Morgunblaðið - 22.12.2015, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2015
4 BÍLAR
M
itsubishi hefur átt betri
daga á bílamarkaði
heldur en á síðustu
árum. Meðan fyr-
irtækið var undir verndarvæng
stóru Mitsubishi-samstæðunnar
og með aðgang að djúpum vösum
hennar lék allt í lyndi. Svo var
þessi þáttur aðskilinn og bíla-
framleiðsluhlutanum gert að
standa á eigin fótum. Eins og í
öðru uppeldi gekk það brösulega
til að byrja með en hefur svo gert
merkinu gott og nú koma áhuga-
verðir bílar aftur frá þessum fyrr-
verandi risa. Einn þeirra er Out-
lander PHEV-tvíorkubíllinn sem
núna hefur fengið andlitslyftingu
til hins betra.
Sneggri upp en áður
Fyrsti Outlander PHEV-bíllinn
kom á markað snemma árs 2014
og hefur hann selst mjög vel, ekki
síst fyrir þá staðreynd að hann var
verðlagður á svipuðum nótum og
dísilútgáfa Outlander. Gamli bíll-
inn þótti frekar óspennandi í útliti
en Mitsubishi hefur bætt úr því
með þessari andlitslyftingu. Kom-
inn er nýr framendi með díóðu-
ljósum og meira krómi sem og ný
afturljós. Nýi bíllinn notar sömu
tveggja lítra bensínvélina og áður,
sem og sömu rafmótora en CO2
útblástur hefur minnkað úr 44 g/
km í 42 g/km og þar af leiðandi
hefur eyðslan minnkað enn frekar.
Það sem gerir PHEV-bílinn svona
sniðugan kost er að þeir 52 km
sem að hann kemst á hleðslunni
dugar jafnvel mörgum í daglegum
akstri til og frá vinnu. Við fengum
bílinn til prófunar í talsverðu
frosti, allt að 10 stigum og hleðsl-
an dugði ekki lengi í þeim bruna-
gaddi. Sem betur fer er hann fljót-
ur að hlaða smávegis rafmagni
inn á rafhlöðuna þegar bensín-
er að komast að honum en nær
hefði verið að hafa hann vinstra
megin.
Ódýrari kostur
Outlander PHEV fær talsvert
meiri búnað en áður og má í því
dæmi benda á bakkmyndavél og
upphitað stýri. Verðið hefur því
hækkað örlítið eins og búast mátti
við en alls ekki of mikið. Einn
helsti kosturinn við bílinn er að
verðinu er stillt í hóf ólíkt því sem
gerist annars staðar, þar sem
kúnninn þarf að borga meira fyrir
vélin er í gangi svo að jafnvel í inn-
anbæjarakstri nær hann að taka
af stað á rafmagni eingöngu ef
hann er ekki botnaður. Þannig
nær hann að spara umtalsvert
eldsneyti jafnvel þótt rafhlaðan sé
næstum tóm. Með því að breyta
og uppfæra svo hugbúnað bílsins
er hann nú sneggri af stað en
hann er heilum tveimur sekúnd-
um fljótari upp í 40 km hraða.
Eins og áður er bíllinn rúmgóður
og sér í lagi fyrir farþega sína.
Gott fótapláss er í aftursætum en
öryggisbelti fyrir miðjufarþega er
frekar flókið með tveimur fest-
ingum svo það er ekki á barna
meðfæri. Farangursrými gæti ver-
ið betra en taka þarf tillit til þess
að rafhlaðan er undir því svo það
tekur frá dýptinni, en á móti kem-
ur að lengd þess er vel viðunandi.
Mun hljóðlátari
En hvernig er svo að aka nýju
útgáfunni? Mörgum blaðamönn-
um þótti bensínvélin í grófari
kantinum sem og fjöðrun hans og
einmitt þess vegna hefur Mitsub-
ishi unnið í þeim þáttum sér-
staklega og reynt að bæta úr
þeim. Fjöðrunin hefur fengið yf-
irhalningu þannig að hún skilar
ekki eins miklu veghljóði upp í ká-
etuna. Bíllinn er samt sem áður
frekar laus á fjöðrun og á það til
að missa fljótt grip á afturhjólum
þegar fer að reyna á hann á laus-
ara undirlagi. Búið er að vinna í að
hljóðeinangra bílinn betur með
þykkara gleri og meiri hljóðein-
angrun og hefur það tekist vel.
Einnig var loftflæðið endurbætt
kringum hliðarspegla og settir
þéttari dyrakantar. Í fyrri gerð
PHEV fannst undirrituðum skipt-
ing á milli rafmótora og bensín-
vélar aðeins hikandi en í þessum
bíl er hún algjörlega hnökralaus.
Eins veitir hann meira viðbragð í
stýri sem gefur ökumanni meiri
tilfinningu fyrir akstrinum. Ókost-
ur tvíorkubíla eins og Outlander
PHEV er að þeir eru með stiglausa
sjálfskiptingu sem er ekki
skemmtilegur búnaður þegar
reynt er á bensínvélina. Annar
ókostur við skiptinguna er hversu
næm hún er og þegar reynt er að
setja hann í hlutlausan þarf að
beita mikilli nákvæmni til að lenda
ekki í bakk eða áframgír. Loks er
takkinn fyrir stöðustillingu fyrir
framan gírstöngina svo að erfitt
Njáll Gunnlaugsson reynsluekur Mitsubishi Outlander PHEV
Mesta breytingin eftir andlitslyftingu er á framenda bílsins sem er mun ásjálegri með endurformuðum ljósum og stuðara og meira krómi.
Ennþá sér á parti
Farangursrými nær nokkuð langt inn í bílinn en gólfið er frekar hátt vegna rafhlöðunnar undir því.
Nýjar og endurformaðar 18
tomma heilspeyptar álfelgur
setja mun meiri svip á bílinn.
Kostir: Hljóðlátur, eyðsla, verð
Gallar: Farangursrými, sjálfskipting