Víkurfréttir - 14.02.1991, Blaðsíða 8
8
Kirkja
Keflavíkurkirkja:
Laugardagur:
Guðný Kristín Halldórsdóttir,
Tjamargötu 33, Keflavík, sem lést
á St. Jósefsspítalanum í Hafnarfirði
8. febrúar. verður jarðsungin, laug-
ardaginn 16. febrúarkl. 14.
Sunnudagur:.
Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjá Mál-
fríðar og Ragnars. Heimsókn frá
Tónlistarskólanum,- Munið skóla-
bílinn.
Guðþjónusta kl. 14. Messudagur
Tónlistarskólans í Keflavík. Tón-
leikar frá kl. 13.30. Mikill tón-
listarflutningur verður við guðþjón-
ustuna. Kennarar tónlistarskólans
lesa ritningarlestra. Ræðuefni: Tón-
listin og kirkjan. Kór Keflavíkur-
kirkju syngur. María Guðmunds-
dóttir og Steinunn Karlsdóttir
syngja tvísöng. Organisti Einar Örn
Einarsson. Bifreið fer að íbúðum
eldri borgara við Suðurgötu kl.
13.30, þaðan að Hlévangi við Faxa-
braut og sömu leið til baka að lok-
inni guðþjónustu.
Sóknarprestur
Ytri-Njarðvíkurkirkja:
Barnastarf kl. 11.
Sóknarprestur
Kirkjuvogskirkja:
Kirkjuskólinn laugardag kl. 13 í um-
sjón Sigurðar Lúthers og Hrafn-
hildar.
Messa sunnudag kl. 14. Organisti
Svanhvít Hallgrímsdóttir. Söngfólk
úr kór Grindavíkurkirkju syngur.
Messukaffi í félagsheimilinu í umsjón
fóreldra fermingarbarna. Meðlætið
selt á vægu verði. Ágóðinn rennur í
ferðasjóð fermingarbarna.
Sóknarprestur
Hvalsneskirkja:
Guðþjónusta kl. 11. Organisti
Svavar Sigurðsson.
Hjörtur Magni Jóhannsson
Útskálakirkja:
Guðþjónusta kl. 14. Organisti
Svavar Sigurðsson.
Garðvangur:
Helgistund á Garðvangi, dvalar-
heimili aldraðra, kl. 15.30.
Hjörtur Magni Jóhannsson
Innri-Njarðvíkurkirkja:
Barnaguðþjónusta kl. 11. Barnakór
syngur.
Sóknarprestur
Vegurinn
Kristið samfélag
Túngötu 12
Fimmtudagskvöld kl. 20:30.
Sunnudagskvöld kl. 19:30. Sam-
koma. Sunnudagaskóli kl. 14.
Grindavíkurkirkja:
Sunnudagaskóli kl. II. Fram-
haldssaga. Börn úr Tónlistarskól-
anum spila á ýmis hljóðfæri.
Barnakórinn syngur.
Sóknarprestur
mdar-.
„Ég missti
bamatímann“
Almannavarnanefndir unnu eins
og margir aðrir vel í fárviðrinu á
dögunum. Kom þar að gagni að
nokkrum vikum áður hafði stór
æfing verið haldin og í fersku minni
livað gera ætti á neyðarstundu. Voru
menn vart komnir í stjórnstöð Al-
mannavarna Suðurnesja utan
Grindavíkur er fyrsta símtalið kom
og það nokkuð skondið. Ungur
drengur hringdi og bað um aðstoð
þar sem rafmagnið hefði farið er
hann var að horfa á barnatímann og
þvt fór hann fram á að almannvarnir
björguðu því svo hann gæti sé þann
dagskrárlið áfram.
Fjórir Suður-
nesjamenn
á listanum
Birtur hefur verið framboðslisti
Sjálfstæðisflokks í Reykjaneskjör-
dæmi. Þar kemur fram að fjórir
Suðurnesjamenn eru meðal tuttugu
og tveggja frambjóðanda. Þeir eru
Árni Ragnar Ámason, Keflavík í 4.
sæti. Viktor B. Kjartansson, Kefla-
vík í 8. sæti. Hulda Matthíasdóttir,
Garði í 17. og Eðvarð Júlíusson,
Grindavík íþví 21.
Skemmtidagskrá
án leyfis eiganda
Skemmtistaðurinn Breiðvangur í
Reykjavík bíður nú upp á söng- og
skemmtidagskránna „Við eigum
samleið", sem byggð er á söngferli
Vilhjálms heitins Vilhjálmssonar.
Er hér um að ræða uppsetningu og
vinnslu á sömu dagskrá og sýnd var
í Glaumbergi í Keflavík á síðasta
vetri. Það sem meira er, þá mun
eigandi Breiðvangs, Ámi Sam-
úelsson ekki hafa fengið heimild frá
Ragnari Emi Péturssyni fyrrum
veitingamanni í Glaumbergi fyrir að
nota verk hins síðamefnda. Hafa
Molar fregnað að Ragnar sé nú að
kanna lögfræðihlið þess máls.
Samkaup einnig í
bleiustríöinu
Eins og fram hefur komið í
J grín • gagnrýni
vangaveltur
^un^sjón^emil páll.*»
tveimur síðustu molum. er í gangi
verðstríð um bleiuverð í Stór-
markaði Keflavíkur og Hagkaupi.
