Morgunblaðið - 16.12.2015, Blaðsíða 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 2015
„Ég er að gera mér vonir um að
þetta taki ekki nema 10 vikur. Eftir
átta vikur ætti ég að geta farið að
gera eitthvað og verð svo kominn á
fullt eftir 3-4 mánuði,“ sagði Brynjar
Ásgeir Guðmundsson, leikmaður Ís-
landsmeistara FH í knattspyrnu.
Óheppnin hefur elt Brynjar á
röndum síðasta hálfa árið, alla vega
hvað meiðsli varðar. Í fyrrakvöld
fótbrotnaði hann eftir örfáar mín-
útur í leik gegn Fjölni, og hann
handarbrotnaði eftir að hafa spilað
nokkrar sekúndur í Evrópuleik gegn
Inter Baku í lok júlí. „Þetta er eig-
inlega ótrúlegt, enda fékk ég senda
mjólk frá mömmu heim að dyrum
rétt áðan. Maður þarf að fara að
drekka meiri mjólk greinilega,“
sagði Brynjar léttur, en „á milli
brota“ gekkst hann undir aðgerð
vegna kviðslits, sem háði honum þó
ekki mikið í sumar.
„Ég hlakka bara til þess þegar
nýtt ár hefst og það er vonandi að
þessi ólukka hætti,“ sagði Brynjar,
sem náði að leika 12 leiki í Pepsi-
deildinni í ár. sindris@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Meistari Brynjar Ásgeir Guðmundsson, næstlengst til vinstri á mynd, fagn-
ar með félögum sínum Íslandsmeistaratitlinum sem FH vann í haust.
Brynjar fékk mjólkur-
sendingu frá mömmu
FRÉTTASKÝRING
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Eftir hálfan átjánda mánuð í stóli
þjálfara þýska 1. deildar liðsins í
handknattleik, SC Magdeburg, var
Geir Sveinssyni sagt upp störfum í
gærmorgun. Ástæðan er óviðund-
andi árangur það sem af er leiktíð-
inni en Magdeburg situr í 11. sæti af
18 liðum sem deildina skipa með 18
stig eftir 17 leiki.
Tæp tvö ár eru liðin síðan tilkynnt
væri að Geir tæki við þjálfun SC
Magdeburg sumarið 2014. Hann
hafði þá þjálfað austurríska liðið
Bregenz með góðum árangri um
tveggja ára skeið.
Geir var ráðinn til Magdeburg eft-
ir að nokkra leit að þjálfara. Haft var
eftir forráðamönnum félagsins með-
an á leitinni stóð að íslenskur þjálf-
ari væri efstur á óskalistanum eftir
góða reynslu félagsins af Alfreð
Gíslasyni en einnig hafði árangur ís-
lenskra þjálfara vakið athygli víða í
Þýskalandi. Patrekur Jóhannesson,
landsliðsþjálfari Austurríkis, var
meðal þeirra sem nefndir voru með-
an leitin að þjálfaranum stóð yfir.
Alfreð byggði upp veldi
SC Magdeburg er eitt af fornu
handboltaveldum í Þýskalandi. Liðið
var í fremstu röð á árum aust-
urþýska alþýðulýðveldisins en eins
og mörg önnur lið þess lands átti það
erfitt uppdráttar á fyrstu árum eftir
að þýsku ríkin voru sameinuð í byrj-
un tíunda áratugar síðustu aldar. Al-
freð Gíslason þjálfaði SC Magde-
burg frá 1999-2005 og undir hans
stjórn varð Magdeburg stórveldi í
evrópskum handknattleik og vann
Meistaradeild Evrópu auk þess að
verða þýsku meistari.
Síðasta áratuginn hefur SC
Magdeburg ekki náð sama flugi og
þeim árum sem Alfreð stýrði liðinu.
Framkvæmdastjóri félagsins hrakt-
ist frá störfum vegna skattamála
nokkrum árum eftir að hann sagði
Alfreð upp sem þjálfari. Síðan þá,
eða í nærri áratug, má segja að
handknattleikslið SC Magdeburg
hafi ekki náð sér á strik þangað til á
síðasta keppnistímabili, veturinn
2014/2015. Það sést e.t.v. best á að
Geir er áttundi þjálfari Magdeburg
síðan Alfreð hætti í árslok 2005.
