Morgunblaðið - 24.03.2016, Blaðsíða 3
agnum um fjórða sætið
Í VESTURBÆNUM
Jóhann Ólafsson
johann@mbl.is
KR er komið í undanúrslit Íslands-
móts karla í körfuknattleik. Það varð
ljóst í gær þegar liðið sigraði Grinda-
vík, 83:62, í þriðja leik liðanna í 8 liða
úrslitum karla. KR vann alla þrjá
leiki liðanna og sendir um leið Grind-
víkinga í sumarfrí.
Orðið sumarfrí er yfirleitt notað í
jákvæðri merkingu en það á þó ekki
við í þessu tilfelli. Núna geta Grind-
víkingar hugsað sinn gang þar til Ís-
landsmótið hefst í október. Árangur
vetrarins hljóta að vera gríðarleg
vonbrigði en mikið andleysi einkenndi
gulklædda í nánast allan vetur.
Vesturbæingar hófu leik gær-
kvöldsins af miklum krafti og staðan
var 16:2 fyrir KR eftir rúmlega
þriggja mínútna leik. Jóhann Ólafs-
son, þjálfari gestanna, tók þá leikhlé.
Það virtist litlu skila, nema jú ef til
vill því að munurinn jókst ekki með
sama hraða og hann gerði í upphafi.
Heimamenn virtust slaka á eftir frá-
bæra byrjun og vera fastir í öðrum
gír það sem eftir lifði fyrri hálfleiks.
Staðan að honum loknum var 41:27
fyrir KR.
Síðari hálfleikurinn var með ró-
legra móti. Bæði lið virtust vita hver
niðurstaðan yrði og spennan og bar-
áttan eftir því. Fór það svo að lokum
að KR-ingar lönduðu 21 stigs sigri,
gegn andlausum Grindvíkingum.
Nennti ekki að hreyfa sig
Veturinn var hálfskrýtinn hjá gul-
klæddum Grindvíkingum. Lítið er eft-
ir af liðinu sem varð Íslandsmeistari
2012 og 2013 en margir leikmenn geta
mun betur en þeir gerðu í vetur.
Vandræði með erlendan leikmann
hafa einnig sett strik í reikninginn en
Charles Garcia er þriðji Kaninn í
Grindavík í vetur. Ég held að honum
hafi verið skítsama hvernig leikurinn
fór í gær en hann er eflaust floginn
heim í sólina nú þegar. Það kann auð-
vitað ekki góðri lukku að stýra þegar
leikmenn virðast ekki nenna að
hreyfa sig.
Íslandsmeistarar síðustu tveggja
ára setja stefnuna á þriðja titilinn í
röð, eða „threepeat“ eins og það er
kallað á körfuboltaensku. Ekki er
ljóst hverjir andstæðingar KR verða í
undanúrslitum en eflaust vonast
margir körfuboltaunnendur eftir
svipuðum undanúrslitum og þegar
KR mætti Njarðvík á síðustu leiktíð.
Þá hafði KR betur, 3:2 en tvífram-
lengdan oddaleik þurfti til að knýja
fram úrslit. Ef Njarðvík slær Stjörn-
una út fá Njarðvíkingar tækifæri til
að hefna ófaranna frá því í fyrra.
Auðvelt hjá
Íslandsmeist-
urunum
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Stærri Jens Valgeir Óskarsson úr Grindavík reynir að stöðva KR-inginn
Michael Craion í viðureign liðanna í Vesturbænum. KR vann einvígið 3:0.
Andlausir Grindvíkingar komnir í
sumarfrí Kananum virtist skítsama
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MARS 2016
Lars Lag-erbäck, ann-
ar af þjálfurum
karlalandsliðsins í
knattspyrnu, er
vel launaður sam-
kvæmt lista
spænsku vefsíð-
unnar Finance
Football. Árslaun
hans eru sögð vera 430 þúsund evrur
sem jafngildir rúmum 60 milljónum
króna. Landi hans Erik Hamrén,
landsliðsþjálfari Svía, er sagður vera
með 200 þúsund evrur í árslaun eða
rúmar 28 milljónir króna. Samkvæmt
Finance Football er Lagerbäck í 12.
sæti á launalistanum af þjálfurum
landsliðanna 24 sem leika á EM .
Bastian Schweinsteiger, leik-maður Manchester United og
fyrirliði þýska landsliðsins í knatt-
spyrnu, slasaðist á hné á æfingu
landsliðsins í Berlín á þriðjudaginn
og í gær var staðfest að liðband í hné
væri rifið. Schweinsteiger verður
ekki með Manchester United á næst-
unni, jafnvel ekki meira á þessu tíma-
bili, og þátttaka hans á EM í Frakk-
landi í sumar gæti verið í hættu.
