Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.09.1992, Page 18

Víkurfréttir - 10.09.1992, Page 18
18 Víkurfréttir 10. sept. 1992 ÍÞRÓTTIR - Umsjón: Hulda G. Geirsdóttir ALLT VITLAUST í SANDGERÐI! - Reynismenn komnir upp! __---------------- Fagnandi Revnismenn að leik loknuin. Reynismenn sýndu mikla hörku og komust upp í 3. deild með 3-0 sigri á Hvöt frá Blönduósi. Leik- urinn var gífurlega mikilvægur fyrir bæði liðin, því sigur varð að nást ef annað livort liðið ætti að eiga möguleika á að komast upp í þriðju deild að ári. Reynir valdi að spila með vindi í fyrri hálfleik og freista þess að ná forskoti fyrir hlé, sem tókst, þó ekki fyrr en rétt fyrir hálfleik, þegar Pálmi Jónsson skoraði. Segja má að allur fyrri hálfleikurinn liafi verið í járnum. gífurleg barátta á báða bóga og harka í leiknum. Síðari hálfleikurinn byrjaði ekki vel fyrir Reyni, því þegar u.þ.b. tíu mínútur voru liðnar af hálfleiknum var markaskorarinn Jónas G. Jón- asson komin inn fyrir vörn Hvatar þegar gróflega var brotið á honum. Dómarinn sá ekki ástæðu til þess að dæma víti þarna og urðu Reyn- ismenn æfir. Guðmundur Hilm- arsson þjálfari og leikmaður hljóp þá að dómaranum til að mótmæla, og dómarinn féll við með ein- hverjum hætti. Það skipti engum togum að Guðmundur fékk að líta rauða spjaldið. Þannig að Reyn- ismenn voru einum færri, á móti vindi og aðeins með eitt mark í forskot í leik sem varð að sigrast með tveggja marka mun! En við þetta mótlæti efldust Sand- gerðingar og settu allt á fullt. Annað markið skoraði Jónas og hann bætti svo þriðja markinu við stuttu síðar. Tuttugu mínútum fyrir leikslok máttu Reynismenn svo sjá á bak öðru leikmanni, þegar Þórður Þorkelsson var rekinn af leikvelli. Reynir lét þó ekki deigan síga og hélt sínu lil leiksloka. Þar sem Höttur tapaöi fyrir HK, og þessi leikur vannst með meira en tveggja marka mun komust Reynismenn upp í þriðju deild. I tilefni dagsins höfðum við samband við annan þjálfara liðs- ins, Guðmund Hilmarsson og spurðum hann hvernig honurn hefði fundist leikurinn. „Þetta var nú liálf ótrúlegur leikur, ég er nú búin að spila marga leiki, en þessi sló öllu við. I fyrsta Iagi var veðrið mjög slæmt, en við völdum að spila með vindi í fyrri hálfleik. Fyrsta markið lét standa á sér, en þegar það kom létti pressunni á okkur. Auðvitað var ágætt að vera 1-0 yfir í hálfleik, en leikurinn var langt frá því að vera búin. Svo í seinni hálfleik misstum við af víti eftir augljóst brot. Eg missti kannski svolitla stjórn á mér og hljóp að dómaranum. Hann steig eitthvað til hliðar og féll við. Hon- um fannst hann verða að refsa ein- hverjum, og það var ég sem var rekinn út af. Mér leið auðvitað óg- urlega illa, fannst ég vera að skemma fyrir strákunum, þjálfarinn að láta reka sig út af! En strákarnir bættu bara við sig. Hver einasti maður lagði sig fram hundrað pró- sent meira.“ Aðspurður um það hvernig þessi góði árangur hefði náðst sagði Guömundur að mark- miðið hefði verið frá upphafi að fara með liðið upp. Þeir Pálmi byggja á reynslu sinni sem leik- menn í FH til margra ára. „Við vildum leiða eitthvað af því sem við kunnutn inn í knattspyrnuna hér. Þetta byrjaði frekar hægt í vetur, en mætingin og áhuginn óxu jafnt og þétt og þannig fór skriðan af stað. Þessir strákar hafa ekki haft mikið sjálfstraust og þeitn hefur kannski aldrei verið kennt nógu mikið. Þá vantaði tækifæri og traust, en þetta eru margir mjög efnilegir fót- boltamenn. Þetta lið sem heild er efnilegt, og á eftir að gera góða hluti," sagði Guðmundur. Þjálfarar fyrir næsta ár hafa ekki verið ráðnir, en endurráðning Guð- mundar og Pálma er inni í mynd- inni. Við óskum Reynismönnum og Sandgerðingum öllum til hamingju með 3. deildar sætið! • Þessir strákar l'engu verðlaun fvrir að vera duglegastirí Körfu- boltaskóla UMFN. Ljósm.: Huida Körfubolti: Reykjanesmótið í fullum gangi Reykjanesmólið í körfu er í fullum gangi og hafa sex leikir farið fram. Kell- víkingar eru efstir eftir þessa sex leiki, hafa sigrað alla andstæðinga sína. A þriðju- dagskvöld sigruðu þeir Grindvíkinga 95-106 og sl. föstudagskvöld sigruðu þeir Njarðvíkinga 107-109 í æsispennandi og skemmti- legum leik. Næsti leikur fer fram annað kvöld, en þá mætast UMFN og UMFG í Ljónagryfjunni. Úrslit leikja til þessa: ÍBK - Haukar.. 