Morgunblaðið - 22.12.2015, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2015
2 BÍLAR
S
tórborgir heimsins hafa
upp á margt að bjóða:
söfn full af ómetanlegum
listgripum, leikhús og
óperur, óviðjafnanlega veitinga-
staði og verslunargötur þar sem
má klára kortaheimildina í einum
hvelli. En bílaáhugamenn sjá ann-
an stóran kost við að ferðast: úti í
heimi er oft hægt að finna fallega
bíla, og það jafnvel án þess að
borga sig inn á safn. Í sumum
borgum má finna drossíur í
löngum röðum og aldrei að vita
hvenær handan við næsta horn
kemur í ljós enn eitt augnakon-
fektið úr áli, stáli og koltrefjum.
Stórborgirnar eru ekki allar jafn
spennandi að þessu leyti. Margur
hefði t.d. haldið að í lífskúnst-
neraborginni París, eða fjármála-
höfuðborginni New York væru
Ferraríar og Rollsar við hvert fót-
mál. En svo er aldeilis ekki og
ástæðurnar mögulega að á Man-
hattan er varla pláss fyrir einka-
bíla, og að í París hafa þeir það fyr-
ir sið að nudda sér og mjaka inn í
stæðin svo að dýrt væri að halda
milljón dollara kagganum í horf-
inu.
Hvert á þá að setja stefnuna?
Hér að neðan er listi yfir nokkrar
borgir þar sem einstaklega fallegir
bílar eru hluti af landslaginu:
Miami Beach
Það var ekki að ástæðulausu að
leynilöggan Sonny Crockett ók
um á Ferrari í sjónvarpsþáttunum
Miami Vice. Hann hefði stungið of
mikið í stúf á venjulegum bíl. Í
Miami býr ríka, fræga og fallega
fólkið og allir taka stefnuna á
Miami Beach á flottu bílunum sín-
um.
Miami Beach er lítil ræma úti
fyrir ströndum sjálfrar Miami-
borgar. Þar standa stór hótelin
hlið við hlið eftir ströndinni, og
léttklætt, sólbakað fólk spókar sig
á hvítum sandinum. Ekki er mikið
pláss fyrir bíla á eyjunni og dýrt að
leggja ef tekst yfir höfuð að finna
laust stæði. En samt virðist ein-
hvernveginn alltaf pláss á besta
stað fyrir ofursportbíla.
Er best að taka stenuna á
Ocean Drive, í Art-Dekó-hverfinu.
Kaffihús, veitingastaðir og veit-
ingahús fylla þessa strandgötu og
þangað kemur aðallið bæjarins til
að sýna sig og sjá aðra. Er leitun
að þeim stað þar sem finna má
fleiri Rolls-Royce dreka og Ferrari-
bombur á hvern ferkílómetra og
oftar en ekki að bak við stýrið sit-
ur einhver rapphetjan.
Það sem setur punktinn fyir i-ið
eru allir klassísku amerísku bílarn-
ir sem oft búið er að „pimpa“ og
dekra við, eins og rapparanna er
von og vísa, og eiga engan sinn
líka í öllum heiminum.
London, og þá sér í lagi
Knightsbridge
Menn þurfa að vera sterkefnaðir
til að búa í London, enda leigan
dýr. Og ef fólk er efnað á annað
borð, þá hefur það efni á að eiga
fínan bíl. Enda er það svo, þegar
gengið er um fínni hverfi borgar-
innar, að þar er hægt að finna
Bentley og Aston Martin nánast í
öðru hverju stæði. Bílarnir verða
að vera úti á götu enda húsin
byggð fyrir þann tíma að gert væri
ráð fyrir bílskúr með hverri íbúð.
Bílaæðið nær hámarki í
Knightsbridge, og þá alveg sér-
staklega í næsta nágrenni Har-
rods-verslunarinnar. Umhverfis
verslunina hringast hver drauma-
bílinn á fætur öðrum, og bíður eft-
ir því að eigandinn komi út úr búð-
inni klyfjaður innkaupapokum. Er
margt leiðinlegra en að spássera
um hverfið og sjá þau undur á fjór-
um hjólum sem ber fyrir augu.
Þá margir eðal-framleiðendur
eru með sýningarsali í Knights-
bridge: Ferrari-búð er stutt frá
Hyde Park Corner-neðanjarð-
arlestarstöðinni, McLaren er á
móti útganginum á Knightsbridge
stöðinni, og Lamborghini-búðin
hjá South Kensington-stöðinni,
þeirri sem er næst stóru söfnun-
um. Handan við hornið hjá Lam-
borghini er sparibílaumboðið HR
Owen með notuðu bílana til sýnis
og m.a. úrval af Maserati.
Annar bílabúðakjarni er í Mayfa-
ir hverfinu, umhverfis Berkeley
Square. Þar eru Bentley, Rolls-
Royce og Porsche með sína sali.
Mónakó
Litla furstadæmið á Frönsku ri-
víerunni er í algjörum sérklassa.
Þangað flykkjast milljarðamær-
ingarnir til að fá skjól frá ok-
ursköttum annarra landa, og allir
virðast þeir ekki getað skotist út í
búð eftir potti af mjólk á bíl sem
kostar minna en ævilaun verka-
manns. Exótískir ofursportbílar
eru hvert sem litið er og sama má
segja um íburðarmikla lúxusbíla
sem þættu hér um bil of góðir fyrir
kóngafólk.
Hitt þykir líka mjög sérstakt, að
margir bílarnir í bænum eru svo
fágætir og dýrir að þeir ættu helst
að vera á safni undir glerkúpli.
Í ferðahandbókunum er fólki
sagt að kíkja á höllina sem gnæfir
yfir byggðinni, heimsækja spilavít-
ið eða sjóminjasafnið, en bílaunn-
endur ættu að reyna að finna inn-
ganginn að næsta bílastæðahúsi.
Undir byggðinni er nefnilega hálf-
gert hellakerfi neðanjarðar bíla-
stæðahúsa og þar stilla glæsikerr-
urnar sér upp eins og ef
bílasýningu hefði verið troðið í
sardínudós.
ai@mbl.is
Áfangastaðir fyrir bílaunnendur
Ljósmynd / Flickr – Phillip Pessar (CC)
Korvetta, árgerð 1968 gleður vegfarendur á Miami Beach. Þar blómstrar ást Bandaríkjamanna á fallegum bílum.
Ljósmynd / Wikipedia – Ramón (CC)
Forláta Lamborghini Murcielago fyrir framan verslun Harrods í London. Búðin verkar eins og
segulstál á sterkefnað fólk á eftirsóttum bílum. Allt um kring eru áhugaverðar bílabúðir.
Ljósmynd / Flickr – CarSpotter (CC)
Lögregluþjónar hafa afskipti af ökumanni Porsche á götum Mónakó. Jafnvel á skrilljón
króna sportbíl þurfa menn að fylgja umferðarlögunum í agnarsmáa furstadæminu.
Þar sem flottir bílar
eru hluti af landslaginu