Morgunblaðið - 16.12.2015, Side 1
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2015
ÍÞRÓTTIR
Brottrekstur Þolinmæðin var ekki mikil hjá Magdeburg þrátt fyrir að Geir Sveinsson næði frábærum
árangri með liðið á síðasta tímabili. Boðinn nýr samningur síðasta vor en sagt upp í gær. 4
Íþróttir
mbl.is
AFP
Áfram Leikmenn Bayern München fagna sigurmarki Xabi Alonso gegn Darmstadt sem kom Bayern í 8-liða úrslit þýsku bikarkeppninnar í knattspyrnu.
Línumaðurinn
Atli Ævar Ing-
ólfsson var
markahæstur hjá
Sävehof með sjö
mörk þegar liðið
tapaði fyrir Ara-
näs 34:32 í
sænska hand-
boltanum í gær-
kvöldi. Aranäs er
í 2. sæti deild-
arinnar og Sävehof í 3. sæti og því
um mikilvægan leik að ræða.
Kristianstad er með fullt hús á
toppnum og vann stórsigur á
Malmö 27:17 en Ólafur Guðmunds-
son skoraði ekki fyrir Kristianstad
né Leó Snær Pétursson fyrir
Malmö.
Guif sem Kristján Andrésson
stýrir tapaði 29:22 fyrir Redbergs-
lid. kris@mbl.is
Atli Ævar
markahæstur
Atli Ævar
Ingólfsson
FRÉTTASKÝRING
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Átján mánaða dvöl Ólafs H. Krist-
jánssonar hjá danska úrvalsdeild-
arfélaginu Nordsjælland lauk
skyndilega í gær þegar honum var
sagt upp störfum og fyrrverandi
þjálfari liðsins, Kasper Hjulmand,
var ráðinn í staðinn.
Ólafur var ráðinn aðalþjálfari
Nordsjælland frá og með júní 2014
þegar Hjulmand, sem hafði starfað
hjá félaginu í sex ár, þrjú þau síð-
ustu sem aðalþjálfari, og óvænt
gert það að dönskum meisturum
2012, kvaddi til að taka við þýska
félaginu Mainz.
Ólafur hætti þá störfum hjá
Breiðabliki eftir tæplega níu farsæl
ár þar, einn Íslandsmeistaratitil og
einn bikarmeistaratitil, og flutti á
ný til Danmerkur þar sem hann lék
sjálfur í þrjú og hálft ár, þau síð-
ustu á sínum ferli sem leikmaður,
með Árósaliðinu AGF í úrvalsdeild-
inni.
Talsverður aðdragandi var að
ráðningu Ólafs til Nordsjælland.
Hann aðstoðaði félagið og Hjulmand
af og til á meðan hann var enn þjálf-
ari Breiðabliks, m.a. með því að
hjálpa til í undirbúningi liðsins fyrir
leiki í Meistaradeild Evrópu haustið
2012.
Nordsjælland hafnaði í sjötta sæti
af tólf liðum í dönsku úrvalsdeildinni
tímabilið 2014-15. Ólafur skilur við
liðið í 8. sæti þegar 18 umferðum af
33 er lokið á yfirstandandi tímabili.
Vegna fjölgunar í deildinni frá
næsta tímabili er liðið ekki í neinni
fallhættu og siglir lygnan sjó í tals-
verðri fjarlægð frá toppi og botni.
Eigendaskipti tilkynnt
í gærmorgun
Ekkert virtist í spilunum um
breytingar hjá Nordsjælland en í
gærmorgun var óvænt tilkynnt um
eigendaskipti hjá félaginu. Aðaleig-
andinn og formaðurinn Allan K.
Pedersen gaf þá út að hann hefði
selt enskum fjárfestum með Tom
Vernon í aðalhlutverki sinn hlut í fé-
laginu. Vernon þessi starfaði um
skeið hjá Manchester United við að
finna efnilega leikmenn og hefur um
árabil rekið akademíu fyrir unga
leikmenn í Gana.
