Morgunblaðið - 16.12.2015, Page 3

Morgunblaðið - 16.12.2015, Page 3
ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2015 Knattspyrnu-maðurinn Egill Jónsson hefur samið við Víkinga í Ólafsvík til næstu tveggja ára í kjölfar þess að þeir komust að samkomulagi við KR-inga um kaup á honum. Egill, sem er 24 ára miðju- maður, lék sem lánsmaður með Ólafsvíkingum á síðasta tímabili þeg- ar þeir unnu 1. deildina á mjög sann- færandi hátt en hann spilaði 17 leiki í deildinni og skoraði 2 mörk. Egill á að baki 37 leiki með KR og 9 með Sel- fossi í efstu deild.    Brasilíski landsliðsmaðurinnFred, leikmaður knatt- spyrnuliðs Shaktar Donetsk í Úkra- ínu, hefur verið úrskurðaður í eins árs keppnisbann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi. Fred féll á lyfjaprófi sem tekið var í Suður-Ameríkubikarnum í sumar, en bannið sem hann fékk á því að gilda fram á næsta sumar. Næsti leikur Shaktar er ekki fyrr en 18. febrúar, og því má segja að bann- ið gildi aðeins í fjóra mánuði. Sýni úr Fred reyndust innihalda frammi- stöðubætandi efni. Hann hefur hald- ið fram sakleysi sínu og hefur rétt til að áfrýja banninu.    Argentínumað-urinn Mar- celo Bielsa er nú talinn langlíkleg- astur til að taka við sem knatt- spyrnustjóri Gylfa Þórs Sig- urðssonar og fé- laga hjá Swansea. Bielsa býr yfir afar mikilli reynslu en hann hefur meðal annars stýrt lands- liðum Síle og Argentínu. Hann er 60 ára gamall og stýrði síðast Marseille í Frakklandi, en hætti þar í sumar vegna ósættis við starfsliðið sem kom að leikmannahópnum. Bielsa er þekktur fyrir yfirgripsmikla þekk- ingu á fótboltafræðunum, og áhrif sín á aðra knattspyrnustjóra, en sjálfur Pep Guardiola, þjálfari Bayern München, hefur til að mynda lýst honum sem besta knattspyrnustjóra í heimi.    Þýski handknattleiksmaðurinnChristian Sprenger hefur ákveðið að nýta ákvæði í samningi sínum við Þýskalandsmeistara Kiel og framlengja gildistíma hans til sumarsins 2017. „Ég er í góðu standi og þrái að afreka meira með þessu liði. Ég vil að reynsla mín nýtist í þessu unga liði svo að við náum okk- ar stóru markmiðum. Þar að auki get ég lært eitthvað nýtt daglega af Al- freð Gíslasyni [þjálfara], og ég á hon- um mikið að þakka. Það er líka bara gaman að spila í Kiel og fyrir okkar stuðningsmenn,“ sagði Sprenger, sem er 32 ára gamall og hefur verið afar sigursæll með Kiel síðan hann kom til félagsins frá Magdeburg árið 2009. Fólk folk@mbl.is Í KAPLAKRIKA Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is FH-ingar geta þakkað markverði sín- um, Ágústi Elí Björgvinssyni, að þeim tókst að leggja erkifjendur sína í Haukum í Olís-deild karla en liðin átt- ust við í Kaplakrika í gær. FH hrósaði sætum sigri, 28:27, þar sem Ágúst Elí varði skot frá Brynjólfi Snæ Brynjólfs- syni úr góðu færi í horninu undir lok leiksins. Haukar gátu þar stolið stigi en Ágúst kom í veg fyrir það og FH- ingar stigu stríðdans á heimvelli sínum þegar úrslitin lágu ljós fyrir. FH-ingar innbyrtu þar með tvö gríðarlega mikilvæg stig í fallbaráttu deildarinnar og það sem gerði sigurinn enn sætari fyrir þá svart/hvítu var að þeim tókst að stöðva sigurgöngu granna sinna, sem fyrir leikinn í gær höfðu