Morgunblaðið - 22.12.2015, Side 1
ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2015
Reynsluakstur Njáll Gunn-
laugsson reynsluekur
Mitsubishi Out-
lander PHEV.
Hann er ánægð-
ur með verð og
eyðslu og einn-
ig þykir bíllinn
afar hljóðlátur
Alpine margmiðlunartæki með
leiðsögukerfi fyrir þá sem víða rata
Jólagjöf ferðalangsins
Reykjavík - Raufarhöfn - Róm
Síðumúla 19 • Sími 581 1118 • nesradio.is
B
reska bílaritið Autoexpress hefur tekið saman
lista yfir öruggustu bílana sem fáanlegir eru nú
til dags.
Brúkaði blaðið niðurstöður árekstraprófana
Euro NCAP til að draga upp listann. Segir það engan vafa
leika á því að öryggi bíla hefur aukist undanfarin ár. Síð-
asta áratuginn hafi nýjungar orðið gríðarlegar og hámark
þeirra sé að sumir bílar geti nú tekið fram fyrir hendurnar
á ökumanninum í neyð til að víkja honum og bílnum undan
slysi.
Fimm stjörnu gæðavottun
Sérfræðingar Euro NCAP úthluta bílum stjörnum, að há-
marki fimm, að loknum ströngum prófunum. Eru þau til
stöðugrar þróunar og endurskoðunar og eru prófin í ár
sögð enn strangari en fyrr og því erfiðara að hljóta fullt
hús stjarna en nokkru sinni fyrr.
Ávinningurinn af því að hreppa fimm stjörnur er mikill,
hér þykir vera um að ræða gæðavottun bíls og slök út-
koma gæti hamlað sölu. Í prófinu er líkt eftir árekstri á
misjafnlega miklum hraða við mismunandi hindranir, beint
framan á bílinn eða á hlið hans. Í bílunum eru fullkomnar
tilraunadúkkur alsettar skynjurum og eru í hlutverki far-
þega, fullorðinna, barna og kornabarna. Með skynjurunum
geta tæknimenn reiknað út hver áhrifin hefðu orðið á
raunverulegt fólk.
Þegar öryggi gangandi vegfarenda er mælt er bílunum
ekið á annars konar tilraunabrúður. Á grundvelli mælinga
er reiknað út hversu mikið eða lítið öryggi gangandi veg-
farenda er; hversu alvarleg slys gæti hugsanlega orðið.
Loks er tekið tillit til öryggis- og hjálparbúnaðar bíls við
ákvörðun stjörnugjafar hans.
Bestur þótt þriggja ára sé
Á prófum Euro NCAP eru bílar flokkaðir í marga flokka,
allt frá litlum borgarbílum upp í stóra fjölnotabíla og jafn-
vel sendibíla. Samkvæmt útreikningum Autoexpress er
Volvo V40 – meira að segja þremur árum eftir að hann
kom fyrst á götuna – öruggasti fáanlegi bíllinn í Bretlandi í
dag. Er hann sá eini sem fengið hefur að meðaltali yfir
90% einkunn í öllum þáttum prófs Euro NCAP.
Efstir í hinum ýmsu flokkum urðu sem hér segir:
1. Öruggasti minnsti fjölskyldubíllinn: Volvo 40
2. Öruggasti smájeppinn: Vauxhall Mokka
3. Öruggasti forstjórabíllinn: BMW 5 serían
4. Öruggasti stóri fjölskyldubíllinn: BMW 3 serían
5. Öruggasti litli fjölnotabíllinn: VW Touran/Ford S-Max
jafnir
6. Öruggasti stóri fjölnotabíllinn: Ford Galaxy
7. Öruggasti stóri jeppinn: Volvo XC90
8. Öruggasti smábíllinn: Renault Clio
9. Öruggasti sendibíllinn: Ford Transit Custom
Öruggastur í flokki borgarbíla var Toyota iQ, en Volkswa-
gen up!, SEAT Mii og Skoda Citigo hlutu nánast sömu ein-
kunn og fengu raunar hærri einkunn hvað varðar öryggi
barna en iQ.
agas@mbl.is
Enginn stenst Volvo snúning hvað öryggið varðar
Volvo V40 öruggastur
Volvo V40 er enn
öruggasti bíllinn þótt
þriggja ára sé.
BÍLAR