Víkurfréttir - 06.07.1989, Side 16
víkur 4/Uttfo
Fimmtudagur 6. júlí 1989
AFGREIÐSLA BLAÐSINS er að Vallargötu 15 - Símar 14717, 15717.
Göngumenn l'engu lögreglumóttöku þegar þeir komu að sorphaugunum á Stafnesi. Var fólkinu gert Ijóst að það mætti ekki fara
lengra.
Ljósmyndir: hbb
Olíumenguðum
jarðvegi kastað
á Stafnesi ?
- sóðaskap frá sorphaugum mótmælt
Afkomendur íbúa á Staf-
nesi efndu til mótmælagöngu
frá bænum Stafnesi að sorp-
haugum við ratsjárskermana á
þriðjudagskvöld í fyrri viku.
Var vel á fjórða tug manna,
bæði yngri sem eldri, í göng-
unni. Þegar komið var að
haugunum tók lögregla á móti
fólkinu og stöðvaði för hess.
Bar fleiri lögreglubíla að og
var um tugur lögreglumanna
mættur á staðinn.
Afkomendurnir komu á
framfæri kvörtun við lögregl-
una vegna þess sóðaskapar
sem stafaði af haugunum og að
matarúrgangi væri kastað þar,
aðallega þegar sorpeyðingar-
stöðin væri stopp. Mótmæl-
endurnir bentu einnig á það að
hugsanlegt væri að olíumeng-
uðum jarðvegi sé kastað á
þessa umræddu hauga.
Auk þess að mótmæla sóða-
skapnum var yfirgangi hersins
á þessum slóðum mótmælt.
Áður en til heræfinganna kom
hafði lína verið strengd langt
inn í land Stafnesbænda, sem
bannaði alla umferð um svæð-
ið. Var lögreglan fengin í mál-
ið og þurfti að færa línuna
töluvert til. Þá eru sorphaug-
arnir komnir nokkuð inn í
land Stafnesbænda.
Hefur lögreglan á Keflavík-
urflugvelli fallist á að gera
skýrslu um þessi mótmæli
fólksins, sem fóru á allan hátt
friðsamlega fram.
Fjöldi lögreglumanna vísaði göngufólkinu á brott.
m 1 S M m *mmm l _ m Mb V i
TRÉ L /v
SPÖN PARKET
TRÉ-X BYGGINGAVÖRUR IÐAVÖLLUM 7 KEFLAVÍK SIMI 14700
f*
Bæjar-
ábyrgðinni
vegna
Jöfurs
verði
aflétt
Á sínum tíma fékk Útgerð-
arfélagið Jarl h.f. í Kcflavík
bæjarábyrgð til kaupa á ný-
'smiði, sem þá var væntanleg
frá Stálvík h.f. og fékk síðan
nafnið Jöfur KE 17. Um síð-
ustu áramót voru öll hluta-
bréfin í útgerðinni seld aðila á
Hnífsdal en jafnframt gefin
þau fyrirheit að skipið myndi
áfram landa afla sínum i
Keflavík.
Nú hafa þærbreytingarorð-
ið að Jarl h.f. Iiefur selt skipið
öðru fyrirtæki, skráðu í Kefla-
vík, og nefnist þaðMuggurh.f.
Um leið og salan fór frarn
hevrðust þær efasemdarraddir
að skip þetta myndi ekki landa
meira í heimahöfn. Þær efa-
semdarraddir eru staðfestar í
forsíðufrétt Fiskifrétta 30.
júní en þar kemur fram að
stærsta rækjan verði heilfryst
um borð og síðan seld m.a. til
Japans, en iðnaðarrækjan
verði öll pilluð hjá Meleyri h.f.
á Hvammstanga og þannig
verði þetta í framtíðinni.
Af þessu tilefni hafði blaðið
samband við Guðfinn Sigur-
vinsson, bæjarstjóra í Kefla-
vík, og spurði hvort skilyrði
bæjarábyrgðarinnar væru þar
með ekki fallin niður. Svar
hans var eftirfarandi: „Jú, og
við munum í framhaldi af
þessum fregnum óska eftir því
að bæjarábyrgð Keflavíkur-
bæjar verði aflétt af skipinu.
Útgerðin verður því að fá bæj-
arábyrgð annars staðar.“
Mér hefði nú fundist að Haf-
steinn „guðfaðir" hefði átt að
taka fyrstu sundtökin...