Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.02.2016, Side 52
52 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.2. 2016
LESBÓK
ÞRASS Hið goðsagnakennda bandaríska þrassband Megadeth sendi á
dögunum frá sér sína fimmtándu hljóðversskífu, Dystopia. Hefur hún
fallið í frjóa jörð og renndi sér til að mynda beint í þriðja sæti
Billboard 200-listans í Bandaríkjunum sem er besti árangur
Megadeth í tæpan aldarfjórðung en Countdown to Extinction
náði öðru sæti árið 1992.
Megadeth, sem lék á Íslandi árið 2005, hlýtur að daðra
við heimsmet í mannabreytingum og teflir nú fram
tveimur nýjum meðlimum; brasilíska gítaristanum
Kiko Loureiro og trymblinum Chris Adler úr
Lamb of God. Mun sá síðarnefndi framvegis
leika með báðum böndum. Oddviti
Megadeth og aðallaga- og textahöf-
undur er sem fyrr Dave Mustaine.
Enn þrassar Megadeth
Morgunblaðið/Sverrir
Dave Must-
aine á Nasa.
KVIKMYNDIR Frans páfi verður fyrsti páfinn til að
leika í kvikmynd en hann mun koma fram í fjöl-
skyldumyndinni Beyond the Sun sem tekin verður upp
á Ítalíu á næstunni. Ekki er reiknað með að páfi sæki
leiklistarnámskeið af þessum sökum en hann mun
„leika“ sjálfan sig í myndinni. Tvennum sögum fer af
því hversu stórt hlutverk páfa verður í myndinni, sum-
ir segja að hann hafi stóru hlutverki að gegna en aðrir
að einungis sé um stutta prédikun að ræða, þar sem
páfi leggur ungmennum lífsreglurnar. Allur ágóði af
myndinni mun renna til góðgerðarmála. Vegna um-
ræðna um myndina fann Páfagarður sig knúinn til að
senda frá sér yfirlýsingu í vikunni. Hún hljóðar svo:
„Páfinn er ekki leikari!“
Frans páfi leikur í kvikmynd
AFP
Frans páfa er
margt til lista lagt.
Bellis-feðgar ásamt hin hressu Betty.
Engin verðlaun
fyrir Betty
FURÐUR David nokkur Bellis fór á
dögunum með sigur af hólmi í
sjálfu-samkeppni ferðaskrifstof-
unnar Thomson Holidays’ í Bret-
landi en með honum á myndinni eru
sonur hans, Jacob, og hryssan
Betty, sem þeir rákust á í grennd
við heimili sitt í Wales. Skælbros-
andi. Í verðlaun var ferð að eigin
vali að verðmæti 200 þúsund krón-
ur. Eigandi Bettyar, Nicola Mitch-
ell, móðgaðist ógurlega þegar hún
frétti af þessu enda hafði Betty að
hennar mati unnið verðlaunin fyrir
feðgana. Í framhaldi af kvörtun
hennar fór ferðaskrifstofan yfir
málið og Bellis heldur verðlaun-
unum. Og Betty situr eftir heima –
með sárt ennið.
FURÐUR Dómari
nokkur í Pennsylv-
ania-ríki í Banda-
ríkjunum hefur
neyðst til að
setja upp skilti í
anddyri dóms-
hússins, þar sem
hann bannar fólki að mæta í nátt-
fötum í dómsal. Nokkur brögð
munu hafa verið að þessu og á end-
anum brast þolinmæði dómarans.
„Það er vaxandi vandamál að
fólk klæðir sig ekki almennilega áð-
ur en það kemur fyrir dóm, sem það
ætti auðvitað að gera. Sama máli
gegnir um dómsal og kirkju, menn
klæða sig upp á áður en þeir mæta
þangað,“ sagði dómarinn, Craig
Long að nafni.
Úr náttfötunum
FURÐUR Glæpamaður í Banda-
ríkjunum tók vonda ákvörðun á
dögunum sem leiddi til handtöku
hans. Hann byrjaði á því að brjótast
inn hjá aldraðri konu og ræna hana.
Lítið fé reyndist í íbúðinni, þannig
að bófinn dró konuna með sér út í
hraðbanka. Þar gat hún aðeins tek-
ið út 400 af þeim 2.000 dollurum
sem hann sóttist eftir. Bað ræning-
inn hana þá að hitta sig á tilteknum
stað tveimur dögum síðar með af-
ganginn. Sú gamla hafði þá lögregl-
una með sér sem handtók manninn.
Rænulítill
ræningi
Fá lög hafa verið sungin meira afæsku þessa lands á fyrstu vik-um ársins en „Allir með“,
lokalagið úr Áramótaskaupinu með
Steinda jr., Agli Ólafssyni og fé-
lögum, og óhætt að fullyrða að það
hafi náð óvenjumiklum vinsældum af
lagi úr skemmtiþætti að vera. „Allir
með“ hefur til að mynda komist á
topp vinsældalista bæði Bylgunnar
og FM 95,7 og er nú í fjórða sæti vin-
sældalista Rásar 2.
