Víkurfréttir - 06.07.1989, Síða 11
WKllft
juOit
Ruslið sem Landshöfnin iætur fjarlægja um næstu helgi, ef eigendur
hafa ekki orðið við áskorun um að fjarlægja sitt drasl. Ljósm.: epj.
Landshofnm hreins-
ar fjörukambinn
Landshöfn Keflavík-
Njarðvík hefur auglýst
áskorun til smábátaeigenda
um að hreinsa burt vagna,
skúra og ónýta báta sem
standa á sjávarkambinum
milli Skipasmíðastöðvar
Njarðvíkur og Harðar h.f. í
Njarðvík. Verði ekki orðið
við tilmælum i auglýsingunni
fyrir næstu helgi mun við-
komandi drasl fjarlægt á
kostnað eigenda.
Hefur þegar verið fenginn
verktaki til að taka að sér
verkið og því mun áskorun
þessi standa í hvívetna.
Nýja sjálfsafgreiðsludælan í Sandgerðishöfn.
Ljósm.: epj.
Sjálfsafgreiðsludæla
í Sandgerðishöfn
Olíusamlag Keflavíkur og
nágrennis tók nú í byrjun
vikunnar í notkun nýja
sjálfsafgreiðsludælu í Sand-
gerði. Er dælan staðsett á
fleka við nýrri hafnargarðinn
og er ætluð smábátasjó-
mönnum.
Að sögn Guðjóns Ólafs-
sonar hjá OSK, þá eru allir
smábátasjómenn, sem róa
reglulega frá Sandgerði, vel-
komnir til viðskipta og jafn-
framt beðnir að hafa sam-
band við skrifstofur Olíu-
samlagsins.
Ný tegund fiskeldiskvía hjá Sjókvíum:
Gætu þolað
aðstæður hér
í síðustu viku var komið
fyrir tveimur fiskeldiskvíum
af þremur, sem nýstofnað
fiskeldisfyrirtæki, Sjókvíar
h.f., mun hafa út af Vatns-
leysuvík. Erhérumgerðkvía
að ræða sem hver um sig
mælist 4500 rúmmetrar að
stærð, en um 400 þúsund
seiði fara í kvíarnar.
Hver kví er þannig upp
byggð að efst er fóðurtankur
með tölvustýrðum fóðrunar-
búnaði. Þá er hægt að draga
upp nótina til að auðvelda
skoðun á fiskinum í henni og
eins að leggja nótina upp
með burðarstoðunum og
sökkva kvínni þannig aðein-
ungis toppur hennar standi
upp úr. Með því móti verst
kvíin veðri mun betur en ella.
Sem kunnugt er af fyrri
fréttum stóðu nætur þær,
sem voru í kvíum Sjóeldis,
bæði út af Keflavík og Voga-
stapa, mjög illa. Virtust þær
ekki þola þá kröppu undir-
öldu sem hér er. Það eiga
þessar kvíar hins vegar að
gera.
Fyrirtækið Sjókvíar h.f. er
í eigu Lindarlax h.f. á Vatns-
leysu, sænsks aðila og
Sindrastáls.
Fimmtudagur 6. júlí 1989 11
Gengið
um Garð
Fótbrotnaði
á leikvelli
Ungur strákur, sem var að
leika sér á ieikvelli í Njarð-
vík um síðustu helgi, varð
fyrir því óhappi að fótbrotna
þar. Hafði hann verið að
príla í kerru frá Hjálparsveit
skáta, sem skilin var eftir á
vellinum, með þeim afleið-
ingum að hann datt niður.
Rúðubrot í
miðbænum
Um síðustu helgi var rúða
brotin í kjallara gamla póst-
hússins við Hafnargötu i
Keflavík. Við rúðubrotið fór
viðvörunarkerfi Vara í gang
og fældi þá í burtu sem þar
voru að verki.
Mikil ölv-
un og læti
Lögreglan í Keflavík
þurfti að hafa mikil afskipti
af ölvuðu fólki um síðustu
helgi. Sést það best á hinum
ýmsu frásögnum í blaðinu.
Meðal annars stóð lögregl-
an ölvaðan mann að því að
taka ófrjálsri hendi númers-
lausan bíl til aksturs. Var sá
aðeins 18 ára að aldri.
Gerðahreppur verður við-
fangsefni Náttúruverndar-
félags suð-vesturlands nk.
þriðjudag. Verður þá gengið
frá Garðskagavita og inn
með ströndinni að Skaga-
garði og með honum að Ut-
skálum og síðan vestur með
ströndinni og aftur að Garð-
skagavita.
Mun gangan hefjast kl. 21
og er áætlað að henni ljúki
tveimur tímum síðar. Er
öllum heimil þátttaka og eru
íbúar Gerðahrepps hvattir til
að mæta í gönguna og kynn-
ast sínu nánasta umhverfi.
Mjög góð þátttaka var í
tveimur síðustu gönguferð-
um félagsins. Mættu um 60
manns í Keflavík og einnig
var góð mæting þegar gengið
var í Grindavík.
BÍLALEIGA
GÓÐIR BÍLAR - GOTT VERÐ
Hafnargötu 38 - Sími 13883
Símnotendur
ATHUGIÐ
Eldri símaskrár eru gengnar úr gildi. Póst- og síma-
málastofnunin hvetur því símnotendur að sækja
þegar nýju símaskrána á næstu póst- eða símstöð.
Jafnframt minnum við á svæðisskrá fyrir Suðurnes
sem er til sölu á sömu stöðum fyrir aðeins kr. 150.
Stöðvarstjóri