Víkurfréttir - 14.02.1991, Qupperneq 13
Karl Steinar Guðnason skrifar_
Óheillakrákur
i álmálinu
13
Víkurfréttir
14. febrúar 1991
Viðtalið við Ólaf G. Einarsson í DV 3. feb. sl.
Bygging nýs álvers hefur síð-
ustu misseri verið ein helsta von
Suðumesjamanna um nýja sókn í
atvinnumálum svæðisins. Hvar-
vetna hafa menn rætt þessi mál.
Bjartsýni meðal manna óx mjög
eftir að staðsetning álversins var
ákveðin. Keilisnes er staðurinn.
Hreinsað til í rústunum
Umræður um stóriðju hafa á
undanfömum árum verið býsna
skrautlegar. Þegar Sjálfstæðis-
flokkurinn réði iðnaðarráðu-
neytinu fyrir þrem árum síðan
reyndi þáverandi iðnaðarráð-
herra, Friðrik Sophusson að ná
árangri í stóriðjumálum. Það var
auðvitað virðingarverð viðleitni.
Það er hinsvegar athyglisvert að
allar tilraunir ráðherra Sjálf-
stæðisflokksins snémst um það
að byggja við álverið í Straums-
vík. Sjóndeildarhringurinn var
ekki víðfeðmari. Skemmst er frá
því að segja að þáverandi iðn-
aðarráðherra náði engum árangri.
Málefni stóriðju, -bygging nýs
álvers vom í skötulíki þegar
Sjálfstæðisflokkurinn hrökklaðist
frá völdum vegna kjarkleysis í
efnahagsmálum. Þegar núverandi
iðnaðarráðherra, Jón Sigurðsson,
tók við embætti var það hans
fyrsta verk að hreinsa til í rúst-
unum sem Sjálfstæðisflokkurinn
skildi eftir sig. Jóni Sigurðssyni
tókst að laða nýja aðila til sam-
starfs. þ.e. Bandaríkjamenn.
Hjólin fóm að snúast. Málin
gengu hratt fyrir sig. Hin nýja
samsteypa, sem varð til fyrir
fmmkvæði iðnaðarráðheija
ákvað að reisa nýtt álver á Is-
landi.
Staðarval
Þegar kom að staðarvali upp-
hófust miklar hremmingar. Stór-
yrði og bægslagangur varð alls-
ráðandi. Sjálfstæðismenn fluttu
tillögu á Alþingi um að ekki kæmi
til greina að álverið yrði staðsett
annarstaðar en fyrir norðan eða
austan, sama hvað kostaði. Fram-
sóknarmenn samþykktu svipað í
þingflokki sínum. Alþýðubanda-
lagið var á móti öllum hug-
myndum um álver. Það var
kvennalistinn líka. Framsókn og
Alþýðubandalag hafa hinsvegar
að athuguðu máli breytt um
áherslur.
Iðnaðarráðherra, Jón Sig-
urðsson, með fullum stuðningi
þingflokks Alþýðuflokks taldi
eðlilegt að kanna alla möguleika.
Hagkvæmni og arðsemi skyldi
ráða ferðinni. Niðurstaðan var
okkur Suðumesjamönnunt mikið
fagnaðarefni. Keilisnes reyndist
sá staður, sem á alla lund var
hagkvæmastur.
Enn ríða „hetjur“
um héruð
Það fór lítið fyrir sveit sjálf-
stæðismanna þegar barist var fyrir
því að skynsemin skyldi ráða
staðarvali. Þeir Sjálfstæðismenn,
sem mest létu í sér heyra voru þeir
Halldór Blöndal, Egill á Selja-
völlum og fl. sem vart máttu vatni
halda vegna heiftar í garð álvers
á Keilisnesi. Þeir voru andlit
Sjálfstæðisflokksins í umræðu
um staðarval nýs álvers. Enn ríða
„hetjur" Sjálfstæðisflokksins um
hémð og útúða Jóni Sigurðssyni
Karl Steinar Guðnason.
og Alþýðuflokknum fyrir að
ákveðið var að álver verði stað-
sett á Suðumesjum. Við Suður-
nesjamenn fylgjumst með þessu
framlagi Sjálfstæðismanna til nýs
álvers á Keilisnesi.
Enn truflar íhaldið
Stjóm Landsvirkjunar er
þannig skipuð að Alþýðuflokk-
urinn á engan fulltrúa þar. Sjálf-
stæðismenn eru þar fjölmennir.
Þar er líka Framsóknarmaður og
Alþýðubandalagsmaður. Samn-
ingaviðræður um byggingu ál-
versins ásamt samningum um or-
kuverð voru í fullum gangi.
Starfslið Landsvirkjunar, helstu
sérfræðingar hennar vom á kafí í
undirbúningnum. Allt í einu ger-
ast undarlegir hlutir. Sjálf-
stæðismenn í bandalagi við aðra
helstu andstæðinga álvers á Suð-
umesjum þ.e. fulltrúa Alþýðu-
bandalags og Framsóknar banna
formanni stjómar Landsvirkjunar
að undirrita þýðingarmikið
áfangasamkomulag um álverið.
Upplýst var á sama tíma að í
stjóm Landsvirkjunar hafi málið
verið rætt á 26 stjómarfundum og
eins og fyrr segir að helstu sér-
fræðingar og yfirmenn stofn-
unarinnar höfðu unnið mikið og
af fullum heilindum að málinu.
Þrátt fyrir það héldu Sjálf-
stæðismenn því fram að þeir
vissu ekkert um málið.
