Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.08.1993, Side 4

Víkurfréttir - 12.08.1993, Side 4
4 12. ÁGÚST 1993 Vikurfréttir Fundur um sjávar- útvegsmál -á Glóðinni á morgun Skipsstjóra og stýrimannafélagið Vísir heldur almennan fund um sjávarútvegsmál á Gióðinni á morgun, föstudaginn 13. ágúst og hefst hann kl. 10 fyrir hádegi. Frummælendur eru: Kristinn Pétursson, frá Bakkafirði sem talar um hafrannsóknir. Grétar Mar ræðir um núverandi fisk- veiðistefnu Guöjón A. Kristjánsson fjallar um nýjar leiöir í stjórnun fiskveiöa. ♦ Skotta KE 45. ♦ Hafsúla KE 46. Myndir: epj. Skotta KE og Hafsúla Skip Hrannars hf. sem á dög- unum flutti lögheimili sitt til Keflavíkur hefur nú verið sett á KE númer. Þá hefur Amar Magnússon o.fl. keypt bát og sett einnig á KE númer. Skip Hrannars hf. er Skotta sem nú ber númerið KE 45. Um er að ræða 300 tonna stálskip. Bátur Amars og félaga ber nafnið Haf- súla KE 46 og er 30 tonna eik- arbátur sem gerður verður úr á dragnót. • Reykjanesbraut Gestir fundarins veröa sveitarstjórnar- menn á Suðurnesjum og þingmenn kjör- dæmisins og fleiri. Allir velkomnir. Stjórnin Sviftur ó 151 km. hraða Ökumaður var staðinn að því að aka á 151 km. hraða á Reykja- nesbraut um síðustu helgi. Var hann sviftur ökuréttindum á staðnum. Að öðru leyti var rólegt hjá lögreglunni í Keflavík, nema hvað varðar ölvun í heimahúsum, einnig voru þrír ökumenn teknir grunaðir um meinta ölvun við akstur, að sögn Þóris Mar- onssonar, yfirlögregluþjóns. 1 WÞFasteignaþjónusta C , FASTEIGNA-& buöumesja>Y skipasala Vatnsnesvegi 14 - Keflavík - Sími 13722 Efstaleiti 47-55, Keflavík Til sölu fimm raöhús vlö Efstaleiti. Húsin eru 106 ferm. ásamt 32 ferm. bílskúr. Húsin seljast tilbúin aö utan en fokheld aö innan. Verö: 6.300.000.- til 6.500.000.- Byggingaraðili: Guömundur Hreinsson '■ -4 j 1 7j it * r v- "f Vesturgata 21, Keflavík Tæplega 80 fenn. 3ja her- bergja íbúð á n.h. í tvíbýlishúsi ásamt bílskúr 5.900.000.- Sólvallargata 28, Ketlavík Mjög rúmgóð 3-4ra her- bergja íbúð í tvíbýli. Parket á gólfum. Góðui staður, stutt í alla þjónustu. 6.200.000,- Hafnargata 72, Keflavík 106 ferm. eldra einbýlishús. Þrjú svefnherbergi. 5.200.000,- Suilurgata 27, Sandgerði 107 ferm. nýleg 5 herbergja íbúð í tvíbýli ásamt 30 ferm. bílskúr. 8.400.000,- Heiðargarður II, Keflavík Um 120 ferm. raðhús ásamt 29 ferm. bílskúr. 1 húsinu eru m.a. 4 svefnherbergi og gott sjónvarpshol. Góður staður. Skipti möguleg á minni eign. 10.500.000.- Heiðarból 6, Keflavík Um 78 ferm. 3ja herbergja enda íbúð á annari hæð. Nýleg eldhúsinnrétting, góð lán á- hvílandi. Skipti möguleg á stærri eign. 5.300.000.- Norðurvellir 52, Keflavík 139 ferm. raðhús ásamt 28,5 ferm. bílskúr. Parket á gólfum og beyki innréttingar. 11.500.000,- Brekkustígur 27, Njarðvík 159 ferm. einbýlishús á tveimur hæðum, 5 svefnher- bergi. Húsið hefur verið mikið endurnýjað m.a. rafmagn, vatnslagnir. skólp, gluggar, gler og þak. 8.900.000,- Heiðarból 6, Keflavík Tveggja herbergja fbúð á annari hæð. Parket á gólfum. Skipti möguleg á stærri eign. 4.400.000.- Heiðarbraut 5F, Keflavík Um 134 ferm. raðhús á tveimur hæðum ásamt sólstofu og bílskúr. Mikið endurnýjað. 10.900.000,- Suðurgata 44, Keflavík Einbýlishús á þremur hæð- um ásamt bílskúr. Sér íbúð í kjallara sem hægt er að leigja út. Tvær efri hæðirnar skiptast í þrjú svefnherbergi, bað, tvær samliggjandi stofur og eldhús. Parket á gólfum. 9.000.000,- Nú er komið að því -Unglingastaður opnar setin í Keflavík Nú styttist óðar í opnun Edenborgar, sem verður í fram- tíðinni rekinn sem staður fyrir unglinganna í Keflavík. Hefur Keflavíkurbær tekið húsið á leigu og ráðið Ævar Ólsen sem forstöðumann. Mikið verk er því fyrir höndum við að koma staðnum í stand, s.s. hugmynd af nafni, litavali. starfi, skipulagi o.fl. Hefur nefnd sú sem krakk- amir sjálfir skipa, því ákveðið að óska eftir aðstoð úr hópi þeirra sem munu nota staðinn. Ávarp undirbúningshópsins til viðkomandi er því eftir- farandi: „Nú er komið að því.... Hafnargata 30. (Edenborg) er okkar. Tækifærið er komið. nú er okkar að nýta það. Kíkið á staðinn í kvöld og ræðum málin. Látið nú sjá ykkur". • íbúöir í iðnaðarhúsnæöi: Samþykkt í Njarðvík -óafgreitt í Garði Fyrr í sumar sögðum við frá tveimur iðnaðarhúsnæðum sem breytt hafði verið í íbúðir án heimildar byggingayfirvalda á viðkomandi stöðum. Um var að ræða húsnæði Vökvatengis í Njarðvík og Húsabyggingar í Njarðvík. Nú hefur bygginganefnd Njarðvíkur og eldvarareftirlit samþykkt húsnæðið í Njarðvík til tveggja ára að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. En að sögn Guðmundar T. Ólafssonar, forstöðumanns eldvamareftir- lits Brunavama Suðumesja er málið í Garðinum enn óafgreitt og staðan í raun óbreytt frá því í sumar. • Héraðsdómur: Móðir dæmd fyrir að deyða nýfætt barn Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt 26 ára konu í 18 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa af ásetningi deytt meybam sitt strax eftir fæðingu. At- burðurinn átti sér stað að morgni 2. janúar 1992 á snyrtiherbergi á heimili for- eldra hennar í einu af bæj- arfélögunum á Suðumesj- um. Frá þessu var greint í DV á þriðjudag. Þar kom einnig fram að konan haft borið því við að hún hafi ekki gert sér grein fyrir þungun sinni. Dómurinn taldi að þar sem hagir ákærðu hefðu verið sérstakir, bæði fyrir og eftir verknaðinn, þætti rétt að beita aðeins skilorðs- bindingu í máli þessu.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.