Víkurfréttir - 07.06.1990, Síða 11
________22
Vikurfréttir
7. júní 1990
Ljósm.: hpé./Grindavík
tinn, Olaf GK.
gerðu á þessum árum. Það var
farið á vorin og komið að
hausti. Þá voru engin helgar-
frí og því voru þetta svakaleg-
ar útiverur. Þetta var mikið
fyrir fjölskyldumenn. Ég get
sagt þér sem dænti, að á fyrstu
vertíðinni sem ég varávarróið
á föstudaginn langa. Menn
ætluðu að taka upp fyrir
páska. Þá voru fjórir bátar
sem ekki höfðu tekið upp og
rótfiskuðu. Þá ætluðu allir út
daginn eftir að leggja að nýju.
Nú er þetta breytt, menn fá sitt
páskafrí. Þetta þótti sjálfsagt
áður, að menn væru fjarri
heimilinu og konan sæi um
heimilið. Það er ekki hægt að
vera sjómaður held ég, nema
maður eigi konu sem skilur
þetta starf.“
Nú vill enginn á sjó
Willard finnst að áhugi á
sjómennsku hafi minnkað og
erfitt sé að fá unga menn til að
helga sig sjómennsku. „Hér
áður fyrr var meiri ævintýra-
Ijómi í kringum sjómennsk-
una og maður leit upp til þess-
ara kalla sem voru á sjó. Nú
fást menn ekki á sjó nema að
launin séu helmingi hærri en
hægt er að fá í landi. Sú bind-
ing sem felst í sjómannsstarf-
inu á ekki við alla og mönnum
finnst mikill ntunur á því að
vinna bara frá níu til fimm.
Maður sem er á loðnuveiðum
fær ekki nema fjóra daga frí í
mánuði. Þetta eru svo miklar
útiverur og á rækjunni er túr-
inn 21 dagur. Þaðeru ekki allir
sem sætta sig við þetta. Tæki-
færi sem fólk hefur í sambandi
við atvinnu eru svo miklu
meiri í dag, en var þegar ég
valdi mér ævistarf."
-En hafa ekki orðið miklar
breytingar á þessum árum?
„Maður er búinn að lifa
stórkostlegar breytingar á
þessum árum. Aðbúnaðurhef-
ur tekið miklum breytingum.
Það er eins og hvítt og svart.
Mesta breytingin er þó Loran-
inn held ég. Nú getur maður
séð upp á meter hvar maður er
staddur. Oryggismálin hafa
einnig tekið miklum breyting-
um og sú vakning sem orðin er
varðandi þau mál ergleðileg."
Willard sagði að hann hafi
verið mjög heppinn á sínum
sjómannsferli. „Eg hef aldrei
misst mann eða maður hafi
slasast alvarlega um borð hjá
mér. Eina sem hefur fyrir mig
komið er að einu sinni fór ég
útbyrðis. Þá var ég stýrimaður
og við vorum að leggja. Þá var
lukt sem gekk fyrir rafhlöðum
og við vorum að baksa við að
skipta um rafhlöðu þegarallt í
einu að baujan slóst utan í mig
og ég flaug fram fyrir bát og
útbyrðis. Þetta gerðist svo
snöggt. Baujan kom á eftir og
ég náði henni. Síðan gekk
mjög vel að ná mér um borð
aftur og ekki varð mér meint af
volkinu.“
Þokkalegar tekjur
fyrir mikla vinnu
-En hefur kvótinn ekki
breytt miklu varðandi sjó-
mennskuna?
„Vissulega hefur kvótinn
gert það en þrátt fyrir að þetta
kerfi hafi hundrað galla þá
komumst við ekki hjá því að
hafa einhverja skömmtun og
enginn hefur bent á betra
kerfi. Ef ekki væri kvóti þá
væri hægt að sópa upp því sem
í sjónum væri. Tæknin er orðin
það mikil. Nú verða menn að
hugsa meira um verðmæti en
áður var.“
-En hafa menn ekki miklar
tekjur á sjó?
„Menn geta haft þokkaleg-
ar tekjur fyrir mikla vinnu.
Sjómennska er erfið vinna og
eins og ég sagði áður fylgja
þessu starfi miklar útiverur.
Ég held að menn geri oft ntikið
úr því hversu miklar tekjur
sjómenn hafa. Það gleymist
hvað er bak við tekjurnar,“
sagði Willard Olason að end-
ingu.
'ómönnum 5arkveðjur ctnnadagsins Valbjörn og Jón Erlingsson hí., Sandgerði yyy ■ ISLENSKUR GÆÐAFISKUR HF
WJlt skipTinc
Básvegi 6, Kefíavík Grófinni, Keflavík
'■CeEavíkur og nágr. Fiskanes, Grindavík Miðnes hí, Sandgerði
Njáll hí., Garði ! Útgerðaríélagið ÍjLjgglEjEldey hf. Hœlsvík, Grindavík
Höínin Kefíavík-Njarðvík <0 Fiskmarkaður Suðurnesja hf. Stafnes hí, Njarðvík
Saltver, Njarðvík Skipa- h|| afgreiðsla Suðurnesja sf. Jökulhamrar, Keflavík