Víkurfréttir - 24.08.1989, Side 11
mim
Fimmtudagur 24. ágúst 1989 11
Hér sést hvar björgunarmennirnir þurftu að feta sig upp snarbratt-
an klettavegginn með varnarliðsmanninn. Ljósm.: epj.
Erfiður sjúkraflutningur á Vogastapa:
Urðu að feta sig upp snar-
brattan klettavegginn
Sjúkraflutningsmenn frá
Brunavörnum Suðurnesja,
lögreglumenn úr Keflavík
ásamt nokkrum öðrum kom-
ust í hann krappann er varnar-
liðsmaður fékk hjartatilfelli í
fjörunni undir Vogastapa, þar
sem bergið er einna hæst, síð-
asta föstudag. Hafði maðurinn
verið á göngu í fjörunni ásamt
börnum. Tókst þeim að kom-
ast til Innri-Njarðvíkur og
gátu hringt þaðan eftir hjálp.
Fyrir ofan þann stað sem
maðurinn lá í fjörunni fór
fram losun á sorpi Suðurnesja-
búa hér í eina tíð. Þar er kletta-
veggurinn snarbrattur og
mjög hár, en einstigi liggurþar
niður í fjöru með kaðalbandi
til hliðar. Þar sem strax þótti
sýnt að það yrði erfiðleikum
bundið að ná manninum upp
úr fjörunni og líðan hans var
orðin slæm var gripið til þess
ráðs að fá fleiri menn til að-
stoðar, þar sem talið var að
með því móti tæki skemmri
tíma að koma honum undir
læknishendur en að kalla til
þyrlu eða bát.
Bar þegar að fjölda sjúkra-
flutningsmanna, lækni o.fl.
Tókst hópnum að ná mannin-
um upp úr fjörunni með því
móti að feta sig upp einstigann
með manninn í sjúkrabörun-
um. Til þess urðu menn að
nota aðra hendina til að hífa
sig upp eftir kaðlinum en lyfta
börunum með hinni. Þrátt
fyrir mjög erfiðar aðstæður
liðu ekki nema 50 mínútur frá
því að tilkynning barst og að
maðurinn var kominn undir
læknishendur á Landakots-
spítala í Reykjavík.
Þykir einsýnt að björgunar-
aðilar hafi sýnt mikið harð-
fylgi við verk þetta en að auki
urðu þeir að bera fjögurra ára
gamalt barn mannsins sömu
leið upp.
Nokkru eftir að útkallinu
lauk voru sömu aðilar kallaðir
út á ný inn á Vogastapa og það
á svipaðar slóðir. Nú var þó
ekki um sjúkraflutning að
ræða heldur bruna í bifreið af
gerðinni Mazda árg. 1980.
Brann sú bifreið að mestu en
engin númer voru á henni.
AUKIÐ
ÚRVAL
Ölvaðir
valda um-
ferðar-
óhöppum
Aðfaranótt sunnudagsins
var bifreið ekið á mannlausa
bifreið á Faxabraut, rétt
ofan við Fjölbrautaskólann.
Er ökumaðurinn grunaður
um ölvun við akstur. Þá hafa
gefið sig fram vitni er benda
á að hann hafi gert tilraun til
að reykspóla fyrr um kvöld-
ið við Boggabar.
A sunnudeginum var bif-
reið ekið aftan á aðra á Hafn-
argötu í Keflavík. Er öku-
maðurinn sem olli því
óhappi sömuleiðis grunaður
um ölvun við akstur. Með
umræddum aðilum voru tíu
ökumenn teknir, grunaðir
um meinta ölvun við akstur í
umdæmi lögreglunnar í
Keflavík, þar af voru fjórar
konur. En hlutur þeirra í
brotum sem þessum fer nú
vaxandi.
Hjóli stolið
Mánaðargömlu BMX-reið-
hjóli, hvítu og bláu, var stolið
fyrir utan verslunina Hljóm-
val seinni part föstudags 18.
ágúst. Þeir sem geta gefið upp-
lýsingar um hjólið, vinsamleg-
ast látið vita í versluninni
Hljómval, sími 14933.
Nýjung
Keflavík - Njarðvík
og nágrenni
&
Ballettskóli
Eddu ^
Scheving
Brekkustíg 39
Meðlimur í Félagi íslenskra listdansara.
Nýjung
Keflavík - Njarðvík
og nágrenni
v
V| 0G
A j
w
lALLEITSIIOLá
ATHUGIÐ!
BALLETT í fyrsta skipti á Suð-
urnesjum. Fjölbreytt ogskemmti-
legt kerfi fyrir alla aldurshópa
(yngst 4 ára). Inntirun í síma 91-
38360 kl. 12-14.
af blöðum
og tíma-
ritum
Rolling Stone .
Musician
Cyde World
(mótorhjól)
Boating
Tour Wheeler
Off Road
Hot Road
PC Word
Discover
Run
Mac User
Condé Nast
travler
Sport lllustrated
Cosmopolitan
Playboy
Playgirl
Fox
Chic
1001 Home Ideas
Casa Vogue
Norsk Ukeblad
Mc Calls
People
Batman
Vinsælustu titl-
arnir ívasabók-
um (Best sellers)
DEHÓK
Hafnargötu 36 - Sími 13066