Víkurfréttir - 10.09.1992, Blaðsíða 10
„Góðan daginn og komdu
sæl, ég heiti Jón Jónsson".
Einföld setning og virðist ekki
erfið fyrir þann sem segir hana.
En málið er ekki svona einfalt.
Að bjóða góðan dag og kynna sig
er nefnilega meira mál fyrir
marga. Framkoma, kurteisi og
jákvætt viðhorf er ekki sjálfgefið
í fari fólks. En þetta, eins og
margt annað er hægt að komast
yfir og læra. Feimni hverfur. Þú
brosir. Þér líður vel.
Hvernig?
Fá leiðsögn.
Hvar?
í skóla!
Ha?
Greinarhöl'uiraur er staddur í
Perlusal á 3. hæð á Hafn-
argötunni í Keflavík. Tíu
strákarsem nú undirbúasig fyrir
fyrirsætukeppni herra sem
haldin verður í fyrsta skipti á
Suðumesjum sitja íhring. „Jæja,
strákar, nú er það leikræn tján-
ing. Sýnum blaðamanninum
hvemig við förum að. Gunni og
Skúli! Leikiði hunda!" Strák-
arnir gerðu það. Líka apa, hana og
fleira. Fóru létt með það og gerðu
það vel. En til hvers?
Kolbrún er nýkomin af nám-
skeiði hjá John Robert Powers
tísku- og modelskólanum í San
Francisco þar sem hún kynnti sér
ýmsar nýjungar. Þar var Model-
mynd boðin aðild að M.A.A.I. sem
eru samtök módelskóla. Modcl-
mynd var gefin kostur á að senda
þátttakendur í fyrsta skipti í lyr-
irsætukeppni erlendis næsta vor.
Verður haldin undankeppni á Is-
landi í velur þar sem valdar verða
fyrirsætur til að mæta fyrir Islands
hönd í keppninni.
Hér í opnunni gefur að líta mörg
Suðurnesjaandlit. fólk sem sótti
námskeið hjá Módel-mynd en við
námskeiðslok fá nemendur
myndamöppu, myndir eins og hér
má sjá. Þetla er okkar fólk. Ekki
vera hissa.
hvað íslenska konan heldur sér
mikið inni við þó svo bömin
séu oröin uppkomin og farin
jafnvel að heiman. Hún má
hugsa meira um sjálfa sig og
gera eitthvað fyrir sig. Huga að
útlitinu, klæðnaði og fleiru
skemmtilegu.
Fyrir þá sem hafa lokið við
námskeið hjá Model-mynd
gefst nú tækifæri á að sækja
framhaldsnámskeið. Þar fara
nemendur í orðsins fyllstu merk-
ingu „í föt" alvöru l'yrirsæta. Þeir
sýna fatnað frá verslunum á sviði
og sýningin er tekin upp á video
af vönum upptökumanni. I lokin
fá nemendur spóluna sem þeir
geta átt til minja eða sér til fram-
dráttar haft þeir áhuga á að reyna
sig í módelstörfum. Fleira
skemmtilegt er tekið fyrír á fram-
haldsstiginu, s.s. að koma upp í
pontu og tala í hljóðnema.
Mikið af Suðumesjafólki sólti
síðasta námskeið hjá Módel-
mynd. Kolbrún gefur því góða
einkunn. „Fólkið héðan var mcð
bestu nemendunum í öllum ald-
ursflokkum. Það kom mér á óvart
hvað krakkamir héðan eru með
góða húð og fallegt hár. En
mínusamir, sem þó hurfu fljótlega
eru allir á framkomusviðinu. Mér
finnst Suðurnesjanemendurnir ó-
öruggari í framkomu en t.d. fólk á
höfuðborgarsvæðinu og margir
áttu í vandræðum með að kynna
sjálfan sig. Þetta kom mér á óvart.
En það var gaman að fylgjast með
framförunum þegar á námskeiðið
leiö. Eg hélt samt að surnir ætluðu
að gefast upp í byrjun, því við
tökum framkomu fyrir á sérstakan
hátt en mjög uppbyggjandi.
Feimnin var brotin niður. I lokin.
á síðustu stigunum. m.a. í mynda-
tökunni brilleruðu Suðurnesja-
krakkarnir. Það var frábært að
vinna með þeim og gaman að sjá
framfarirnar. Eins vargaman að fá
eldri dömumar á námskeið því þær
stóðu sig ekki síður en ung-
lingamir. Mér finnst athyglivert
„Þetta er þáttur í „opna" strák-
ana. Þeir læra að koma fram. Það
er hluti af okkar prógrammi í
Módel-mynd. Við hjálpum nem-
endum okkar að bæta framkomu
sína og erum með uppbyggjandi
námskeið fyrir
afólk á öllum
aldri. Þá hjálp-
um við fólki að
koma sér á
framfæri ef það
hefur áhuga á
sýningar og eða
módelstörfum.
Förum í alla
helstu þætti
sem þarf að
hafa á hreinu ef
fólk vill verða
módel" sagði
Kolbrún Að-
alsteinsdóttir í
Módel-mynd í
viðtali við Vík-
urfréttir.
Kolbrún segir að meðal efnis á
námskeiðunum sé mataræði og
heilsa og auðvitað útlitið. „Það er
lögð mikil áhersla á innri fegurð.
Við viljum falleg módel og heil-
brigðasál íhraustum líkama. I dag
er mikil umræða um sflíkon og
megrun. Margar stúlkur hafa
fengið sjúkdóminn anorexia þegar
þær hafa farið í stífa megrun og
þurft að losa mörg kíló á stuttum
tíma. Við bendum á leiðir til að
passa línumar án þess að eiga
hættu á að lá megrunarveiki.