Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.08.1993, Page 1

Víkurfréttir - 12.08.1993, Page 1
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM I _ 31. tölublaö 14. árgangur Fimmtudagur 12. LPiMDSBO q^fnohv: HVSRF1 W Varnarliðið skapar stór- slysahættu ó Reykjanesbraut Fimm í röð hjó Karenu - Opnuviðtal við Islandsmeistara kvenna ígolfi Gullskalli Keflvíkinga - sjá bls. 11 Mikil gremja og jafnvel hneykslan er meðal margra for- ystumanna atvinnulífsins vegna þeirrar ákvörðunar Vamarliðsins að skapa stórslysahættu á Reykjanesbraut og atvinnumissi Suðurnesjamanna með því að heimila flutning á vam- arliðsvörum í gegnum Hafn- arfjörð. Gerist þetta með þeim hætti að bandaríska skipafélagið Van Ommeren hefur ákveðið að hætta að skipa vörunum upp í Njarðvík og nota þess í stað Hafnarfjarðarhöfn til upp- skipunar á þriðjungi af vöru- flutningum Varnarliðsins hingað til lands. Einn þeirra Suðurnesjamanna sem líta málið alvarlegum augum er Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis. Sagði hann að það væru engin haldbær rök fyrir þessari ákvörðun Varn- arliðsins að heimila þetta. „Varnarliðið heimilar þetta á sama tíma og Eimskip hefur á- kveðið að losa og lesta alla varn- arliðsvöru í Njarðvík, sem er mjög jákvætt skref fyrir Suð- umesjamenn. A sama tíma og það gerist hryggir þessi aðgerð Vamarliðsins okkur mjög,“ sagði Kristján. „Við erum óhressir með að Vamarliðið sé með þessu að skapa stórslysahættu á Reykja- nesbraut og auka atvinnumissi fjölda Suðurnesjamanna, með flutningi á þessari þjónustu til Hafnarfjarðar. Við þetta munu fara fram um 1200 ferðir á Reykjanesbrautinni á ári með þessa vöru, sem eru 1200 ferðum of mikið og því til þess eins fallnar að auka slysahættu á brautinni. Eg á erfitt með að trúa því að Varnarliðið skuli samþykkja að þessir flutningar fari héðan á sama tíma og allir aðrir eru að beita öllurn þeim ráðum sem til eru svo auka megi atvinnu á Suð- urnesjum. Tel ég máli þessu því hvergi nærri lokið af okkar hálfu,“ sagði Kristján að lokum. Prestsvígsla á sunnudag Biskupinn yfir Islandi, herra Olafur Skúlason, mun ú sunnudag vígja Sigfús Baldvin Ingvason til aðstoðarprestsstarfa í Ketfavík. Prestvígslan fer fram í Dóm- kirkjunni í Reykjavík og liefst at- höfninkl. 10.30. Mun þetta vera í fyrsta skipti sem aðstoðarprestur er vtgður til starfa með sóknarpresti í sókn ú Suð- umesjum. Smábátaeigendur ekki á förum Nú er komið í Ijós að fréttir í vor af miklum flóttu smábátaeigenda af Suðumesjum til Bolungavíkur voru rangar. Að vísu fóru niargir smá- bátaeigendur vestur til vciða, en voru ekki að flytja lögheimili sitt. Heidur var hér á ferðinni hin árlega dvöl margra smábáta af Suð- urnesjum. er róa á sumrin frá Snæ- fellsnesi og vestfjörðum. Blaðinu er hins vegar aðeins kunnugt um að einn útgerðarmaður með tvo báta hafi flutt vestur fyrir fullt og allt. Hinir sem sagt var frá að flúið hefðu Suðumesin em flestir eða allir komnir til baka. Kosið um sam- einingu allra sveitarfélaganna Ráðgert er að leggja fram í næstu viku tillögu um að kosið verði í nóvember um sam- einingu allra sjö sveitarfé- laganna á Suðumesjum. Að sögn Kristjáns Páls- sonar, formanns umdæmis- nefndar SSS sem sett var á stofn í vor til að vinna að sameiningarmálum, liggur á næstunni fyrir skýrsla um kosti og galla við sameiningu sveit- arfélaganna. Reiknað er með að skýrslan verði kynnt á borg- arafundum í hverju sveitarfélagi fyrir sig, auk kynninga í stað- arblöðum. Fáist ekki afgerandi niðurstaða um sameiningu sveitarfélaganna, er möguleiki á að kjósa þurfi að nýju um sameiningu hluta af sveitarfélögunum. Samkvæmt lögum verður niðurstaða að liggja fyrir 15. janúar nk. Eftir að sú niðurstaða ligg- ur fyrir er gert ráð fyrir að uppstilling á sameiginlegum framboðslistum hefjist í þeim sveitarfélögum sem sýnt hafa áhuga fyrir sameiningu. Mun síðan verða kosið til sameiginlegra sveitarstjórna sem annarra í vor, en sam- eining mun þó ekki taka gildi fyrren urn áramótin 1994/95. Forsetinn við vígslu Stekkjarkots á fimmtudag Næstkomandi fimmtudag 19. ágúst verður gamli Stekkj- arkotsbærinn sem endurreistur hefur verið á Fitjum í Njarðvík formlega opnaður almenningi til sýnis. Bær þessi er talinn vera sá síðasti sem var í byggð á svæð- inu, að sögn Kristjáns Pálssonar, bæjarstjóra í Njarðvík. Hefur Njarðvíkurbær og At- vinnuleysistryggingasjóður látið endurreisa bæinn sem átaks- verkefni gegn atvinnuleysi. Meðal gesta við opnun bæj- arins verður forseti Islands, frú Vigdís Finnbogadóttir. en hún var einmitt viðstödd þegar ákvörðun var tekin í fyrra um að reisa bæinn. Þá verður við- stöddum boðið upp á íslenskar veitingar og menn í skinnklæðum verða á staðnum. Er almenningi boðið að vera viðstaddur uppá- komu þessa. AUGLÝSINGAR • RITSTJÓRN • AFGREIÐSLA ® 14717,15717 • FAX12777

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.