Framarar hafa samið við ítalskaknattspyrnumarkvörðinn Stef-
ano Layeni, sem gekk til liðs við
Leikni á Fáskrúðsfirði, nýliðana í 1.
deild karla, fyrr í þessum mánuði.
Samkvæmt fótbolta.net var hann
ekki tilbúinn til að vinna á Fáskrúðs-
firði samhliða því að spila með Leikni.
Framherjinn Eyþór Helgi Birgisson
er hinsvegar hættur hjá Fram.
Helena Sverrisdóttir, Haukum,var í gær útnefnd besti leik-
maður seinni umferðar í Dominos-
deild kvenna í körfuknattleik. Auk
hennar eru Gunnhildur Gunn-
arsdóttir og Haiden Palmer úr Snæ-
felli, Guðbjörg Sverrisdóttir úr Val
og Sandra Lind Þrastardóttir úr
Keflavík í úrvalsliði seinni umferðar.
Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæ-
fells, var valinn besti þjálfarinn. Mar-
grét Kara Sturludóttir, Stjörnunni,
var valin mesti dugnaðarforkurinn.
Þá var Sigmundur Már Herbertsson
valinn besti dómarinn.
Fólk folk@mbl.is
Austurberg, Olís-deild karla,
miðvikudaginn 23. mars 2016.
Gangur leiksins: 8:13, 19:32.
Mörk ÍR: Sturla Ásgeirsson 6,
Aron Örn Ægisson 5, Sveinn
Andri Sveinsson 5, Arnar Freyr
Guðmundsson 2, Jón Kristinn
Björgvinsson 1.
Markverðir: Arnór Freyr Stef-
ánsson og Svavar Már Ólafs-
son.
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk Hauka: Janus Daði
Smárason 8, Hákon Daði
Styrmisson 7, Brynjólfur Snær
Brynjólfsson 6, Jón Þorbjörn
Jóhannsson 3, Leonharð Þor-
geir Harðarson 2, Þröstur Þrá-
insson 2, Elías Már Halldórsson
1, Heimir Óli Heimisson 1, Einar
Pétur Pétursson 1, Grétar Ari
Guðjónsson 1.
Markverðir: Giedrius Morkunas
og Grétar Ari Guðjónsson.
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Heimir Örn Árnason
og Sigurður Hjörtur Þrastarson.
Áhorfendur: 120.
ÍR – Haukar 19:32
KA-heimilið, Olís-deild karla, mið-
vikudaginn 23. mars 2016.
Gangur leiksins: 0:2, 1:5, 4:6,
5:10, 7:11, 9:14, 13:14, 16:16,
18:18, 19:21, 21:24, 24:25, 24:26.
Mörk Akureyrar: Kristján Orri
Jóhannsson 9/2, Bergvin Þór
Gíslason 6, Andri Snær Stef-
ánsson 3, Sigþór Árni Heimisson
3, Halldór Logi Árnason 2, Hörð-
ur Másson 1.
Varin skot: Hreiðar Levý Guð-
mundsson 17, Tomas Olason 3.
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Aftureldingar: Árni Bragi
Eyjólfsson 8/4, Birkir Benedikts-
son 5, Valdimar Sigurðsson 3,
Mikk Pinnonen 3, Jóhann Jóhanns-
son 3, Gunnar Malmquist Þórsson
2, Guðni Kristinsson 2.
Varin skot: Davíð Hlíðdal Svans-
son 13/1.
Utan vallar: 18 mínútur. (Rautt
spjald: Þrándur Gíslason Roth 40.
mín)
Dómarar: Bjarki Bóasson og
Gunnar Óli Gústafsson.
Áhorfendur: 387.
Akureyri – Afturelding 24:26
Valshöllin, Olís-deild karla, miðviku-
daginn 23. mars 2016.
Gangur leiksins: 2:1, 4:2, 6:4, 8:5,
9:10, 11:11, 12:14, 15:14, 17:18, 18:21,
20:22, 23:22.
Mörk Vals: Guðmundur Hólmar Helga-
son 5, Sveinn Aron Sveinsson 4, Vignir
Stefánsson 3, Orri Freyr Gíslason 2,
Elvar Friðriksson 2, Geir Guðmunds-
son 2, Atli Már Báruson 1, Daníel Þór
Ingason 1, Ómar Ingi Magnússon 1, Al-
exander Örn Júlíusson 1, Sturla Magn-
ússon 1.
Varin skot: Sigurður Ingiberg Ólafs-
son 16.
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk Fram: Garðar B. Sigurjónsson
12, Sigurður Örn Þorsteinsson 4, Elías
Bóasson 3, Stefán Darri Þórsson 2,
Þorgrímur Smári Ólafsson 1.
Varin skot: Kristófer Fannar Guð-
mundsson 16.
Utan vallar: 10 mínútur (Stefán Darri
rautt spjald vegna þriggja brott-
rekstra)
Dómarar: Arnar Sigurjónsson og
Svavar Ólafur Pétursson.
