Morgunblaðið - 16.12.2015, Page 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2015
ÍSHOKKÍ
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Skautafélag Akureyrar og UMFK
Esja færðust í gærkvöldi nær því að
komast í úrslitarimmuna um Íslands-
meistarartitil karla í íshokkí. Með sigr-
um í gærkvöldi færðust liðin fjær lið-
unum fyrir neðan, Skautafélagi
Reykjavíkur og Birninum í Hertz-
deildinni. Mörg stig eru þó enn eftir í
pottinum en SR og Björninn þurfa að
komast á góða siglingu á nýju ári til að
hrista upp í toppbaráttunni.
Esja hafði betur gegn Birninum eftir
mikla spennu, 4:3, í Laugardal en á Ak-
ureyri vann SA lið SR nokkuð örugg-
lega 5:1 en um var að ræða 15. umferð
deildarinnar.
SA er með 31 stig og Esja með 27.
SR er nú níu stigum á eftir með 18 stig
sem samsvarar þremur sigurleikjum.
Alls ekki útilokað að vinna upp slíkt for-
skot þar sem enn eru níu umferðir eftir
en innbyrðis viðureignir telja drjúgt
eins og í gærkvöldi. Björninn hefði get-
að komist þremur stigum á eftir Esju
en er þess í stað níu stigum á eftir.
Spenna í Laugardalnum
Esja lék í gærkvöldi án Ólafs Hrafns
Björnssonar sem tók út leikbann og
Gauti Þormóðsson þjálfari var einnig í
banni. Björninn tók tvívegis forystuna í
leiknum og komst í 3:1. Ekki dugði það
til því sigurviljinn var mikill hjá Esju
og skoraði liðið síðustu þrjú mörkin.
Sigurmarkið skoraði Tékkinn Patrik
Podsednicek í síðasta leikhlutanum,
korteri fyrir leikslok. Leikmenn Bjarn-
arins reyndu að bregðast við og undir
lokin tóku þeir til að mynda markvörð
sinn út af og settu inn á auka sóknar-
mann en Esja hélt út og fagnaði mikil-
vægum sigri.
Gunnar Guðmundsson, Andri Guð-
laugsson og Róbert Freyr Pálsson
skoruðu einnig fyrir Esju en mörk
Bjarnarins gerðu Andri Helgason, Úlf-
ar Jón Andrésson og Charles Williams
Andri og Jón áberandi
Á Akureyri unnu Íslandsmeistarar
SA nokkuð öruggan sigur á SR, 5:1. SA
komst í 3:0 í leiknum með tveimur
mörkum frá Andra Mikaelssyni og
einu frá hinum 15 ára gamla Heiðari
Kristveigarsyni. Miloslav Racansky
minnkaði muninn fyrir SR en Akureyr-
ingar svöruðu strax og slökktu þar með
neistann hjá SR. Þar var á ferðinni
Hafþór Sigrúnarson. Jón Benedikt
Gíslason innsiglaði sigur SA í þriðja
leikhluta en hann átti auk þess tvær
stoðsendingar í leiknum.
SA hefur fjögurra stiga forskot á
Esju á toppi deildarinnar en þessi lið
mætast í Laugardalnum fyrir jól.
Öruggur sigur Akureyringa í gær-
kvöldi er nokkuð athyglisverður fyrir
þær sakir að liðið lék án tveggja
sterkra varnarmanna, Ingvars Þórs
Jónarsson landsliðsfyrirliða og Orra
Blöndals.
Esja skoraði síðustu þrjú
Morgunblaðið/Golli
Augun á pökknum Ómar Skúlason markvörður Bjarnarins reynir að verjast Esjunni í gærkvöldi en hann þurfti fjórum sinnum að horfa á eftir pökknum í netið.
Esja vann Björninn 4:3 í spennuleik sem gæti átt eftir að skipta miklu máli
SA með öruggan sigur á SR þrátt fyrir skakkaföll Bilið í deildinni breikkar
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Knattspyrnuþjálfarinn Magni Fannberg er hættur
hjá sænska félaginu Brommapojkarna. Hann hefur
starfað þar í hálft sjöunda ár, síðast sem aðalþjálfari
karlaliðs félagsins sem lék í B-deildinni á nýliðnu
keppnistímabili en féll þaðan í haust.