Steindi segir ekki annað hafa
komið til greina en að hafa lokalagið
frumsamið en það er eftir Stop Wait
Go-hópinn sem líka samdi textann í
samvinnu við Steinda. „Það er heilög
stund þegar lokalagið í Skaupinu fer
í gang og varla hægt að hugsa sér
betra tækifæri til að koma tónlist á
framfæri; öll þjóðin er að horfa. Þess
vegna fer vel á því að hafa lagið
frumsamið,“ segir hann.
Steindi segir höfundana hafa lagt
upp með að lagið gæti lifað lengur en
þessa einu kvöldstund og það hafi
greinilega tekist. „Markmiðið var að
gera lag sem myndi fá spilun í
útvarpi og á skemmtistöðum. Sjálfur
kíkti ég út á lífið um daginn og
heyrði lagið spilað. Það var mjög góð
tilfinning og ég lét mér ekki nægja
að syngja með, heldur dustaði líka
rykið af dansskónum. Það var sjón
að sjá,“ segir hann hlæjandi.
Steindi viðurkennir að þjappa hafi
þurft miklu efni saman á aðeins
þremur mínútum en útgangs-
punktur lagsins var að góðærið væri
komið aftur. „Við eyddum miklum
tíma í þetta og segja má að ég hafi
verið með lagið í eyrunum í heilan
mánuð; heima, í bílnum og í síman-
um. Þegar ég geri svona lög fer ég
alltaf fimm til sex sinnum í stúdíó og
breyti einhverju,“ segir hann.
Að hans mati voru félagarnir í Stop
Wait Go réttu mennirnir til að semja
lagið enda hafi þeir einstakt nef fyrir
grípandi laglínum. „Við vorum líka
sammála um að enginn yrði
betri í viðlagið en Egill
Ólafsson og sem betur fer
tók hann okkur strax vel.
Fyrir utan sönginn var frá-
bært að hafa Egil líka í loka-
atriðinu enda er hann ógeðs-
lega góður leikari.“
Arnar Eggert
Thoroddsen, dokt-
orsnemi í tónlist-
arfræðum, kveðst
í auknum mæli
vera farinn að
skoða vinsældir
dægurlaga út
frá forminu og
tækninni. Nýir
hlutir, eins og Spotify og YouTube,
séu tvímælalaust til þess fallnir að
halda lögum lengur á lífi en áður
þekktist. „Auðvelt er að giska á að
lög úr Skaupinu og öðrum gaman-
þáttum hefðu fengið lengra líf á sín-
um tíma hefði þessi tækni verið kom-
in fram á sjónarsviðið,“ segir hann.
Vinsældir Steinda
Arnar Eggert segir einnig vert að
taka tillit til gríðarlegra vinsælda
Steinda jr. meðal yngstu kynslóða
þessa lands. Flest sem hann geri
veki athygli af þeim sökum. Honum
þykir innlegg Egils Ólafssonar
skemmtilegt en efast þó um að
það hafi haft úrslitaáhrif á
vinsældir lagsins. Egill
höfði meira til eldri hlust-
enda. „Það má heldur ekki
gleyma því að vel var lagt í
atriðið sjálft, sem var alveg
ljómandi skemmtilegt og
skar sig frá öðru
efni í Skaupinu.
Allt hefur þetta
áhrif.“
Áramóta-
skaupið á að vera
ádeila og Arnari
Eggerti þykir
„Allir með“ ganga
prýðilega upp í því
sambandi. Óvenjumargt sé dregið
saman á aðeins þremur mínútum.
„Ef maður fer í meiri djúpsjávar-
köfun þá á Skaupið að vera ádeila,
menn eiga að pota í stjórnvöld og
helst stinga á kýlum. Séu menn klár-
ir eru þeir með beitt vopn á hendi og
það á ljómandi vel við í þessu tilviki.“
Hann segir lokalag Áramóta-
skaupsins 2008, „Skrúðkrimmar“,
hafa verið einstaklega beitt að þessu
leyti en þar var lagt út af lagi Mich-
aels Jacksons, „Smooth Criminal“,
og bankamenn og útrásarvíkingar
fengu á baukinn. „Það lag varð svo-
lítið vinsælt og var nokkuð lengi í
umræðunni.“
„Skrúðkrimmar“ var ekki frum-
samið lag, eins og „Allir með“. Arnar
Eggert segir alltaf metnaðarfullt að
tefla frumsömdu efni fram í þessu
sambandi en viðurkennir þó að lagið
höfði ekki sérstaklega til hans. „Höf-
undar lagsins, þeir félagar í Stop
Wait Go, eru afkastamiklir og klárir
í sínu fagi. Þetta lag er samt ekkert
sérlega merkilegt. Það verður að
segjast eins og er. Annars er ekkert
að marka mig; ég er bara einfalt
popphænsn. Ef ég hefði lagið í eyr-
unum nokkuð stöðugt í einhverja
daga myndi ég ábyggilega úrskurða
það meistaraverk,“ segir hann kími-
leitur.
Egill Ólafsson og
Steindi jr. í lokalagi
áramótaskaupsins,
„Allir með“.
Dustaði rykið af dansskónum
Lokalag Áramótaskaupsins 2015, „Allir með“, hefur notið mikilla vinsælda og lifir enn góðu lífi með
þjóðinni meira en mánuði eftir að það var frumflutt. Það er ekki algengt með lög úr skemmtiþáttum.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Arnar Eggert
Thoroddsen