Morgunblaðið - 14.03.2016, Page 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 14. MARS 2016
Olís-deild karla
Akureyri – ÍBV.................................. frestað
Undankeppni EM kvenna
7. riðill:
Frakkland – Þýskaland ....................... 25:18
Ísland – Sviss ........................................ 20:19
Staðan:
Frakkland 4 4 0 0 104:76 8
Þýskaland 4 2 0 2 91:84 4
Ísland 4 1 0 3 75:90 2
Sviss 4 1 0 3 78:98 2
Ísland á eftir heimaleik gegn Frakklandi
og útileik gegn Þýskalandi í byrjun júní.
1. riðill:
Noregur – Rúmenía ............................ 27:17
Þórir Hergeirsson þjálfar lið Noregs.
Hvíta-Rússland – Litháen ................... 38:35
Staðan: Noregur 6 stig, Rúmenía 6,
Hvíta-Rússland 4, Litháen 0.
Vináttulandsleikur karla
Þýskaland – Katar ...............................24:26
Dagur Sigurðsson þjálfar lið Þýska-
lands.
Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson
dæmdu leikinn.
Þýskaland
B-deild:
Erlangen – Emsdetten.........................33:24
Oddur Grétarsson 4 mörk fyrir Emsdet-
ten, Anton Rúnarsson 3 og Ernir Hrafn
Arnarson 2.
Spánn
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit, seinni leikur:
Barcelona – Granollers .......................32:24
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 4 mörk
fyrir Barcelona sem fer áfram, 66:51 sam-
anlagt.
Danmörk
Midtjylland – Ribe-Esbjerg................ 25:24
Vignir Svavarsson skoraði eitt mark fyr-
ir Midtjylland.
SönderjyskE – Aalborg .......................25:25
Árni Steinn Steinþórsson var ekki í leik-
mannahópi SönderjyskE. Daníel Freyr
Andrésson ver mark liðsins.
Ólafur Gústafsson lék ekki með Aalborg
vegna meiðsla.
Tvis Holstebro – Skanderborg .......... 29:27
Sigurbergur Sveinsson skoraði 3 mörk
fyrir Holstebro. Egill Magnússon ekkert.
Skive – Århus....................................... 19:25
Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 1
mark fyrir Århus.
Staðan: Team Tvis Holstebro 36 stig eftir
24 leiki, KIF 32 stig, Århus 31, Skjern 31.
Frakkland
Deildabikarinn, undanúrslit:
Toulouse – París SG.............................31:45
Róbert Gunnarsson var ekki í leik-
mannahópi PSG.
Noregur
Bodö – Kolstad......................................27:26
Pétur Pálsson skoraði 9 mörk fyrir Kol-
stad.
Fyllingen – Arendal ........................... 25:24
Einar Ingi Hrafnsson skoraði 1 mark
fyrir Arendal sem varð deildarmeistari eft-
ir leiki gærdagsins. Ein umferð er eftir.
Svíþjóð
Kristianstad – Karlskrona ..................34:22
Ólafur A. Guðmundsson skoraði 5 mörk
fyrir Kristianstad.
Drott – Sävehof.................................... 22:29
Atli Ævar Ingólfsson skoraði 3 mörk fyr-
ir Sävehof.
Hammarby – Guif.................................30:34
Örn Ingi Bjarkason skoraði ekki mark
fyrir Hammarby.
Kristján Andrésson þjálfar Guif.
Malmö – Ricoh ..................................... 24:18
Leó Snær Pétursson skoraði ekki mark
fyrir Malmö.
Magnús Óli Magnússon skoraði 3 mörk
fyrir Rich. Tandri Már Konráðsson skoraði
ekki mark.
Staðan: Kristianstad 54 stig eftir 28 leiki,
Alingsås HK 42 stig, Ystad 37, Lugi 36.
Kristianstad er deildarmeistari.
Austur-Evrópudeildin
Tatran Presov – Veszprém ................ 25:26
Aron Pálmarsson skoraði 8 mörk fyrir
Veszprém.
Staðan: Veszprém 50 stig eftir 18 leiki,
Zagreb 42 stig eftir 18 leiki, Vardar 41 stig
eftir 17 leiki, Meshkov Brest 36 stig eftir 17
leiki, Tatran Prešov 28 stig eftir 18 leiki.