Olof Mellberg, fyrrverandi landsliðsmaður Svía,
var fyrir skömmu ráðinn þjálfari liðsins í stað
Magna, sem var hinsvegar boðið að starfa áfram við
þjálfun hjá félaginu. Hann var áður þjálfari ung-
lingaliðs Brommapojkarna um árabil og vann þar
marga titla en félagið er í fremstu röð í unglinga-
flokkum í Svíþjóð.
„Ég ákvað að afþakka þetta boð og freista þess að
prófa eitthvað nýtt. Eftir allan þennan tíma hjá fé-
laginu finnst mér skynsamlegra að leita á önnur mið
frekar en að festa mig þar áfram til næstu ára,“ sagði
Magni en hann kvaddi félagið formlega með pistli
sem birtur var á heimasíðu Brommapojkarna í
morgun.
„Ég hef fundið fyrir áhuga annars staðar frá og
ætla að láta reyna á það. Mér finnst mest spennandi
að komast að í þjálfarateymi hjá einhverju af stærri
liðunum í Svíþjóð, Danmörku eða Noregi og ætla að
sjá til næstu vikurnar hvort eitthvað spennandi kem-
ur inn á borðið í þeim efnum,“ sagði Magni.
Hann tók nánast við nýju liði hjá Brommapojk-
arna fyrir ári, en félagið missti nær alla fastamenn
sína eftir að það féll úr sænsku úrvalsdeildinni haust-
ið 2014.
Magni hættur hjá Brommapojkarna
Hættur Magni Fannberg vonast eftir þjálfara-
starfi annars staðar á Norðurlöndunum.
England
B-deild:
Cardiff – Brentford ................................. 3:2
Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn
fyrir Cardiff.
Charlton – Bolton .................................... 2:2
Jóhann Berg Guðmundsson lék fyrstu 70
mínúturnar fyrir Charlton.
Derby – Bristol City................................. 4:0
Fulham – Ipswich..................................... 1:2
Huddersfield – Rotherham ..................... 2:0
Middlesbrough – Burnley ....................... 1:0
MK Dons – Sheffield Wednesday........... 2:1
Preston – Birmingham ............................ 1:1
QPR – Brighton........................................ 2:2
Staðan:
Middlesbrough 21 13 4 4 30:12 43
Brighton 21 11 10 0 31:20 43
Derby 21 11 8 2 32:13 41
Hull 20 11 5 4 29:13 38
Burnley 21 9 8 4 26:20 35
Ipswich 21 9 7 5 31:28 34
Cardiff 21 8 9 4 27:22 33
Birmingham 21 8 6 7 26:23 30
Sheffield Wed. 21 7 9 5 28:26 30
Brentford 21 8 5 8 30:30 29
Blackburn 21 6 10 5 22:18 28
QPR 21 7 7 7 26:27 28
Reading 20 7 6 7 26:23 27
Wolves 20 6 7 7 25:25 25
Nottingham F. 21 6 7 8 20:20 25
Preston 21 5 10 6 17:17 25
Fulham 21 5 8 8 34:37 23
Leeds 20 5 8 7 18:22 23
Huddersfield 21 5 6 10 22:30 21
MK Dons 21 5 4 12 17:28 19
Bristol City 21 4 7 10 20:37 19
Charlton 21 4 6 11 19:34 18
Rotherham 21 4 3 14 22:38 15
Bolton 21 1 10 10 16:31 13
Þýskaland
Bikarkeppnin, 16-liða úrslit:
Gladbach – Werder Bremen ................... 3:4
Aron Jóhannsson var ekki með Werder
Bremen vegna meiðsla.
Unterhaching – Leverkusen ................... 1:3
Bayern München – Darmstadt ............... 1:0
Erzgebirge Aue – Heidenheim ............... 0:2
KNATTSPYRNA
Olís-deild karla
FH – Haukar ........................................ 28:27
Staðan:
Haukar 18 15 0 3 490:385 30
Valur 17 13 0 4 439:392 26
Fram 17 10 1 6 414:396 21
ÍBV 16 8 1 7 416:401 17
Akureyri 17 7 2 8 410:414 16
Afturelding 16 7 1 8 365:369 15
Grótta 17 7 0 10 428:442 14
FH 18 7 0 11 445:496 14
ÍR 17 5 1 11 441:487 11
Víkingur 17 2 2 13 379:445 6
Danmörk
SönderjyskE – Bjerr/Silkeborg ........ 17:23
Árni Steinn Steinþórsson skoraði 4 mörk
fyrir SönderjyskE. Daníel Freyr Andrés-
son ver mark liðsins.
