Víkurfréttir - 07.06.1990, Page 7
Fréttir
Örn Egilsson frá Almannavörnum ríkisins flytur fyrirlestur á fundinum.
Almannavarnir Suðurnesja:
Ljósm.: hbb.
Samkomulag um skipun
tveggja hjálparliðssveita
Almannavarnanefnd Suður-
nesja annars vegar og björgun-
arsveitirnar Eldey í Höfnum,
Sigurvon í Sandgerði, Skyggnir
í Vogum, Stakkur í Keflavík,
Ægir í Garði, Hjálparsveit
skáta í Njarðvíkum og Rauða-
krossdeild á Suðurnesjum hins
vegar, hafa gert með sér sam-
komulag um skipun tveggja
hjálparliðssveita almanna-
varna á Suðurnesjum. Er sam-
komulagið gert á grundvelli
samkomulags um heildarskipu-
lag hjálparliðs almannavarna
frá 29. júlí 1986.
Er samkomulagið þannig að
björgunarsveitirnar Eldey í
Höfnum, Sigurvon í Sand-
gerði og Ægir í Garði leggja til
mannafla í tvo tuttugu manna
björgunarflokka; Hjálparsveit
skáta í Njarðvík og Stakkur í
Keflavík leggja til tvo 12
manna skyndihjálparflokka;
björgunarsveitin Skyggnir í
Vogum leggur til tvo 4ra
manna verndarflokka og
Rauðakrossdeild á Suðurnesj-
um leggur til tvo 4ra manna
fjöldahjálparflokka.
Aðilar að framangreindu
samkomulagi komu saman í
björgunarstöð Sigurvonar í
Sandgerði á fimmtudagskvöld
í síðustu viku, ásamt lögreglu.
Var þar kynnt nýtt neyðar-
skipulag sem Almannavarna-
nefnd Suðurnesja hefur látið
útbúa og dreift til allra aðila á
Suðurnesjum ‘r hafa medmál-
efni almannavarna að gera.
Örn Egilsson, starfsmaður
Almannavarna -íkisins,
kynnti neyðarskipulagið og
skýrði störf Almannavarna
ríkisins. Að loknu erindi Arn-
ar voru fyrirspurnir. Sigurður
H. Guðjónsson, formaðurSig-
urvonar í Sandgerði, nefndi að
ófremdarástand væri í þjálfun-
armálum björgunarsveita
vegna almannavarnaverkefna,
þar sem engin aðstaða væri
fyrir hendi. I kjölfar þess kom
fram að hugmyndir eru uppi
um að senda björgunarsveitar-
menn í lögregluskólann, sem
myndi taka að sér þjálfun á
mönnum fyrir almannavarnir
Garður, Hafnir og Vatnsleysuströnd:
Ákvarðanir um sveitarstjóra
teknar eftir helgi
Nýkjörnar hreppsnefndir í
Gerðahreppi, Hafnahreppi og
V at nsley sust randarhreppi
munu koma til fyrsta fundar um
og eftir helgi, en fráfarandi
hreppsnefndir starfa í 15 daga
eftir kjördag og því taka hinar
nýju við á laugardag.
Hafa meirihlutarnir ákveð-
ið að Finnbogi Björnsson verði
oddviti í Garði áfram, en í
Höfnum tekur Björgvin Lút-
hersson við því starfi og Jón
Gunnarsson í Vatnsleysu-
strandarhreppi. En ákvarðan-
ir um stöðu sveitarstjóra verða
teknar á fyrsta fundi nýkjör-
inna hreppsnefnda, hver á sín-
um stað.
Víkurfréttir
7. júní 1990
Glaumberg og Sjávargullið
verða lokuð föstudags- og
laugardagskvöld vegna
umdæmisþings Rótarý.
Gjtom
SKEMMTISTAÐUR
SIÁVAROILLIÐ
u RESTAURANT
Fjör um helgina
r
RUNAR og hans tríó skemmta í kvöld,
fimmtudag, til kl. 01.
RUNAR og Rokksveit halda uppi fjöri
, föstudag og laugardag til 03.
RUNAR kemur í sjóstakknum á sjó-
mannadaginn og leikur sjó-
, mannalög til kl. 01.
RUNAR treystir á að þú kíkir í Borgina
um helgina.
PDCMRnnr.
Rótarýhreyfingin:
Formöt og umdæmisþing
í Keflavík um helgina
Nú um helgina mun 44.
formót og umdæmisþing Rót-
arýmanna fara fram í Keflavík.
Mun fundarstaður verða í
Glaumbergi, en gestir gista
bæði á Flug Hóteli og Hótel
Keflavík.
Dagskrá formótsins hefst í
fyrramálið (föstudag) kl. 8.30
og lýkur með kvöldverði. Um-
dæmisþingið fer síðan fram á
laugardag frá morgni til
kvölds. Meðan á þinghaldi
stendur verður boðið upp á
sérdagskrá fyrir konurnar.
Hefur undirbóningur staðið
yfir frá því í haust, en undir-
búningsnefndin er skipuð
þeim Birgi Guðnasyni, Georg
V. Hannah, Guðmundi
Björnssyni, Jóni Axel Stein-
dórssyni og Þorsteini
Marteinssyni. Munum við
fjalla nánar um þinghaldið og
rótarýhreyfinguna í næsta
blaði.
A þinginu verður kjörinn
nýr umdæmisstjóri hreyfing-
arinnar hér á landi, en Kefl-
víkingurinn Ómar Steindórs-
son hefur gegnt því embætti
undanfarið ár. Sá er tekur við
er Eiríkur H. Sigurðsson sem
var hér í eina tíð útibússtjóri
Verslunarbankans í Keflavík
og sveitarstjóri í Garðinum.
Formaður Rótarýklúbbs
Keflavíkur í dag er Njáll
Skarphéðinsson.
Módelsamtökin og Smart
standa fyrir námskeiði í
• snyrtingu • framkomu • fatastíl
• og mannlegum samskiptum
fyrir konur á öllum aldri.
Námskeiðið verður haldið í Snyrtivöru-
versluninni SMART, miðvikudaginn
13. júní kl. 20.
Innritun á námskeiðið í Smart í síma
15415. Módelsamtökin
SNYRTIVÖRUVERSLUNIN
smaRt
Holmgaröi 2 - Simi 15415