Víkurfréttir - 07.06.1990, Side 18
18
W W
IÞROTTIR
Víkurfréttir
7. júní 1990
„Gamli“ maðurinn, Húnar Georgsson, átti (jolt skot að marki
Fylkis, cn markvörðurinn varði vel. Ljó.sm.: pkct.
„ÞJOFNADUR
- er ÍBK tapaði fyrir Fylki 1:2
„Þetta var alyer þjófnaður
og ósann}>jörn úrslit. I tveimur
siðustu leikjum höfuni við feng-
ið mark á okkur þegar komið
liefur verið fram yfir venjuleg-
an leiktíma. Byrjunin i deildinni
lofar þó góðu og ég hef trú á þvi
að við séum á réttri leið. Það er
góður andi í hópnum og við ætl-
um okkur að vera í haráttunni
um 1. deildarsæti,“ sagði Gísli
Eyjólfsson, aðstoðarþjálfari
Keflavíkurliðsins í knattspyrnu,
eftir tapleik liðsins gegn Fylki á
mánudagskvöldið.
Já, það má svo sannarlega
líkja þessu við stuld hjá Fylkis-
Dómarahornið
Hertar reglur liafa verið teknar
upp við leikvelli i íslandsmótinu i
knattspyrnu. Mikið hefur veriðsett
af boðum og bönnum.
Ein af nýju reglunum er að
skerða mjög frelsi blaðaljósmynd-
ara til að taka myndir á leikjum.
Eftirlitsdómari á leik Viðis og KS
á dögunum meinaði Ijósmyndara
blaðsins að vera í þriggja metra
fjarlægð frá hliðarlínu leikvallar-
ins í Garði og sagði ljósmyndara
aðef liann ætlaði að taka myndirá
leiknum, þá gæti hann annað
hvort verið á meðal áhorfenda eða
á bakvið markið.
Að gefnu tilefni er rétt að leið-
rétta það að loftmælar fyrir fót-
bolta eru framleiddir og seldir af
sportvöruinnflytjendum hér á
landi, en sagt var í síðasta blaði að
þeir væru ekki framleiddir í heint-
inum.
mönnunt því allt stefndi í jafn-
tefli og Keflvíkingarnir voru
aðgangsharðari við mark
Fylkis síðustu mínúturnar. Því
kom markið eins og köld
vatnsgusa framan í leikmenn
IBK og áhorfendur. Það voru
Keflvíkingar sem náðu forystu
í leiknum með marki Gests
Gylfasonar, sem fékk send-
ingu frá Frey Sverrissyni
snemma í fyrri hálfleik. Fylk-
ismenn jöfnuðu úr vítaspyrnu
skömmu fyrir leikhlé, sem fáir
sáu fyrir hvað var dæmd, en
varnarmaður ÍBK á að hafa
haldið einum leikmanni Fylk-
is innan vítateigs. Liðin skipt-
ust síðan á að sækja í seinni
hálfleik, sem var mun fjörugri
en sá fyrri. Bæði lið áttu ágæt
færi sem ekki nýttust og rétt
áður en Fylkismenn skoruðu
sigurmarkið höfðu heima-
menn verið mjög nálægt því að
skora. ,,I öllum leikjunum
höfum við náð að skapa okkur
góð færi en þau hafa þó ekki
nýst sem skyldi,“ sagði Gísli
Eyjólfsson.
Keflvíkingar eru með 6 stig
eftir 3 leiki og unnu mjög góð-
an sigur á Selfossi fyrir austan
á föstudagskvöldið. Marko
Talasic skoraði fyrra mark
IBK og Jóhann Magnússon
það seinna.
Næsti leikur Keflvíkinga er
á laugardaginn í bikarkeppn-
inni. Þeir mæta þá IK í Kefla-
vík og hefst leikurinn kl. 14.
Mjólkurbikarkeppnin í
knattspyrnu, 16 liða úrslit:
ÍBK-ÍK
á Keflavíkurvelli
laugardaginn
9. júní kl. 14.00.
Fjölmennun á
skemmtilegan bikarleik!
Sögulegur
getraunaseðill
Það hcfur ckki farið framhjá
ncinum sem fylgist mcð knatt-
spyrnu að 1 leimsmeistarakeppnin
vcrður haldin á Italiu i júníogjúlí. I
tcngslum við kcppnina hafa get-
raunafyrirtækin í Svíþjóð, Dan-
mörku og á Islandi gefið út sameig-
inlcgan getraunaseðil með leikjum i
riðlakeppninni. Þessir getrauna-
seðlar eru, en þeir verða 2 talsins.
einstæðir i sögu knattspvrnuget-
rauna. og raunar happdrættissög-
unnar i heiminum. Hérkunnasumir
að segja að við tökum dálítið stórt
upp í okkur en nokkrar einfaldar
staðreyndir sýna aðsvo er allsekki.