ekki tapað leik í deildinni frá því 12. október og höfðu unnið níu leiki í röð. Menn ákveðnir í að selja sig dýrt ,,Þetta var gjörsamlega geggjað að ná að vinna þennan leik eftir allt baslið sem við höfum verið í á tímabilinu. Við vorum svolitlir klaufar undir lokin að hleypa Haukunum inn í leikinn og gefa þeim færi á að stela stiginu en Gústi sagði okkur að hleypa hornamann- inum inn og við gerðum það. Hann sá svo um að klára þetta fyrir okkur,“ sagði Einar Rafn Eiðsson við Morg- unblaðið en hann átti fínan leik á móti gömlu félögunum og var afar ógnandi á hægri vængnum. ,,Það var flott stemning í liðinu og menn ákveðnir í að selja sig dýrt. Við lögðum allt í söl- urnar og uppskárum eftir því. Það var gaman að stöðva gömlu félagana. Lík- lega hafa þeir vanmetið okkur eitthvað en það verður gott að fara með þennan sigur inn í jólafríið,“ sagði Einar Rafn. FH-ingar gáfu tóninn strax í byrjun leiksins. Þeir skoruðu þrjú fyrstu mörk leiksins og áttu Haukarnir í miklum erfiðleikum í sókninni gegn framliggjandi og hreyfanlegri vörn FH-liðsins. FH hafði forystuna allan tímann. Liðið náði fimm marka for- skoti snemma leiks og aftur í byrjun síðari hálfleiks en Íslandsmeistararnir eru þekktir fyrir allt annað en að gef- ast upp. Smátt og smátt söxuðu þeir á forskot FH-inganna og þegar ein mín- úta var eftir minnkaði Elías Már Hall- dórsson muninn niður í eitt mark. FH- ingar misstu boltann á klaufalegan hátt þegar um 25 sekúndur voru eftir og misstu að auki mann út af. En eins og áður er getið var Ágúst Elí hetja FH-inga þegar hann varði skot úr opnu færi frá Brynjólfi. Ágúst varði jafnt og þétt allan tím- ann en í góðri liðsheild FH, sem spilaði líklega sinn besta leik í vetur, voru Benedikt Reynir Kristinsson og Einar Rafn fremstir á meðal jafningja. Haukarnir voru mjög ólíkir sjálfum sér lungann úr leiknum. Fjarvera fyr- irliðans Matthísar Árna Ingimars- sonar veikti varnarleikinn og aldrei þessu vant náði Giedrius Morkunas sér ekki á strik á milli stanganna. Meistararnir gerðu sig seka um óvenjumarga tæknifeila en þeir Tjörvi Þorgeirsson og Janus Daði Smárason voru seigir í seinni hálfleik og náðu að koma Haukunum inn í leikinn. Hauk- arnir þurfa þó ekkert að örvænta. Þeir eru með fjögurra stiga forskot í topp- sæti deildarinnar en einhver væru- kærð og hugsanlegt vanmat var ríkjandi í herbúðum þeirra rauð- klæddu í gærkvöld. Sigurgangan stöðvuð af erkifjendunum Morgunblaðið/Styrmir Kári Óvænt Ásbjörn Friðriksson sneri aftur í lið FH í gærkvöldi, eftir að hafa misst af tveimur síðustu leikjum vegna meiðsla, og skoraði tvö mörk í sigrinum óvænta á Haukum. Án Ásbjörns tapaði FH 32:25 fyrir Haukum fyrir viku síðan.  Ágúst Elí hetja FH í Hafnarfjarðarslag  Fyrsta tap Hauka í tvo mánuði „Hann kemur til greina, eins og allir Íslendingar,“ sagði Heimir Hallgrímsson, annar þjálfara karlalandsliðs Íslands í knatt- spyrnu, um spænsk/íslenska bakvörðinn Diego Jóhannesson. Diego er 22 ára gamall og leikur með Real Oviedo, sem er í 3. sæti spænsku B-deildarinnar. Hann á íslenskan föður og hefur aldrei leikið landsleik, svo hann ætti að vera gjaldgengur í íslenska landsliðið. Diego er á sínu öðru tímabili með