Áhorfendur: 188.
Valur – Fram 23:22
Vestmannaeyjar, Olís-deild karla,
miðvikudaginn 23. mars 2016.
Gangur leiksins: 4:2, 6:4, 9:8,
11:9, 11:12, 13:15, 16:16, 18:20,
20:23, 23:28, 26:30, 31:35.
Mörk ÍBV: Andri Heimir Friðriksson
10, Agnar Smári Jónsson 6, Nökkvi
Dan Elliðason 5, Theodór Sig-
urbjörnsson 4/1, Kári Kristján
Kristjánsson 4, Grétar Þór Eyþórs-
son 2.
Varin skot: Stephen Nielsen 10,
Kolbeinn Aron Arnarsson 6.
Utan vallar: 10 mínútur (Rautt
spjald: Sindri Haraldsson 49.mín.)
Mörk Víkings: Jóhann Reynir Gunn-
laugsson 10/6, Hlynur Óttarsson 6,
Ægir Hrafn Jónsson 4, Atli Karl
Bachmann 4, Arnar Gauti Grett-
isson 4, Atli Hjörvar Einarsson 2,
Karolis Stropus 2, Jón Hjálmarsson
2, Víglundur Jarl Þórsson 1.
Varin skot: Einar Baldvin Baldvins-
son 18.
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Gísli H. Jóhannsson og
Hafsteinn Ingibergsson.
Áhorfendur: 200.
ÍBV – Víkingur 31:35
DHL-höllin, Dominos-deild karla, 8 liða
úrslit, 3. leikur, miðvikudag 23. mars.
Gangur leiksins: 10:2, 16:5, 24:9,
24:12, 26:14, 30:17, 36:20, 41:27,
43:30, 53:34, 62:36, 64:43, 69:47,
75:51, 77:60, 83:62.
KR: Michael Craion 21/7 fráköst,
Brynjar Þór Björnsson 17, Darri Hilm-
arsson 15/7 fráköst, Pavel Ermolinskij
10/12 fráköst/11 stoðs., Helgi Már
Magnússon 5/7 fráköst, Björn Krist-
jánsson 5/4 fráköst/5 stoðsendingar,
Þórir Guðmundur Þorbjarnarsson 5/4
fráköst, Snorri Hrafnkelsson 5.
Fráköst: 38 í vörn, 8 í sókn.
Grindavík: Ómar Örn Sævarsson 17/
13 fráköst, Þorleifur Ólafsson 10/4 frá-
köst, Ingvi Þór Guðmundsson 8, Hinrik
Guðbjartsson 7, Jóhann Árni Ólafsson
6, Jens V. Óskarsson 6, Jón Axel Guð-
mundsson 4/6 frák., Charles Garcia 4.
Fráköst: 27 í vörn, 6 í sókn.
KR vann 3:0 og fer í undanúrslit en
Grindavík er úr leik.
KR – Grindavík 83:62
Dominos-deild karla
8 liða úrslit, þriðji leikur:
KR – Grindavík..................................... 83:62
KR vann einvígið, 3:0.
Keflavík – Tindastóll ............................ 95:71
Staðan er 2:1 fyrir Tindastól og fjórði
leikur á Sauðárkróki á mánudag.
NBA-deildin
Brooklyn – Charlotte ....................... 100:105
New Orleans – Miami ........................ 99:113
Oklahoma City – Houston ............... 111:107
LA Lakers – Memphis ..................... 107:100
Spánn
B-deild:
Huesca – Castello .............................. 105:85
Ægir Þór Steinarsson gaf 6 stoðsend-
ingar og skoraði 5 stig fyrir Huesca á 20
mínútum.
KÖRFUBOLTI
KÖRFUKNATTLEIKUR
8-liða úrslit karla, þriðji leikur:
Ásgarður: Stjarnan – Njarðvík .. (1:1) 19.15
Schenker-höllin: Haukar – Þór Þ (1:1) 19.15
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Olís-deildin:
Vestmannaeyjar: ÍBV – Selfoss .......... 13.15
Kaplakriki: FH – Afturelding ............. 13.30
Valshöllin: Valur – HK......................... 13.30
Hertz-höllin: Grótta – Haukar ................. 14
KA-heimilið: KA/Þór – Fram................... 16
TM-höllin: Stjarnan – ÍR..................... 19.30
Fylkishöll: Fylkir – Fjölnir ................. 19.30
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla, Lengjubikarinn:
Jáverk-völlur: Selfoss – Breiðablik ......... 11
Leiknisvöllur: Þróttur V. – KFS.............. 14
Fellavöllur: Höttur – Völsungur .............. 14
Leiknisvöllur: Víðir – ÍH .......................... 16
Deildabikar kvenna, Lengjubikarinn:
Boginn: Þór/KA – Breiðablik ................... 15
Í DAG!