Fjögur efstu liðin leika til úrslita.
HANDBOLTI
Á ÁSVÖLLUM
Ívar Benediktsson
iben@mbl.is
Íslenska landsliðið í handknattleik
kvenna heldur áfram í vonina um að
ná þriðja sæti 7. riðils undankeppni
Evrópumeistaramótsins þegar upp
verður staðið í júní en þá lýkur riðla-
keppninni. Naumur sigur, 20:19, á
landsliði Sviss í Hafnarfirði í gær
kom íslenska liðinu í þriðja sæti þar
sem það hefur betri heildarmarka-
tölu en landslið Sviss þegar fjórum
umferðum af sex er lokið. Liðin eru
jöfn að stigum, með tvö hvort, og
innbyrðis markatala er jöfn eftir
sitthvorn eins marks sigurinn í við-
ureignum Íslands og Sviss.
Þetta þýðir að íslenska landsliðið
verður helst að ná stigi eða stigum
úr tveimur síðustu leikjum sínum í
riðlakeppninni, gegn Þjóðverjum
ytra og á móti Frökkum á heimavelli
í síðustu leikjunum í júní. Eins og
staðan er í riðlum undankeppninnar
er vafasamt að íslenska liðið eigi
möguleika á að tryggja sér keppn-
isrétt í lokakeppni EM sem haldin
verður í desember nema því takist
að krækja í stig í vorleikjunum.
Íslenska landsliðið fór illa að ráði
sínu í leiknum við Sviss í gær. Ef
undan eru skildar fyrstu 15 mínútur
leiksins var sóknarleikurinn góður
að öðru leyti en því að hörmulega
tókst til við að skora. Vel gekk að
leysa framliggjandi vörn landsliðs
Sviss og komast í opin færi en afleit-
lega gekk að nýta þessi opnu færi.
Vel á annan tug skota fór í mark-
stangirnar og framhjá markinu auk
þeirra 13 skota sem Manuela
Brütsch, markvörður Sviss, varði.
Karen Knútsdóttir og hin unga Thea
Imani Stuludóttir báru uppi sókn-
arleik íslenska landsliðsins. Sú síð-
arnefnda, sem er á 19. ári, kom inn
með kraft og áræði í sóknarleikinn í
fyrri hálfleik.
Maður leiksins var hins vegar
Florentina Stanciu markvörður.
Hún fór á kostum í marki íslenska
landsliðsins og varði 23 skot. Ljóst
að ef hún hefði átt meðalleik hefði
illa farið fyrir íslenska landsliðinu að
þessu sinni.
Eftir að hafa átt undir högg að
sækja framan af síðari hálfleik tókst
íslenska liðinu að snúa leiknum sér í
hag og vera yfir í hálfleik, 10:9. Í síð-
ari hálfleik náði íslenska liðið
tveggja og þriggja marka forskoti
en hélst illa á því. Þar af leiðandi
mátti það teljast heppið að vinna
með einu marki og halda áfram
veikri von.
Morgunblaðið/Golli
Öflug Thea Imani Sturludóttir reyndist varnarmönnum landsliðs Sviss erfið í leiknum í gær. Hér hefur hún snúið á einn þeirra og er við að komst í færi.
Veik von lifir fram í júní
Schenkerhöllin, undankeppni EM
kvenna, sunnudaginn 13. febrúar
2016.
Gangur leiksins: 1:3, 3:5, 3:6, 5:8,
9:9, 10:9, 11:12, 13:12, 15:13, 17:16,
18:16, 19:17, 19:19, 20:19.
Mörk Íslands: Thea Imani Sturlu-
dóttir 3, Ramune Pekarskyte 3, Arna
Sif Pálsdóttir 2, Sunna Jónsdóttir 2,
Sólveig Lára Kjærnested 2, Hrafn-
hildur Hanna Þrastardóttir 2/2, Þór-
ey Anna Ásgeirsdóttir 2, Karen
Knútsdóttir 2/1, Steinunn Hans-
dóttir 1, Hildigunnur Einarsdóttir 1.
Varin skot: Florentina Stanciu 23/1.