Svo leggjast þeir
í utanferðir
Síðan gerist það grátbroslega
að þeir Davíð Oddsson og komp-
aní leggjast í utanferðir til að
blanda sér í málin. Ekki fer
sögum af því að þeir hafi nokkm
breytt. Þetta framlag mun hafa
verkað mjög undarlega á við-
semjendur okkar ytra. I huga
þeirra var það staðfesting á því að
mikil óeining væri um málið hér
heima. Vissulega var á þessum
tíma margt ófrágengið en málin
vom á fullu skriði. Pólitískir fim-
leikar Sjálfstæðisflokksins og
viðhlægjenda þeirra hefur haft
tmflandi áhrif á málið.
Átakanleg öfund
Það hefur vakið athygli hvað
iðnaðarráðherra á gott með að
laða menn til samkomulags í erf-
iðum málum. Þegar hann var í
sáttanefnd í erfiðum kjaradeilum
kom þessi eiginleiki mjög vel
fram. Það þekkja sjómenn. Það
þekkja forystumenn verkalýðs-
hreyfingar og atvinnurekenda.
Það er hinsvegar illt í efni þegar
pólitískir öfundarmenn vilja fórna
öllu fyrir stundarhagsmuni í
stjómntálum. I haust þegar rætt
var um framlagningu fmmvarps
um nýtt álver var í Dagblaðinu (3.
okt.) viðtal við sjálfstæðismann-
inn Olaf G. Einarsson. Þar svaraði
hann aðspurður: „Sjálfstæðis-
flokkurinn kemur ekki til
hjálpar14. og átti hann þá við að
þeir sjálfstæðismenn myndu gera
allt hvað þeir gætu til að hindra
samþykkt frumvarps um nýtt
álver! Þessara orða skulum við
Suðumesjamenn minnast.
Tilhlökkun Matthíasar
Persaflóastríðið hefur haft
áhrif á fjármagnsmarkaði um
allan heim. Lækkun dollars o.fl.
hefur haft neikvæð áhrif á gang
mála hvað nýtt álver snertir. Svo
víðtæk áhrif hefur ófriðurinn við
Persaflóa að forstjórum álveranna
á Bandaríkjunum, Svíþjóð og
Hollandi er bannað að fljúga yfir
Atlantshafið. Það eru vissulega
blikur á lofti. Það er þessvegna
meiri ástæða en nokkru sinni fyrr
að Islendingar sýni samstöðu,
ákveðni og kjark í álversmálinu.
Menn ýti flokkslegri óvild til
hliðar. En hvað gerist? Sl. laug-
ardag birtist viðtal í DV við
Matthías á Matthiesen, þingmann
Sjálfstæðisflokksins í Reykjanes-
kjördæmi. f viðtalinu vall fram sú
pólitíska öfund, sem lengi hefur
blundað þar á bæ út í iðnað-
arráðherra, sem fyrstur manna í
áratugi hefur náð árangri í stór-
iðjumálum. Hann tók við þessum
málum í rúst eftir Sjálfstæð-
isflokkinn. I viðtalinu má greina
verulega tilhlökkun og eftir-
væntingu eftir því að álmálinu
seinki eða það tapist. Hann við-
hefur stóryrði um iðnaðarráðherra
og störf hans. Engin rök, aðeins
skætingur og viss óskhyggja um
að byggingu álvers seinki.
Stöndum saman
Bygging nýs álvers hefur aukið
bjartsýni Suðumesjamanna í at-
vinnumálum. Ekki er vafi á því að
takist vel til, mun færast nýtt líf í
atvinnumál á svæðinu. Við þurf-
um öll án tillits til pólitískra
skoðana að leggjast á eitt við að
styðja við bakið á þeim, sem að
elju og dugnaði hafa komið
málum svo langt að nú hyllir
undir byggingu álversins. Utan-
aðkomandi erfiðleikar geta tafið
fyrir, en það á ástæða til að fyrir-
líta þá stjómmálamenn sem leynt
og ljóst reyna að koma málinu
fyrir kattamef í flokkspólitískum
tilgangi. Það em óþurftarverk,
sem munu kosta Suðumesjamenn
mikið.
Á næstu dögum mun iðnað-
arráðherra leggja fram fmmvarp
á Alþingi um nýtt álver. Við
skulum fylgjast vel með því
hverjir styðja það mál og hverjir
reyna að tefja eða eyðileggja
málið.
Karl Steinar Guðnason (sign.)
Árshátíö
Árshátíð Golfklúbbs Suðurnesja verður haldin 2. mars
n.k.
Dagskrá:
Tekið á móti gestum með tónlist og fordrykk kl. 19.
Dinnertónlist: Steinar Guðmundsson og Kjartan
Már Kjartansson
Annáll: Valur Ketilsson
Rakarakvartettinn
Fjöldasöngur, Dansmeistari G.S., happdrætti, dans
fram eftir nóttu.
Veislustjóri: Albert K. Sanders. Mummi og Balli sjá
um danstónlist.
Miðapantanir í síma 54170 eða 14535.
Skemmtinefnd
Barnalæknir
hefur opnaö í Heilsugæslustöö Suöur-
nesja.
Símapantanir í afgreiöslu Heilsugæslu-
stöövarinnar í síma 14000.
Úlfur Agnarsson,
barnalæknir.
Eldey hf.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Útgerðarfélagsins Eldeyjar
hf. fyrir árin 1989 og 1990 verður hald-
inn á Glóðinni, Hafnargötu 62, Keflavík,
sunnudaginn 17. febrúar 1991 kl. 16.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar, stjórn félagsins
leggur til breytingar á 2. gr. samþykkta
félagsins, sem miða að því að rýmka til-
gang þess og markmið.
3. Önnur mál.
Hluthafar eru hvattir til að mæta vel og
stundvíslega.
Stjórnin