Víkurfréttir - 30.03.1989, Blaðsíða 17
mun
jiUtít
Fimmtudagur 30. mars 1989 17
Körfubolti:
Verja UMFN og ÍBK
bikarmeistaratitlana?
Njarðvíkingar leika í
kvöld til úrslita í bikar-
keppni Körfuknattleikssam-
bandsins gegn ÍR og kvenna-
lið ÍBK leikur sömuleiðis við
ÍR-inga, á undan karlaleikn-
um. Fyrri leikurinn hefst kl.
19 en sá seinni kl. 20.30.
Njarðvíkingar em í bikar-
úrslitunum fjórða árið í röð
og hafa sigrað í tvö síðustu
skipti og geta því unnið bik-
arinn þriðja árið í röð. 1 fyrra
lögðu þeir KR í úrslitum í
eftirminnilegum úrslitaleik,
104:103, þar sem þjálfari
þeirra, Valur Ingimundar-
son, fór á kostum, skoraði 45
stig og þar af sigurkörfuna
með þriggja stiga skoti.
Kvennalið ÍBK vann bik-
arinn í fyrsta skipti í fyrra er
liðið vann Hauka 76:60 í
úrslitunum. ÍR-stúlkurnar
hafa verið þeirra helstu mót-
herjar í vetur og því má bú-
ast við spennandi leik.
Við hvetjum Suðurnesja-
menn til að fjölmenna á leik-
ina í kvöld og styðja við bak-
ið á okkar liðum og tryggja
tvo titla til Suðurnesja til við-
bótar.
Ókeypis sætaferðir með Steindóri
Steindór Sigurðsson verð-
ur með sætaferðir á úrslita-
leikina og verður farið frá
Grunnskóla Njarðvíkur kl.
18:30. Rútuferðirnar verða
ókeypis og að öllum líkind-
um þær síðustu sem Stein-
dór fer í eigin nafni.
Á mótinu voru kjörnir bestu varnarmennirnir og þá titla hlutu þeir
Hjörtur Fjeldsted (t.v.); en hann er í 6. flokki IBK, og Gunnar Orn
Ástráðsson í 7. flokki IBK.
Sigurliðin ásamt þjálfurunum, þeim Kristni Óskarssyni og Gunnari Magnúsi Jónssyni. Einnig eru á
myndinni eigendur Grágásar og mótshaldarar, þeir Stefán Jónsson (t.v.) og Sigurjón R. Vikarsson
lengst til hægri Ljósm.: hbb
Grágásarmótið í innanhússknattspyrnu:
ÍBK vann ! báðum flokkum
Lið Keflvíkinga fóru með
sigur af hólmi í báðum flokk-
um í Grágásarmótinu í innan-
hússknattspyrnu, sem haldið
var í íþróttahúsinu í Keflavík
um páskana.
Sex knattspyrnufélög sendu
þátttakendur til mótsins, IBK
a og b, Njarðvík, Víðir, Reyn-
ir, UBK a og b og Haukar a og
b. Leikar fóru þannig, eins og
áðursegir, að IBK fórmeðsig-
ur af hólmi eftir að hafa sigrað
í flestum leikjum sínum.
Úrslit leikja í mótinu fóru
þannig:
6. FLOKKUR
ÍBK 1 - Víðir 0-0
UBK 1 - ÍK 0-3
ÍBK 2 - Njarðvik 2-0
UBK 2 - Reynir 2-0
UBK 1 - Njarðvík 0-0
Reynir - ÍBK 1 0-0
IJBK 2 - ÍK 1-0
Víðir - ÍBK 2 0-0
ÍBK 1 - UBK 1 0-2
Víðir - ÍK 0-1
ÍBK2-UBK2 0-1
Lögreglumaðurinn áfram
Björn
Þorvaldur
Björn Bjarnason gerði
sér lítið fyrir og sló Sigurð
Magnússon út, sem hafði
verið í 5 vikur í röð í get-
raunaleiknu. Björn fékk 6
rétta en Sigurður aðeins 4.
Björn hefur skorað á Þor-
vald Ólafsson, rafvirkja í
Keflavík. Þorvaldur á tvö
uppáhaldslið í ensku deild-
inni, „ég hef haldið með
Norwich frá því ég var polli
en ég hef einnig miklar
taugar til Tottenham.