Real Oviedo en liðið vann sig upp úr C-deildinni í vor. Hann er upphaflega hægri kant- maður en hefur færst aftar á völlinn og er nú hægri bakvörður, sem Heimir og Lars Lagerbäck fylgjast með eins og mörgum öðrum: „Ég hef skoðað hann aðeins í þessum forritum sem við erum með. Við höfum rætt um hann, en leikmaður sem talar ekki ís- lensku þarf að vera talsvert mikið betri en aðrir til að komast í hópinn hjá okkur. Við munum samt klárlega fylgjast með honum, það er ekki vafi,“ sagði Heimir við Morgunblaðið í gær. „Hann á kannski ekki mörg tímabil að baki en er byrj- aður að spila svolítið á háu stigi, í leikstöðu sem við erum ekkert sérlega ríkir í. Við erum að fylgjast með honum eins og öllum öðrum sem eru gjaldgengir í íslenska landsliðið,“ sagði Heimir. Íslenska landsliðið undirbýr sig í vetur fyrir sitt fyrsta stórmót, EM í Frakklandi, og næst á dagskrá eru þrír vináttulandsleikir í janúar. Ísland mætir Finnlandi og Sameinuðu arab- ísku furstadæmunum 13. og 16. janúar í Abu Dhabi, og svo Bandaríkjunum í Los Angeles 31. janúar. Þetta eru ekki alþjóðlegir leikdagar, og keppni á Spáni því í fullum gangi. „Næsti séns fyrir hann yrði að verða valinn í landsliðsverkefni í mars. Hann er að spila í liði sem er á fullu í janúar. Ef hann myndi eiga glimrandi tímabil og fara með sínu liði upp í efstu deild á Spáni eða eitthvað slíkt, þá er aldrei hægt að segja aldrei. Dyr- unum er aldrei lokað á neinn,“ sagði Heimir. Aðspurður ítrekaði hann að Diego þyrfti að standa öðrum leikmönnum framar að getu, í ljósi þess að hann talaði ekki tungumálið: „Hann þarf að vera mun betri en aðrir leikmenn á öðrum svið- um, ef hann talar ekki tungumálið, til að komast í hópinn. Hann hefur ekkert verið með okkur og ætti væntanlega erfitt með að skilja það sem færi fram, þannig að hann þyrfti að hafa eitthvað meira fram að færa en aðrir,“ sagði Heimir. Diego hefur alla tíð búið á Spáni, en faðir hans er íslenskur og heitir Jón Már Jóhannesson. Diego hefur heimsótt Ísland nokkr- um sinnum, eins og fram kom í viðtali við hann á vefmiðlinum Fótbolta.net fyrir ári þar sem hann kvaðst kunna afar vel við landið og dreyma um að spila fyrir íslenska landsliðið einhvern tímann í framtíðinni. sindris@mbl.is Diego kemur til greina í landsliðið en þarf að vera mun betri en aðrir Heimir Hallgrímsson Kaplakriki, úrvalsdeild karla, Olís- deildin, þriðjudag 15. desember 2015. Gangur leiksins: 3:0, 5:2, 7:3, 9:4, 11:8, 13:10, 18:13, 21:18, 23:21, 25:21, 27:25, 28:27. Mörk FH: Benedikt Reynir Krist- insson 9, Einar Rafn Eiðsson 7/1, Jó- hann Birgir Ingvarsson 3, Halldór Ingi Jónasson 3, Andri Berg Haraldsson 2, Daníel Matthíasson 2, Ásbjörn Friðriksson 2. Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 16. Utan vallar: 16 mínútur. Mörk Hauka: Janus Daði Smárason 8, Tjörvi Þorgeirsson 7, Elías Már Halldórsson 5, Brynjólfur Snær Brynj- ólfsson 4, Heimir Óli Heimisson 1, Adam Haukur Baumruk 1, Einar Pétur Pétursson 1. Varin skot: Giedrius Morkunas 11, Grétar Ari Guðjónsson 2. Utan vallar: 4 mínútur. Dómarar: Gísli Jóhannsson og Haf- steinn Ingibergsson. Áhorfendur: 670. FH – Haukar 28:27

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.