
leg þaulvönum skipstjórum, þegar vond veður verða, vegna þess
hversu grunn og mjó innsiglingarrennan er. A undanförnum árum
og áratug hafa verið unnar miklar framkvæmdir í og við höfnina og
á næstu árum eru fyrirhugaðar framkvæmdir við innsiglinguna fyr-
ir tugi eða hundruð milljóna króna. Víkurfréttir tóku hafnarstjór-
ann, Sigurð Bjarnason, tali nýverið og spurðu hann út í þær fram-
kvæmdir sem framundan eru og annað tengt höfninni.
„Það hafa átt sér stað hér
miklar framkvæmdir á undan-
förnum árum og áratug.
Höfnin sjálf er orðin ágæt til
þess að liggja í henni, en nú er
stórt verkefni framundan í
sambandi við dýpkun á inn-
siglingunni."
-Nú hefur eingöngu verið
um að ræða könnunarverkefni
á dýpkun innsiglingarinnar.
Hvernig hefur tekist til?
„Könnunarverkefnið hefur
tekist vel og við erum búnir að
sýna fram á að það sé fram-
kvæmanlegt að dýpka innsigl-
inguna. Samkvæmt könnun
hjá Hafnamálastofnun, þá eru
þær framkvæmdir sem eftir
eru, mun ódýrari en í upphafi
var talið.
Stefnt er að því að innsigl-
ingarrennan verði 40-60 metra
breið og dýpið í henni fimm
metrar að innanverðu og fimm
og hálfur að utanverðu á með-
alstórstraumsfjöru. Aukið
dýpi í utanverðri innsigling-
unni er nokkurs konar örygg-
isatriði, þar sem meiri hreyfing
er á sjó.“
-Hvað er gert ráð fyrir að
dýpkun innsiglingarinnar
muni kosta?
„Það er þegar búið að vinna
könnunarframkvæmdir fyrir
30 milljónir króna, sem er 90%
ríkisframlag og 10% frá
Miðneshreppi. Það er búið að
setja upp tvö dæmi varðandi
áframhaldandi framkvæmdir
við dýpkunina.
Miðað við að innsiglingin sé
dýpkuð á 3/2 sumri, þá er
heildarkostnaður við verkið
224 milljónir, ef ef tvö sumur
eru tekin í framkvæmdirnar,
þá munu þær kosta 190 tnillj.,
samkv. verðlagi á haustdögum
1988.
Munurinn liggur í byrjunar-
framkvæmdum, sem eru allt-
af dýrar og það er því til mikils
að vinna að þetta verði fram-
kvæmt í sem fæstum skipt-
um.“
-Hvenær verður fram-
kvæmdum haldið áfram?
„Við fórum á fund þing-
manna síðasta föstudag, þar
sem við kynntum fyrir þeim
verkið og fengum jákvæð við-
brögð. Við fengunr Ijárveit-
ingu al' fjárlögum 1989, 3.8
milljónir, til þess að gera upp
síðasta ár og vinna að útboði
fyrir næsta áfanga.
Ovissuþættirnir við þetta
dýpkunarverkefni voru mikl-
ir, það vissi enginn hvernig
gengi að hreinsa til í innsigl-
ingunni. Nú er búið að sann-
reyna að þetta sé hægt og þá er
fyrst hægt aðfara að vinna í til-
Dömukvöld
H.R.K.
verður á Glóðinni n.k. föstudag, 17. febrú-
ar ’89 kl. 19.30. Matur, skemmtiatriði o.fl.
Almennur dansleikur hefst kl. 23.30 og
stendur til kl. 03.00.
Nánari upplýsingar veitir Dalla í síma
12170 og 11531.
Handknattleiksráð ÍBK
boðsgerð. Við vildum fá
ákveðið svar frá þingmönnum,
hvort hægt væri að ganga í
þetta á sem skemmstum tíma.
Það þýðir ekkert að smá moka
fjármagni í þessa framkvæmd,
því þá eykst kostnaðurinn til
muna.“
-Hvenær verða þá raunveru-
legar framkvæmdir hafnar og
hvernig verður verkið fjár-
magnað?
„Það er hugmyndin að hefja
framkvæmdir við dýpkunina
sumarið 1990. Með fjármögn-
un á verkinu, þá eru uppi hug-
myndir um að taka innlent eða
erlent lán, sem greiðist á átta
til tíu árum.“
-Nú hefur erlent verktaka-
fyrirtæki sýnt þessu verkefni
áhuga?
„Það kom til mín fyrirspurn
frá stóru erlendu verktakafyr-
irtæki, þar sem þeir töldu sig
geta framkvæmt þetta á einu
sumri og fjármagnað verkefn-
ið að hluta. En þetta er allt á
byrjunarstigi.“
-Nú varð óhapp, þegar unn-
ið var að flutningi dýpkunar-
prammans til Sandgerðis og
hann sökk, þannig að miklar
tafir urðu á verkinu. Varð
Sandgerðishöfn ekki af mikl-
um tekjum vegna þessa?
„Það er áætlað að tekjutapið
’88 vegna þessara fram-
kvæmda hafi verið 15-20%,
sem er 2 til 2Zi milljón króna.
Það verður engin breyting á
því hvað við getum tekið inn
stór skip fyrr en framkvæmd-
irnar eru búnar. Tekjur hafn-
arinnar eiga eftir að aukast
með tilkomu þess að fleiri
fiskiskip komast inn til hafn-
arinnar. Þá getum við einnig
tekið á móti stærri flutninga-
skipum, en einu flutningaskip-
in, sem hingað koma, eru lítil
og taka lýsi og mjöl.
Annar togarinn, sem er
skráður hér í Sandgerði, komst
ekki inn til hafnarinnar og
Sjávarborgin, eina loðnuskip-
ið sem hér er skráð, kemst ein-
göngu inn fjóra daga í mánuði.
Skipastóllinn er alltaf að
stækka og skipin rista dýpra,
þannig að þetta er lífsnauðsyn-
legt fyrir höfnina og byggðar-
lagið, að þetta sé klárað sem
fyrst,“ sagði Sigurður Bjarna-
son, hafnarstjóri í Sandgerði,
að lokum.
Aðalfundur
Hestamanna-
félagsins Mána
verður haldinn á Glóðinni, Keflavík, sunnu-
daginn 26. febrúar kl. 14.
Venjuleg aðalfundarstörf
Önnur mál
Stjórnin
Stangaveiðifélag
Keflavíkur
OPIÐ HUS
Opið hús verður n.k. miðvikudag 22. feb.
kl. 20.30. Þröstur Elliðason verður gestur
fundarins.
Mætið vel til spjalls um komandi sumar-
veiði.
Nefndin
Aðalfundur
Aðalfundur FR-deildar 2 verður haldinn
laugardaginn 25. febrúar kl. 14 í húsi Iðn-
sveinafélagsins, Tjarnargötu 7, Keflavík.
DAGSKRÁ:
1. Skýrsla formanns. - 2. Venjuleg að-
alfundarstörf. - 3. Framtíð FR-deild-
ar 2. - 4. Önnur mál.
Fulltrúar frá Landsstjórn mæta og svara
fyrirspurnum. Félagar, fjölmennið og sýn-
ið samstöðu.
Stjórnin