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk Sviss: Lisa Frey 6/1, Sibylle
Scherer 3, Karin Weigelt 3, Rahel
Furrer 2, Noelle Frey 2, Nicole Din-
kel 1, Kerstin Kündig 1, Xenia Hodel
1.
Varin skot: Manuela Brütsch 13.
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Diana-Carmen Florescu
og Anamaria Stoia.
Áhorfendur: 700.
Ísland – Sviss 20:19
Naumur sigur á Sviss í leik hinna glötuðu tækifæra Florentina Stanciu átti
stórbrotinn leik í markinu Ungstirnið Thea Imani hleypti lífi í sóknarleikinn
Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is
Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang
augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
„Ég er mjög ánægð með okkur eftir
þennan sigur. Við stóðum okkur
vel,“ sagði Steinunn Hansdóttir,
hornamaður íslenska landsliðsins í
handknattleik, eftir nauman sigur,
20:19, á landsliði Sviss í undan-
keppni EM í handknattleik í gær.
„Okkur tókst betur til í sóknar-
leiknum að þessu sinni en í fyrri
leiknum ytra á fimmtudaginn. Við
fundum fleiri leiðir í gegnum vörn
Sviss en því miður áttum við í erf-
iðleikum með að skora úr mörgum
færum sem við fengum í leiknum.
Fyrir leikinn var talað um að skjóta
boltanum ofarlega í markið og ef
undan er skilinn upphafskaflinn
gekk það vel hjá okkur en því miður
fóru mörg skot okkar í slána og
stangirnar. En við unnum leikinn.
Það var aðalatriðið,“ sagði Steinunn
Hansdóttir.
Sjálfum okkur verst
„Við vorum sjálfum okkur verst í
þessum leik. Ég held að nærri tutt-
ugu dauðafæri hafi farið í súginn,
flest höfnuðu í markstöngunum og
slánni,“ sagði Ágúst Þór Jóhanns-
son landsliðsþjálfari eftir leikinn í
gær.
„Það er ekkert óeðlilegt að mönn-
um bregðist bogalistin í nokkrum
færum en þetta var fullmikið af því
góða. Möguleikinn var svo sann-
arlega fyrir hendi að gera út um
leikinn miklu fyrr í stað þess að
vera í basli á lokasprettinum,“ sagði
þjálfarinn ennfremur.
Ágúst Þór segir að ákafinn hafi
verið fullmikill í leikmönnum ís-
lenska liðsins framan af. „Þegar á
leið og leikmenn slökuðu aðeins
meira á náðum við finum tökum á
leiknum en því miður skutu leik-
menn illa á markið í mörgum opnum
færum. Menn skutu á þá staði á
markinu sem við vorum búin að tala
um að skjóta ekki á. Það er sannar-
lega áhyggjuefni að leikmenn skuli
ekki hafa verið einbeittari að þessu
leyti en raun varð á,“ sagði Ágúst
Þór.
Ágúst segist hafa verið sáttur við
varnarleikinn lengst af, ekki síst
eftir að breytt var yfir í 5/1-vörn
þegar á leið fyrri hálfleik.
„Síðan var Florentina Stanciu al-
veg frábær í markinu. Hún lék í allt
öðrum klassa en aðrir leikmenn á
vellinum,“ sagði Ágúst en Florent-
ina varði 23 skot.
„Sigurinn heldur okkur á lífi í
riðlakeppninni. Það er fyrir mestu.
Vonandi komum við enn sterkari til
leiks gegn Frökkum og Þjóðverjum
í júní. Allir gera sér ljóst að við
verðum að leika miklu betur í þeim
viðureignum til þess að krækja í
stig,“ sagði Ágúst Þór Jóhannsson
landsliðsþjálfari í samtali við Morg-
unblaðið. iben@mbl.is
Aðalatriðið var að vinna
Landsliðsþjálfarinn óánægður með nýtingu dauðafæra Verða að leika betur í júní
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olís-deildin:
Austurberg: ÍR – Afturelding ............. 19.30
Valshöllin: Valur – Víkingur................ 19.30
Schenker-höllin: Haukar – Grótta ...... 19.30
Framhús: Fram – FH .......................... 19.30
Í KVÖLD!