Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.02.1991, Side 20

Víkurfréttir - 14.02.1991, Side 20
JUt 'T STÆRSTA FRÉTTA -OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Víkurfréttir _____Fimmtudagur 14. febrúar 1991_ Auglýsingasimarnir eru 14717 og 15717. FAXnúmer blaðsins er12777 BUNDINN TVEGGJA ÁRA REIKNINGUR MEÐ 6.6% RAUNÁVÖXTUN, Þ.E. VEXTIR UMFRAM VERÐBÓLGU lt5Pf\Rl5JÓDURIMM BESTI KOSTURINN Veskiö fannst eftir langan viðskilnaö: TÝNDIST Á JÁRNBRAUTARSTÖÐ í NOREGI FYRIR NÍU ÁRUM Póstburðarstúlkan Þór- dís Jónsdóttir hafði ástæðu til að brosa nú á dögunum þegar henni barst óvæntur glaðningur alla leið frá Noregi. Veskið hennar hafði fundist eftir að hafa verið týnt í rúm níu ár. „Ég var að vinna á hóteli í Noregi sumarið 1981. Aleigan var í veskinu og Stórsjór gekk um 300 metra upp á land: VEGURINN HORFINN Á UM 20 METRA KAFLA Vegurinn milli Grindavíkur og Reykjanesvita er gjör- samlega horfinn á um 20 metra kafla við fiskeldisstöðina At- landslax. Stórsjór hefur skolað veginum í burtu, en vegurinn er um 300 metra frá ströndinni. Sigurður M. Agústsson, aðalvarðstjóri lögreglunnar í Grindavík, lýsti aðstæðum þannig í samtali við blaðamann, að engu líkara væri að veginum hafi verið skolað í burtu með háþrýsti„smúl“. Þar sem veg- urinn stóð áður er nú tandur- hrein klöpp. Þar skammt frá er sfðan komin risastór tjörn. Það er ljóst að ýmislegt hefur gengið á skammt frá fisk- eldisstöðinni. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem sjór gengur þetta langt á land, því fyrir réttu ári hvarf vegurinn á löngum kafla af sömu ástæðum. RESTAURANT Fyrsta flokks veitingasalur, ekki bara fyrir hótelgesti - heldur líka fyrir þig! SÍMI 92-15 222 fjórum dögum áður en ég fór heim týndi ég því á járnbrautarstöð“, sagði Þórdís í samtali við blaða- mann. „Það var síðan í október í fyrra sem ég fékk bréf frá gamalli konu í Noregi og í því stóð að hún hafði fundið veskið á járn- brautarstöðinni fyrir níu árum og ætlað að koma veskinu til skila. Hún hafi hins vegar sett veskið frá sér á það góðan geymslu- stað að það hafi gleymst í öll þessi ár. Nú er veskið hins vegar komið til skila eftir öll þessi ár og með öllum þeim verðmætum sem í því voru, skilríkjum og peningum“, sagði Þór- dís. Þórdís sagðist hafa komist að því að miklar verðbreytingar hafi orðið síðan 1981. Sem dæmi má nefna að í veskinu var rútumiði frá SBK sem sagði til urn það að ferð milli Keflavíkur og Reykjavíkur kostaði 20 krónur í þá daga og á þess-um níu árum hafa norsku krónurnar sem voru í veskinu tífaldað verðgildi sitt. LOKS GAF Á SJÓINN Það hefur lítið gefið á sjóinn hjá sjómönnum á smærri bátunum frá því í byrjun febrúar vegna ótíðar. Við höfum fréttir af neta- sjómönnum sem ekki gátu vitjað um net sín í ellefu daga og svona mætti lengi telja. Það var hins vegar rnikið líf við bryggjurnar í Sand- gerði á laugardaginn síðasta þegar bátarnir kornu í land hver á eftir öðrum með við- okkar, Hilmar Bragi, tók unandi afla. Ljósmyndarinn meðfylgjandi myndir. þá BILAR I ÖLLUM VERÐFL0KKUM -við allra hæfi BÍLAKRINGLAN GRÓFIN 7og 8 --- KEFLAVÍK - Hafnargötu 52 - Sími 14290 SPÓNARPARKET ÁALLT HÚSIÐ... Tekinn á ógnarhraða Lögreglan stöðvaði ungan ökumann á ógnarhraða á Hringbraut í Keflavík að- faranótt sl. laugardags. Þegar ökumaðurinn kom í radar lögreglunnar reyndist hann vera á 134 km hraða, en leyfilegur hámarkshraði er 50 km á þessum slóðum, við bestu skilyrði. Var ökumaðurinn sviptur ökuleyfinu á staðnum. Skýringin sem ökumaðurinn gaf var að hann væri að prófa bílinn. Ók undir vegartálma Ökumaður var fluttur á sjúkrahús til aðgerðar eftir að hafa ekið bifreið sinni undir vegartálma eða hlið við Seltjöm, á veginum að malar- náminu við Stapafell. Tálminn. sem er stórt og mikið járnrör þvert yfir veginn í um meters hæð, kom í fram- rúðu bílsins með fyrrgreindum afleiðingum. Ökumaðurinn fékk að fara heim að aðgerð lokinni. KANINN REKINN Körfuknattleiksráð ÍBK hefur rekið Bandaríkjamanninn Tom Lytle frá liðinu og í hans stað hefur verið ráðinn Banda- ríkjamaðurinn Tyrone Thorn- ton, sem er 24 ára, 205 sm hár leikmaður. Astæðan fyrir brotthvarfi Tom Lytle er sú að hann upp- fyllir ekki þær kröfur sem IBK gerir til erlendra leikmanna. Von er á hinum nýja leikmanni, Tyrone, til landsins í dag og jafnvel að hann leiki með ÍBK gegn ÍR í kvöld. MUNDII Nú er „pinninn“ búinn að prófa bílinn og næst fær hann að prófa að labba í nokkra mánuði..

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.