Sendi Stórmarkaðurinn mæðrum
bréf með sínu tilboði og síðan
lækkaði Hagkaup sína vöru í það
sama. Rangt var farið með í síðustu
molum að þeir hefðu farið niður
fyrir verð Stórmarkaðarins. Þá
gleymdist einnig að minnast á að
bleiustríð þetta tekur einnig yfir
Samkaup og er þvt' háð milli alla
markaðanna þriggja á Keflavíkuf-
Njarðvíkursvæðinu og að þeir
Samkaupsmenn hafa farið niður
fyrir hina í verðlilboði.
Eldey og
Ólafsfjöröur
Nokkuð skondin saga hefur
komið upp nú milli útgerðar-
félagsins Eldeyjar h.f. og Olafs-
fjarðar. Snýst sagan um leigu á
bátum. Að undanfömu hafa þeir
haft á leigu bát frá Ólafsfirði er
Guðvarður heitir, en þar sem
ákveðið hefur verið að sá bátur fari
í úreldingu, tóku þeir á leigu annan
bát Völu ÓF 2. Sá bátur hefur þó
aldrei komið til heimahafnar undir
því nafni. Því hann er nýkeyptur frá
Grindavík og var gefið þetta nafn
hér syðra. I Grindavík hét báturinn
Sigurþór GK. en á sínum tíma, áður
en hann var keyptur til Grindavíkur
var hann einmitt frá þessum sama
Ólafsfirði og hét þá Anna ÓF.
Búa í húsi sem er
ekki til
Er það ekki svolítið einkennilegt
að búa í húsi, sem hvergi frnnst á
pappírum, nema þegar innheimta
þarf fasteignagjöld. Þannig er þó
farið með íbúa húss eins í Keflavík,
sem finnst hvergi í veðbókum og
fær ekki fokheldisvottorð frá bygg-
ingafulltrúa. Sökum þess er ekki
hægt að taka lán út á húsið. Hús
þetta var fyrir nokkrum misserum
flutt til KeBavíkur úr sveit einni og
sá sveitarhreppur innheimtir enn
fasteignagjöld af því eins og Kefla-
vík. Síðan stendur í stappi um húsið
og byggingayfirvöld vilja ekki gefa
sig fyrr en eigandi hússins hefur
farið eflir þeim skilmálum sem
settir voru fyrir llutningi hússins á
þann slað sem það er á í dag.
Víkurfréttir
14. febrúar 1991
Stjama Baldurs
og Siguröar
Þá er enn einni söngvakeppni
lokið hjá Ríkissjónvarpinu. Eins og
venjulega eru misjafnar skoðanir á
því lagi sem valið var til að notast í
keppninni á erlendri grundu. Að
þessu sinni áttu tyeir ungir laga-
höfundar úr Keflavík eitt lag sem
komst í sjötta sæti í úrslitum. Var
það lagið Stjarnan eftir þá Sigurð
Sævarsson og Baldur Þórir Guð-
mundsson.
Margir vilja fá
Glaumberg
Nú þegar Veisla h.f. hefur verið
tekin til gjaldþrotaskipta, hafa
margir sýnt áhuga á að leigja eða
kaupa veitingastaðinn. Hefur þá
verið rætt um að bústjóri leigi
Keflavíkurbæ búið og þeir síðan
framselji það til annarra aðila.
Meðal þeirra nafna er heyrst hefur
að sýnt hafi áhuga, eru menn eins
og Hermann Ragnarsson, Axel
Jónsson í Veisluþjónustunni, fyrr-
um starfsmenn Glaumbergs með
Val Ármann Gunnarsson í forsvari
og síðan 20 manna hópur sem áður
hefur komið fram með kauptilboð.
Hefur bústjóri látið hafa eftir sér að
þrotabúið verði auglýst til reksturs
innan skamms, hvort sem einhver
taki það á leigu fram að þeirn tíma
eður ei.
Sló í brýnu
Nokkur hiti varð milli Vilhjálms
Ketilssonar bæjarfulltrúa krata og
þeirra Jónínu Guðmundsdóttur og
Drífu Sigfúsdóttur fulltrúa meiri-
hlutans á fundi bæjarstjómar í síð-
ustu viku. Virðist Vilhjálmur eiga
auðvelt með að draga þær og þá
sérstaklega Jónínu út á hálan ís í
umræðum. 1 einu tilfellanna sló
Drífa forseti í borðið er Vilhjálmur
vildi koma með fyrirspum eftir að
umræðum lauk í tilteknu máli og
atkvæðagreiðsla var hafin. Bannaði
hún frekari umræðu og lauk ætl-
unarverki sínu.
3 TIL UTGERÐAR-
• MANNA í KEFLAVÍK
Samkvæmt samþykkt Bæjarstjórnar Keflavíkur, ber
öllum þeim aöilum, sem ákveöa aö selja veiöiheimildir
af skipum skrásettum í Keflavík, aö auglýsa í staö-
arblöðum, til þess aö gefa heimaaðilum kost á aö
kaupa.
Umsögn bæjaryfirvalda fæst aðeins aö uppfylltri aug-
lýsingaskyldu.
Bæjarstjórinn í Keflavík,
Ellert Eiríksson
Sálarrannsókn-
arfélag Suöur-
nesja auglýsir
Enski skyggnilýsingamiðillinn RITA
TAYLOR starfar á vegum félagsins
dagana 18. febrúar til 11. mars. Bent
skal á að hún teiknar árur fólks og
myndir af framliðnum. Enn eru til
óseldir miðar. Miðasala verður í húsi
félagsins að Túngötu 22, Keflavík,
laugardaginn 16. febrúar kl. 13-16.
Jafnframt auglýsir félagið almennan
skyggnilýsingafund með miðlinum
fimmtudagskvöld 21. febrúar kl.
20.30.
Stjórnin