Um leið var gefið út að Ólafi hefði
verið sagt upp störfum og Kasper
Hjulmand ráðinn á ný í sitt gamla
starf. Hann hafði verið atvinnulaus
síðan í febrúar en þá var honum sagt
upp hjá Mainz eftir aðeins átta mán-
uði í starfi.
Það kom síðan á daginn að þeir
Vernon og Hjulmand höfðu stefnt að
samvinnu um nokkurt skeið. Hjulm-
and staðfesti að hann hefði verið í
viðræðum við Vernon í nokkurn
tíma, fyrst um akademíu Vernons í
Gana, og síðan hefðu þeir rætt vítt
og breitt um samvinnu í unglinga-
starfi. Vernon lýsti í gær Nordsjæll-
and sem „krúnudjásni“ Norðurlanda
hvað unglingastarf varðar.
Voru líka með Randers í sigtinu
Hjulmand sagði við bold.dk í gær
að það hefði aðeins verið með nokk-
urra klukkustunda fyrirvara af sinni
hálfu sem Nordsjælland hefði komið
inn í myndina. Fram hefur komið að
Vernon hafi einnig verið með Rand-
ers í sigtinu.
Ólafur vildi ekki ræða uppsögnina
að sinni þegar Morgunblaðið hafði
samband við hann í gær þar sem
hann ætti eftir að fara yfir málin
með stjórn Nordsjælland.
Þrír íslenskir leikmenn eru á mála
hjá Nordsjælland. Guðmundur Þór-
arinsson hefur verið fastamaður í
liðinu, Adam Örn Arnarson hefur
spilað talsvert sem bakvörður og
Rúnar Alex Rúnarsson er vara-
markvörður liðsins.
Það kemur væntanlega í ljós á
næstu vikum eða mánuðum hvort
Ólafur hafi komið sér í þá stöðu með
vinnu sinni hjá Nordsjælland að
honum bjóðist fljótlega álíka starf í
Danmörku eða annars staðar í fram-
haldi af dvölinni á Norður-Sjálandi.
Forverinn ýtti Ólafi burt
Hjulmand mætti aftur til Nordsjælland með enska fjárfesta á bak við sig og
tók við liðinu á ný Segist aðeins hafa vitað af því með stuttum fyrirvara
Ólafur H.
Kristjánsson
Kasper
Hjulmand
Svavar Markússon var fremsti
hlaupari landsins á millivegalengdum
og meðal þeirra bestu í Evrópu á síðari
helmingi sjötta áratugar 20. aldar.
Svavar fæddist í Ólafsvík 1935 og
lést 1976. Hann keppti fyrir KR og átti
m.a. Íslandsmetin í 800, 1.000 og
1.500 m hlaupum en kom einnig við
sögu í fleiri hlaupum. Eitt eft-
irminnilegasta afrek Svavars var sigur
hans í 800 m hlaupi á minningarmóti
um Rudolf Harbig í Dresden 1957.
Svavar tók þátt í 800 og 1.500 m
hlaupi á ÓL í Róm 1960 og setti þá
m.a. Íslandsmet í 1.500 m hlaupi sem
stóð í rúmlega hálfan annan áratug.
Hann sat um árabil í stjórn FRÍ.
ÍÞRÓTTA-
MAÐUR-
DAGSINS
Eygló Ósk Gúst-
afsdóttir og Ant-
on Sveinn McKee
hafa verið út-
nefnd sundkona
og sundkarl árs-
ins 2015 af Sund-
sambandi Ís-
lands.
Af helstu af-
rekum Eyglóar
má nefna að hún
vann til bronsverðlauna á EM í 25
metra laug bæði í 100 og 200 metra
baksundi. Hún varð í 8. sæti í 200
metra baksundi á HM í 50 metra
laug og tvíbætti Norðurlandametið
í 200 metra baksundi, auk þess að
setja fjölda Íslandsmeta.
Anton Sveinn komst í undanúrslit
í 200 metra bringusundi á HM í 50
metra laug. Hann setti Íslandsmet í
bæði 100 og 200 metra bringusundi,
og tryggði sér sæti á ÓL í Ríó líkt
og Eygló Ósk. sindris@mbl.is
Anton og
Eygló best
Eygló Ósk
Gústafsdóttir