Morgunblaðið - 22.12.2015, Blaðsíða 5
nýrri tækni. Það sést best á því að
PHEV er aðeins 200.000 kr. dýr-
ari en dísilúgáfan. Rúsínan í pylsu-
endanum fyrir íslenska markaðinn
er svo að hann er jepplingur en
það er langvinsælasti stærðar-
flokkur bíla á Íslandi í dag. Þegar
hann kom fyrst á markað var
hann þar að auki einn um hituna
en landslagið er fljótt að breytast í
bílaheiminum. Í dag eru þrír aðrir
hlaðanlegir tvíorkujepplingar í
boði hérlendis, Volvo XC90 T8,
Porsche Cayenne S E-Hybrid og
BMW X5 xDrive40e en þeir eiga
allir það sammerkt að vera mun
dýrari en Outlanderinn.
njall@mbl.is
Morgunblaðið/Tryggvi Þormóðsson
Mitsubishi Outlander PHEV Árgerð 2016
• 2 lítrabensínvél
• 121hestafl/190Nm
•Rafmótor framan
• 82 hestafl/195 Nm
•Hestöfl samtals: 200
• Stiglaus sjálfskipting
• Verð frá: 6.590.000kr
• 1,8L/100km íbl akstri
• Umboð:Hekla
• Mengunar-
gildi:
42gCO2/km
• 18 tommuálfelgur
• Eiginþyngdkg: 1.845
• Farangursrými: 463L
• 0-100km/sek: 11
• Hámarkshr.: 171 km/klst
• Fjórhjóladrif
Þótt bensínvélin sé aðeins 121 hestafl eru tveir rafmótorar 82 hestöfl
hvor en það þýðir að bíllinn skilar 200 hestöflum samtals.
Aftursæti eru stór og rúmgóð en þrátt fyrir það er fótarými gott eins og sjá má, en ökumannssætið er stillt fyrir þann sem situr fyrir á myndinni.
Mælaborðið er nánast eins og áður og á litaskjá beint fyrir framan ökumann má sjá hvort bíllinn ekur á raforku,
bensínorku eða báðum og hvort hann sé að hlaða inn á rafgeyminn.
PHEV stendur fyrir Pulgin Hybrid Electric Vehicle sem lauslega má þýða
tengiltvíorku rafmagnsbíl, sem er ekki endilega fjálasta heitið.
P-takkinn fyrir stöðustillingu sjálfskiptingar er á skrýtnum stað fyrir
framan gírstöngina svo að skáskjóta þarf fingri til að komast að honum.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 2015
BÍLAR 5