101-95 Haukar-UBK .... 105-82 UMFN-ÍBK...... 107-109 UMFG - Haukar .. 88-118 UBK - UMFN7 .... 4-95 UMFG -ÍBK......95-106 Síðasta golfstigamótið ásunnudag Síðasta stigamótið í golfi átti að fara fram í Leiru sl. sunnudag en var frestað vegna veðurs. Mótið hefur verið sett á næsta sunnudag og vonandi verður veðrið belra þá. A laugardag verður skip- stjóra- og útgerðarmanna- mótið í Leirunni. Körfuskóla UMFN slitið Körfuknattleiksskóla UMFN lauk í síðustu viku. Verðlaun voru veitt þeim krökkum er þóttu skara fram úr á hinum ýrnsu sviðum. Verðlaunin voru veitt í háltleik í leik UMFN og ÍBK í Reykja- nesmótinu sl. föstudag. Verðlaun fyrir mestar framfarir hlutu: Guð- mundur Jónsson, Páll Þórðarson, Elín Ólafsdóttir, Eiríkur D. Krist- insson og strákur að nafni Sigurður, sem við vitum því miður ekki föð- urnafnið á. Fyrir einn á móti einum hlutu verðlaun: Atli Júlíusson, Ör- lygur Sturluson, Jón Björn Ól- afsson, Davíð Jón Kristjánsson og Ragnar H. Ragnarsson. Duglegastir voru svo þeir Ólafur Hrafn Brynj- ólfsson. Logi Gunnarsson, Einar Gíslason og Borgar Már Gunn- laugsson. Bestu vítaskytturnar voru: Atli Júlíusson, Þórður F. Brynjarsson, Jón Björn Ólafsson, Davíð Ingi Jóhannsson og Sigurður Kjartansson. Þjálfarar skólans voru Jóhannes Kristbjörnsson leikmaður með mfl. UMFN og Paul Colton, hinn nýi þjálfari Njarðvíkinga. Snóker: Fyrsta Þ-mótið Fyrsta Þ-mótið í snóker fór fram á Knattborðsstofu Suð- urnesja sl. þriðjudagskvöld. Þessi mól munu öll verða á dagskrá á þriðjudagskvöldum í vetur og er leikið með einum ás. Fjórtán spilarar tóku þátt, sem verður að teljast góð þátt- taka á fyrsta móti tímabilsins. Tveir meistaraflokksmenn tóku þátt og voru báðir slegnir út, annar í riðlinum og hinn í und- anúrslitum. En úrslit urðu þau að Sigurður Guðmundsson sigraði Þorstein Waltersson í úrslitaleik 3:1, eftir að hafa slegið út Börk Birgisson í und- anúrslitum, 3:2. I úrslitum um þriðja sætið spilaði Ingimundur Magnússon við Börk Birgisson og sigraði Ingimundur 3:2. Spilarar eru hvattir til að mæta í þessi mót, þar sem allir eiga möguleika á sigri því spil- að er með einum ás. Nánari upplýsingar fást hjá Knatt- borðsstofu Suðurnesja og sím- inn þar er 13822. Margir í leikbann Á síðasta fundi aganefndar KSÍ voru níu Suðumesjamenn úrskurðaðir í leikbann. Það er eins gott fyrir Reyni að úrslitakeppnin er búin, því fimm leikmenn meistaraflokks Reynis fengu á sig leikbann. Það voru þeir Antony J. Stissy, Guðmundur Hilmarsson. 2 leiki. Þórður Þorkelsson, Arnmundur Sigurðsson og Ævar Finnsson. Einnig fengu tveir leikmenn 2. flokks Reynis bann. Tveir Víðismenn fengu bann, þeir Vilhjálmur Einarsson og Björn Vil- helmsson, sem fékk tvo leiki í bann. Njarðvíkingar spiluðu á Blönduósi -við vígslu nýs í- þróttahúss Meistaraflokk UMFN í körfu var um síðustu helgi boðið að leika vígsluleik í nýju íþróttahúsi á Blöndu- ósi. Njarðvíkingar léku þar við lið Tindastóls og máttu þola tap. Þrátt fyrir tapið er atburðurinn skemmtilegur og heiður fyrir Njarðvík- inga að vera boðið. Bridsf élagið Muninn, Sandgerði Tólf pör spiluðu tví- menning sl. miðvikudag í Björgunarsveitarhúsinu í Sandgerði. Úrslit urðu þau að í fyrsta sæti urðu þeir Ingimar Sumarliðason og aldursforseti félagsins, Mar- on Bjömsson sem cr 81 árs. Úrslit urðu annars þessi: 1. Maron Björnsson - Ingi- mar Sumarliðason ... 198 2. Magnús Magnússon - Sigurjón Jónsson.. 182 3. Einar Júlíusson - Björn Dúason..... 180 4. Eyþór Jónsson - Víðir Jónsson.... 177 5. Birkir Jónsson - Arnór Ragnarsson ... 173 6. Garðar Garðarsson - Lárus Ólafsson...172 Ál'ram verður spilað næstu miðvikudaga í Björg- unarsveitarhúsinu og eru allir velkomnir, spilarar sem áhorfendur.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.