Besti árangur í mörg ár
Á fyrst og einu heilu keppnistíð
undir stjórn Geir Sveinssonar hafn-
aði SC Magdeburg í fjórða sæti
þýsku 1. deildinnar sem er besti ár-
angur þess um langt árabil. Um leið
tryggði Magdeburg sér keppnisrétt
í EHF-keppninni eftir nokkurra ára
fjarveru með helstu félagsliða Evr-
ópu. Síðast en ekki síst lék Magde-
burg til úrslita um þýska bikarinn í
vor sem leið en tapaði í leik þar sem
úrslitin réðust í vítakeppni.
Almenn ánægja ríkti með störf
Geirs eftir keppnistímabilið í vor,
svo mikil að honum var boðinn nýr
samningur fram á mitt árið 2017.
Skjótt skipast veður í lofti. Árangur
liðsins það sem af er leiktíð þykir
ekki viðunandi að mati forráða-
manna Magdeburg þótt liðið sé kom-
ið í 16 liða úrslit EHF-keppninni þá
er 11. sætið í þýsku 1. deildinni ekki
nægjanlegt í umhverfi þar sem þol-
inmæði manna er lítil. Kornið sem
fyllti mælinn var átta marka tap fyr-
ir Göppingen á heimavelli á síðasta
laugardag, 32:24.
Geir Sveinsson vildi ekki tjá sig
um starfslokin þegar Morgunblaðið
leitaði til hans í gær.
Takmörk fyrir þolinmæði
Eftir hálft annað ár sem þjálfari SC Magdeburg var Geir Sveinssyni sagt upp
í gær Var áttundi þjálfarinn á tíu árum Skrifaði undir nýjan samning í maí
Morgunblaðið/Eggert
Atvinnulaus Geir Sveinsson er farinn frá Magdeburg eftir að hafa náð fjórða sætinu í Þýskalandi í fyrra.
Geir Sveinsson
» Fæddur 27. janúar 1964.
Lék með Val en einnig með
frönskum, spænskum og
þýsku félagsliðum.
» Fyrirliði íslenska landsliðs-
ins um árabil en alls lék Geir
340 landsleiki og er næst-
leikjahæsti leikmaður lands-
liðsins frá upphafi.
» Þjálfaði Val, Gróttu og U21
árs landslið Íslands áður en
hann tók við þjálfun Bregenz í
Austurríki 2014 og Magdeburg
tveimur árum síðar.
Man einhver eftir belgíska
fótboltamanninum Jean-Marc
Bosman? Hann lék með Standard
Liege og RFC Liege en síðan fjar-
aði ferill hans út með liðum í
neðri deildum Frakklands og
Belgíu. Hann lagði skóna á hilluna
32 ára gamall árið 1996.
Í gær voru liðin 20 ár frá ein-
um merkasta dómi íþróttasög-
unnar. Þá vann umræddur Bosm-
an mál fyrir Mannréttinda-
dómstóli Evrópu, eftir fimm ára
baráttu, og þar með gjörbreytt-
ust atvinnuréttindi fótbolta-
manna.
Þegar Bosman ætlaði að
yfirgefa RFC Liege og ganga til
liðs við Dunkerque í Frakklandi
þegar samningi hans var lokið
stóð belgíska félagið í vegi fyrir
honum. Það gat, samkvæmt
þeirra tíma lögum, krafist
greiðslu fyrir leikmanninn, þó
samningurinn væri runninn út, og
kom í veg fyrir félagaskiptin með
því að fara fram á upphæð sem
Dunkerque neitaði að greiða.
Með sigri Bosmans fyrir dóm-
stólnum 15. desember 1995
fengu knattspyrnumenn allt önn-
ur og betri réttindi og hafa notið
þeirra síðan. Þeir hafa verið
frjálsir þegar samningar þeirra
hafa verið útrunnir og getað sam-
ið við nýtt félag, án afskipta fyrri
vinnuveitenda.
Bosman sagði í viðtali við
Sky Sports í gær að hann hefði
fengið mikla hjálp frá FIFPro,
samtökum atvinnuknattspyrnu-
manna, og hvatti þau til dáða í
því að standa áfram vörð um rétt-
indi þeirra.
En Bosman sagði líka að eng-
inn fótboltamaður hefði haft
samband við sig og þakkað sér
fyrir þessa fimm ára baráttu þar
sem hann hefði í raun fórnað sín-
um ferli fyrir aðra. Laun heimsins
eru oft vanþakklæti.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
HEILSA OG LÍFSTÍLL
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, föstudaginn 18. desember
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
Morgunblaðið
gefur út
sérblað um
heilsu og lífstíl
laugardaginn
2. janúar.
Í blaðinu verður
kynnt fullt af þeim
möguleikum sem í
boði eru fyrir þá sem
stefna á heilsuátak
og lífstílsbreytingu