Aldrei fyrr í sögunni hefur sala í
sama happdrætti. þ.e. að keppt
hefur verið um sameiginlegan
vinningspott, farið fram í fieiri en
einum gjaldmiðli.
Tipparar á Norðurlöndum hafa
því öðlast nýja vídd í hinn
skemmtilega 1X2 getraunaleik
sem óvíða nýtur jafn mikilla vin-
sælda og einmitt þar. Næstu 3 vik-
urnar verður tippað frá Kiruna í
norðri til Borgundarhólms í suðri
og frá Stokkhólmi í austri alla leið
til Patreksfjarðar í vestri - allt í
sama vinningspottinum sem ekki
hefur átt sinn líka í þessum lönd-
um.
Það var í Stokkhólmi fyrir einu
ári síðan að danska getraunafyrir-
tækið Dansk Tipstjeneste kom
með þessa hugmynd, að stefna að
sameiginlegum. norrænum stór-
potti fyrir HM á Ítalíu 1990. Hug-
myndinni var strax vel tekið nema
að Norðmenn gáfu hana frá sér
nær alveg strax. Finnar urðu að
gefa þátttökuna frá^jsér í janúar
vegna reglna um haþpdrætti þar í
landi en hinar þjóðirnar sem eftir
voru héldu ótrauðar áfram og nú
er draumurinn að verða að raun-
veruleika.
Knattspyrnuáhugamenn á ís-
landi eru hvattir til að taka dug-
lega þátt í HM-getrauninni og við
bendum á að allur hagnaður fer til
íþróttahreyfingarinnar í landinu.
Þú getur haft mikil áhrif á hvert
hagnaðurinn rennur, því tipparar
geta merkt við féiagsnúmerin sín á
getraunaseðlinum.
Víðir vann fyrsta
nágrannaslaginn
Víðismenn eru á góðu skriði
þessa dagana og fóru með sigur
af hólmi í fyrsta „Derbyslagn-
um“. Lögðu þeir Grindvíkinga
að velli á öðrum degi hvíta-
sunnu með 3 mörkum gegn 2.
Veðurguðirnir brostu ekki
framan í leikmenn Grindvík-
inga og Víðis í leiknum.
Reyndar segjast Víðismenn
sjaldan hafa spilað knatt-
spyrnu í logni í Grindavík og
leikurinn á mánudag ein-
kenndist mikið af rokinu.
Grétar Einarsson skoraði
fyrsta mark Víðis strax í upp-
hafi leiks og bætti öðru við á
21. mínútu eftirgóðasendingu
Steinars Ingimundarsonar.
Grindvíkingar minnkuðu
muninn um miðjan seinni hálf-
leik er Einar Daníelsson,
markakló þeirra Grindvik-
inga, minnkaði muninn. Vil-
bergi Þorvaldssyni líkaði það
ekki og bætti þriðja markinu
við fyrir Garðmenn. Guðlaug-
ur Jónsson minnkaði þá aftur
muninn fyrir Grindvíkinga og
þar við sat.
Einn Víðismanna, Steinar
Ingimundarson, var borinn
meiddur af leikvelli og getur
svo farið að hann verði ekki
með næstu leikjum.
„Maður átti í stórvandræð-
um í markinu vegna roksins,“
sagði Skúli Jónsson, Grinda-
víkurmarkvörður, í samtali
við blaðaniann eftir leikinn.
„Það er erfitt að standa svona
með rokið í andlitið og óger-
legt að reikna út skotin sem
koma á markið. Þetta var ein-
stefna hjá Víði í fyrri hálfieik
og síðan áttum við þann síð-
ari,“ sagði Skúli að endingu.
„Víta“vert brot
Gróflega var brotið á Víðismanninum Steinari Ingimundarsyni innan vítateigs í leik Víðis og Sigl-
firðinga í Garðinum á föstudag. Steinar var í góðu færi til að skora fyrir Víðismenn þegar einn KS-
inga kom aftan að honum og brá fyrir fæti.
„Víta“vert er að dómarinn skuli ekkert liafa dæmt á brotið og því hafði Steinar í frammi mótmæli.
Fyrir það fékk hann að sjá gula spjaldið. Ljósmyndir: hbb