Annars hef ég lítið tippað
að undanförnu. Eg reyni
alltaf að gera þetta svo
gáfulegt en það gefur víst
sjaldnast besta árangurinn
í getraunum" sagði Þor-
valdur Ólafsson.
Baráttan um Wembley-
ferð Samvinnuferða-Land-
sýnar harðnar enn meira.
Júlíus Baldvinsson er með
7 skipti, Sigurður Magnús-
son 5, Jón Halldórsson 4
og Gunnar Magnússon 3
skipti. Nú fer að styttast í
úrslitakeppnina en hún
hefst um miðjan apríl...
B. Þ.
Aston Villa-Luton
Charlton-Middlesbro
Derby-Coventry
Everton-Q.P.R.
Norwich-Liverpool
Sheff.Wed.-Millwall
Southampton-Newcastle
Tottenham-West Ham
Wimbledon-Nott. For.
Brighton-Man.City
Leeds-Bournemouth
Swindon-Blackburn
Njarðvík - Reynir ........... 0-1
UBK 1 - Reynir .............. 0-2
Njarðvík - ÍBK 1 .......... 1-4
UBK 2 - Víðir .............. 0-2
ÍK - ÍBK 2 ................ 0-6
ÍK - ÍBK 1 2-0
Víðir - UBK 1 0-2
Reynir - ÍBK 2 0-0
Njarðvík - UBK 2 0-3
ÍBK 1 - UBK 1 3-1
Njarðvík - Reynir ........... 0-5
ÍBK2-UBK2 ................... 5-1
ÍK - Víðir .................. 1-2
7. FLOKKUR
IK - ÍBK a ...
Haukar b - Reynir
Haukar a - ÍBK b
ÍBK a - Haukar b
Reynir - Haukar a
ÍBKb-ÍK ......
Haukar b - Haukar a
Reynir - ÍBK b ....
0-1
0-4
0-3
6-0
2-2
0-2
0-2
3-0
IK - Haukar ............... 4-0
ÍBK a - Rcynir ............ 3-1
ÍBK b - Haukar b .......... 2-0
ÍK - Haukar a ............. 1-0
ÍBK a - ÍBK b ............. 2-0
ÍK - Reynir ............... 1-3
ÍBK a - Haukar a .......... 1-2
Strákarnir í 6. og 7. flokki
IBK komu í heimsókn í prent-
smiðjuna Grágás á þriðjudag
og færðu eigendunum, þeim
Sigurjóni R. Vikarssyni og
Stefáni Jónssyni, blómvönd
sem þakklætisvott fyrir móts-
haldið um páskana.
Kom fram hjá Sigurjóni að
fyrirhugað væri að halda ann-
að Grágásarmót í utanhúss-
knattspyrnu nú í sumar.
Valsmenn of
stórir og sterkir
Keflvíkingar fengu
„góða“ gesti á laugardag fyr-
ir páska en það voru engir
aðrir en stórlið Vals í hand-
knattleik. Liðin áttust við í
16 liða úrslitum í bikar-
keppni HSÍ.
Keflvíkingar voru vægast
sagt eins og kettlingar í
höndunum á landsliðsmönn-
um Vals, sem þurftu ekki að
hafa mikið fyrir því að sigra
2. deildarlið ÍBK, sem nú
berst hetjulegri baráttu fyrir
sæti í deildinni. Lokatölur
urðu 33:18.
Bræðurnir Björgvin og Sigurður Björgvinssynir í kröppum dansi á lín-
unni. Valsararnir Þorbjörn Jcnsson og Geir Sveinsson horfa mcð skelf-
ingu á það sem er að gerast i eitt af fáum skiptum i leiknum.
Ljósm.: pket.
Afram UMFN og IBK - BIKARANA HEIM!
Fjölmennum á úrslitaleiki ÍBK og ÍR og UMFN
og ÍR í úrslitum Bikarkeppninnar í Höllinni í kvöld.
Styðjum okkar fólk til sigurs - báða bikarana heim!
Körfuknattleiks-
ráð ÍBK