Víkurfréttir - 30.03.1989, Side 16
\)iKur<
16 Fimmtudagur 30. mars 1989
4*aat
Átján ára langri bið Keflvíkinga lauk á miðvikudag fyrir páska er
þeir tryggðu sér íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik með sigri á
KR í þriðja úrslitaleik liðanna í Keflavik. IBK lék eins og meistur-
um sæmdi í þriðja leiknum og sigraði verðskuldað með 15 stiga
mun, 89:72, eftir að hafa leitt með slíkum mun í leikhléi, 45:30.
Liðin stóðu jafnt að vígi eftir
sinn hvorn sigurleikinn. Um
13-1400 áhorfendur, sem er
mesti fjöldi sem komið hefur á
íþróttaleik í íþróttahúsi Kefla-
víkur, voru að sjálfsögðu lang
flestir á bandi heimamanna og
stuðningur þeirra gaf Keflvík-
ingum byr undir báða vængi
strax í byrjun leiksins. Þeir
nýttu sér stuðninginn og höfðu
yfirburði í fyrri hálfleik og 15
stig í pokahorninu fyrir þann
seinni.
Keflvíkingar héldu upp-
teknum hætti fyrstu 2 mínút-
urnar í seinni hálfleik og náðu
mest 18 stiga mun, þegar
hrikta tók í „IBK-maskín-
unni“. KR-ingar sýndu klærn-
ar og með harðfylgi tókst þeim
að minnka muninn í eitt stig en
þá sögðu Keflvíkingar hingað
og ekki lengra. Magnús Guð-
finnsson tók þá öll völd í vörn
ÍBK, reif hvert frákastið af
öðru, sem urðu 14 talsins áður
en yfir lauk, boltinn barst til
Guðjóns Skúlasonar, sem
skoraði 6 stig í röð, og Nökkvi
Jónsson, nýliðinn ungi, hélt
Keflvíkingum við efnið með
frábærum leikogsýndimikinn
„karakter“ þegar mest á reið.
Keflvíkingar rifu sig þannig
upp úr lægðinni og það var vel
við hæfi að Axel Nikulásson
skoraði síðustu tvö stig þessa
leiks, því hann var jafnbesti
maður liðsins í þessum frá-
bæra leik, þó svo að það sé erf-
itt að segja að einn maður hafi
skarað framúr í hreint frábæru
liði Keílvíkinga, sem tryggðu
„Loksins tókst okkur það, Nonni", g*ti Axel Nikulásson verið að liugsa,
Nökkvi .lónsson „tolleraður" eftir
að úrslit urðu Ijós.
•I
Sagt eftir leikinn:
Sigurður Valgeirsson:
„Langri bið er lokið. Þetta
er ógleymanleg stund. Strák-
arnir sýndu frábæran kar-
akter. Þeir gáfust ekki upp
þegar allir héldu að þeir væru
að gera það. Það var gaman
að sjá til Nökkva. Þessi korn-
ungi strákur sýndi það sem
maður vildi sjá, þegar allt
stefndi í óefni.“
Jón Kr. Gíslason, þjálfari
ÍBK:
„Þetta erólýsanlegtilfinn-
ing. Við komum til leiks með
rétt hugarfar og héldum
haus þrátt fyrir smá hiksta.
Liðsheildin vann þennan sig-
ur. Við lékum vel í úrslita-
keppninni og ég var strax
sannfærður um að við mynd-
um vinna titilinn. Maður er
búinn að bíða lengi eftir þess-
ari stundu og loks þegar hún
kemur get ég hreinlega ekki
lýst því hvernig það er að
inn.
standa loks uppi sem Is-
landsmeistari.“
Axel Nikulásson:
„Þegar við Nonni byrjuð-
um saman fyrir 15 árum að
æfa körfuboíta sögðumst við
strax ætla að verða Islands-
meistarar. Við höfum stund-
um rifjað þetta upp á undan-
förnum árum en alltaf sagt
við sjálfa okkur: Við hættum
ekki fyrr en okkur tekst
þetta. Eg er þó ekki að segja
að við séum hættir, því von-
andi er þetta bara byrjun á
fleiri titlum. Við stóðum
okkur vel í kvöld og áttum
sigurinn skilið. En mikil
ósköp er yndislegt að vinna
loksins stóra titilinn.“
Magnús Guðfinnsson:
„Við héldum haus og gáf-
umst ekki upp þó á móti
blési um stund. KR-ingar
voru búnir þegar þeir höfðu
minnkað muninn í eitt stig.