Svíþjóð
Redbergslid – Guif .............................. 29:22
Kristján Andrésson þjálfar Guif.
Kristianstad – Malmö.......................... 27:17
Ólafur A. Guðmundsson skoraði ekki
fyrir Kristianstad.
Leó Snær Pétursson skoraði ekki fyrir
Malmö.
Aranäs – Sävehof ................................ 34:32
Atli Ævar Ingólfsson skoraði 7 mörk fyr-
ir Sävehof.
HANDBOLTI
NBA-deildin
Indiana – Toronto............................... 106:90
Brooklyn – Orlando............................ 82:105
Detroit – LA Clippers ............. (frl.) 103:105
Atlanta – Miami .................................. 88:100
Chicago – Philadelphia ...................... 115:96
Memphis – Washington ..................... 112:95
Dallas – Phoenix ................................. 104:94
San Antonio – Utah ............................ 118:81
Denver – Houston ............................ 114:108
Portland – New Orleans .................. 105:101
Efst í Austurdeild: Cleveland 15/7, Chi-
cago 14/8, Toronto 16/10, Charlotte 14/9,
Indiana 14/9, Miami 14/9, Boston 14/10.
Efst í Vesturdeild: Golden State 24/1,
San Antonio 21/5, Oklahoma 16/8, Clippers
15/10, Dallas 14/11, Memphis 14/12.
KÖRFUBOLTI
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin:
Stykkishólmur: Snæfell – Grindavík .. 19.15
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olís-deildin:
Austurberg: ÍR – Grótta...................... 19.30
Í KVÖLD!
Þrándur Gíslason, línumaður hand-
knattleiksliðs Aftureldingar, var á
fundi aganefndar HSÍ í gær úrskurð-
aður í eins leiks bann. Í útskýringu
aganefndar segir að Þrándur hafi
gert sig sekan um „grófa óíþrótta-
mannslega hegðun“ eftir að leik
Hauka og Aftureldingar lauk, síðast-
liðið fimmtudagskvöld. Sendu dóm-
arar leiksins skýrslu til HSÍ um at-
vikið.
Haukar höfðu unnið leikinn, sem
fram fór á Ásvöllum, 26:19. Sam-
kvæmt lýsingu vefmiðilsins fimm-
einn.is missti
Þrándur stjórn á
skapi sínu eftir
leik og lét það
bitna á plaststól
sem hann sparkaði
í, áður en hann tók
hann upp og grýtti
frá sér.
Þrándur tekur
út bannið gegn
Fram annað kvöld,
en má mæta ÍBV í síðasta leik fyrir
jól á sunnudaginn. sindris@mbl.is
Í leikbann fyrir að kasta stól
Þrándur
Gíslason
Tilkynnt var á mánudaginn að
keppnin vinsæla um Ryder-bikarinn
í golfi muni fara fram á Ítalíu þegar
Evrópa keppir á heimavelli árið
2022. Mikill áhugi var á því að halda
keppnina en Ítalir, Þjóðverjar og
Austurríkismenn sóttust einnig eftir
því að halda keppnina. Það gerðu
einnig Danir, Portúgalar og Tyrkir
en drógu umsókn sína til baka.
Keppnin fer fram á tveggja ára
fresti eins og íþróttaunnendur
þekkja og er haldin í Bandaríkjunum
og Evrópu til skiptis. Næsta keppni
fer fram næsta
haust í Minne-
sota í Banda-
ríkjunum en
næsta keppni í
Evrópu verður í
París í Frakk-
landi árið 2018.
Ítalir ætla að
vera með
keppnina árið
2022 á Marco Simone-golfvellinum í
útjaðri höfuðborgarinnar Rómar.
kris@mbl.is
Ryder-bikarinn fer til Rómar
Merki Ryder Cup