Við erum með mestu breidd-
ina, lOmannafrábæranhóp,
Ljósmyndir: hbb. og mad.
og það var það sem kom
okkur á leiðarenda. Mórall-
inn er frábær og eftir þjálf-
araskiptin styrktist andinn í
liðinu enn frekar.“
Nökkvi Jónsson:
„Við gerðum rétta hluti
þegar KR-ingar fóru að
draga á okkur, lékum skyn-
samlega og kláruðum dæm-
ið. Eg var aldrei í vafa, var
alltaf viss að við myndum
sigra. Eg var aðeins spennt-
ur fyrir leikinn en það hvarf
þegar ég kom inná og ég fékk
auðveld færi sem ég gat ekki
klikkað á.“
Gunnar Jóhannsson, for-
maður KRD ÍBK:
„Þetta er vonandi aðeins
byrjunin á nýrri gullöld Kefl-
víkinga, en nú í körfubolta.
Maður er búinn að eyða
miklum tíma og orku með
þessum strákum í vetur. Að
fá Islandsmeistaratitilinn er
ólýsanlegt og stórkostlegt.“
sér íslandsmeistaratitilinn í
fyrsta skipti í 18 ár við gífur-
legan fögnuð stuðningsmanna
liðsins.
Það voru fáir sem spáðu
IBK-Iiðinu titlinum fyrr í vet-
ur þegar þjálfari liðsins var lát-
inn fara. En Jón Kr., sem tók
við iiðinu sem þjálfari og lék
einnig með, hélt utan um hóp-
inn, lék ekki aðeins eins og
herforingi inni á vellinum
heldur þjappaði honum sam-
an utan vallarins. Jón Kr.
kláraði dærnið.
Stcmningin ú úhorrciid:i|iöMumim var ólvsanlcg.
vatnsbcrum.
18 ára bið Keflvíkinga lokið:
Fyrsti titill ÍBK
að veruleika
• Sennilega er árangur ÍBK í
vetur sá besti sem íslenskt
íþróttalið í boltaíþrótt hefur
náð á einu tímabili fyrr og
síðar. ÍBK er þegar búið að
tryggja sér sex íslandsmeist-
aratitla og einn bikarmeist-
aratitil og von er á fleirum.
Hápunkturinn er auðvitað
,,tvennan“, þ.e. sigur í meist-
araflokki karla og kvenna...
• „Maður á ekki orð. Hvað
er hægt að gera fyrir þá“
sagði Guðflnnur Sigurvins-
son, bæjarstjóri Keflavíkur
eftir leikinn við KR. Guð-
finnur afhenti liðinu blóm-
vönd strax eftir leikinn en
ÍBK fær eflaust eitthvað
meira frá bænum sínum sem
hefur fengið stórkostlega af-
mælisgjöf á 40 ára afmælinu
frá ÍBK...
• Þorsteinn Bjarnason, liðs-
stjóri Keflvíkinga, lék með
ÍBK þegar liðið sendi fyrst
meistaraflokk í keppni í ís-
landsmóti. Það var árið 1974
en þrjú ár á undan lék ÍK,
íþróttafélag Keflavíkur, í
mótinu. Steini fylgdi liðinu
sem liðsstjóri í gegnum úr-
slitakeppnina og kom
reynsla hans að góðum not-
um. En hann sigraði tvöfalt á
miðvikudagskvöldið, því þá
átti hann einnig 32ja ára af-
mæli...
• Þriðja árið í röð hefur það
gerst að leikmaður sem jafn-
framt- er þjálfari stýrir liði
sínu til sigurs á Islandsmóti
í körfuknattleik. Jón Kr.
Gíslason endurtók leikinn
eftir þeim Pálmari Sigurðs-
syni og Vali Ingimundar-
syni.
• Guðjón Skúlason skoraði
flest stig fypir ÍBK í leikjun-
um þremur gegn KR eða alls
66. Axel Nikulásson kom
næstur með 50, því næst Jón
Kr. með 40 og fjórði varð
enginn annar en Nökkvi
Jónsson með 34 stig.