Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.06.1994, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 15.06.1994, Blaðsíða 6
6 15. JÚNÍ 1994 VfKURFRÉTTIR • F R E T T I R Útgefandi: Víkurfréttir hf. Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar: Vallargötu 15, símar 14717, 15717. Box 1S5, S30 Keflavík. Póstfax nr. 1S777. - Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, heimas. 13707, bílas. 985-33717. - Prétta- stjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, heimas. S7064, bílas. 985-42917. - Auglýsingastjóri: Sigríður Gunnarsdóttir - Upplag: 6400 eintök sem dreift er ókeypis um öll Suðurnes. - Fréttaþjónusta fyrir Stöð S og Bylgjuna. - Aðili að Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða. - Eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og annað er óheimilt nema heimildar sé getið. Umbrot, filmuvinna og prentun: Grágás hf., Keílavík LEIÐARI: Fréttabær Suðurnesin voru eins og stórborg um síðustu helgi. frá bæjardyrum fréttamanna og áhorfenda. Hver stór- viðburðurinn rak annan og er óhætt að segja að reynt hafi á þolrif margra. Stórbruni í fjölbýlishúsinu mótum Faxabrautar og Sól- vallagötu kallar fram ýmsar spurningar. Ljóst er að eldvarnir í svona stóru húsi voru alls ekki nægjanlegar og er því kennt um hversu gamalt húsið er. Það má vera rétt en vekur einnig upp spurningar um ástand fleiri eldri einbýlishúsa og stórhýsa á svæðinu. Það var aðeins fyrir snögg viðbrög lögreglu og slökkviliðs að ekki urðu slys á mönnum í þessum bruna. Eins og Örn Bergsteinsson, aðstoðarslökkvistjóri Brunavama Suðurnesja sagði var það nánast kraftaverk að engir slösuðust. Ljósið mitt í eldmyrkrinu voru viðbrögð allra aðila þegar uppgötvaðist að um tuttugu fjölskyldur voru „á götunni". Ættingar, vinir og fleiri aðilar, s.s. Rauði krossinn og bæj- aryfirvöld brugðust vel við og vonandi leysist vel úr málum allra, þó ljóst sé að nokkrar fjölskyldur hafa tapað nánast al- eigunni í brunanum. Allsherjar söfnun verður á Suðurnesjum á morgun, fimmtudag og vonandi taka íbúar höndum saman og láta eitthvað af hendi rakna til hjálpar illa stöddu fólki eftir þennan harmleik. Ekki má heldur gleyma þætti slökkviliðs varnarliðsins í brunanum. Ef við hefðum ekki notið nærveru þess og hátæknibúnaðar er ekki gott að segja hvernig hefði tárið. A hinn bóginn er ljóst að bílar og tæki slökkviliðs Brunavarna Suðurnesja eru ekki nægilega öflug þegar svona stórbrunar koma upp. Aðeins skammt frá stóru blokkinni stóðu kratar í stór- ræðum í íþróttahúsi Keflavíkur. Og rétt þegar styttist í stór- tíðindin, sjálft formannskjörið, gerðist það ótrúlega. Sprengjuhótun barst. Maður á miðjum aldri tilkynnti um hót- unina í bílasíma. Ekki tókst að rekja símtalið eða taka það upp á band. Það hlýtur að vera umhugsunarefni fyrir lög- regluyfirvöld á Suðurnesjum hvort ekki þurfi að bæta við búnað lögeglunnar í þessum efnum, því aðeins er rúmt ár síðan tilkynning barst lögreglunni á Keflavíkurflugvelli um sprengju í Leifsstöð. Þá eins og nú, var sem betur fer um að ræða gabb. Engu að síður er hér á ferðinni stóralvarlegt mál og ótrúlegt hugsunarleysi hjá viðkomandi aðila sem gerir svona lagað. Vonandi hefur þetta ekki áhrif á þá aðila sem hafa horft til Suðurnesjasvæðisins til að halda stóra fundi eða ráðstefnur. því mjög vel tókst til með alla framkvæmd krata- þingsins og möguleikar í ráðstefnuhaldi á Suðurnesjum eru miklir. En það er skammt stórra högga á milli. Þjóðhátíð og fimmtíu ára lýðveldisafmæli verður um helgina og vonandi taka Suðurnesjamenn og landsmenn allir sig sarnan og fagna á viðeigandi hátt. A Suðurnesjum verða vegleg hátíðarhöld bæði 17. og 18. júní og þá hefur verið opnuð sögusýning um 17. júní í bæjar- og héraðsbókasafni Keflavíkur sem vert er að líta á. Við svona tímamót er ekki úr vegi að líta til baka og minnast samstöðu landsmanna fyrir fimmtíu árum þegar ís- lendingar öðluðust lýðveldi. Ohætt er að segja að miklar framfarir hafi átt sér stað í íslensku þjóðlífi og mannlífi á þessum fimmtíu árum og vonandi verður svo áfram um ókontna tíð. Víkurfréttir færa Suðurnesjamönnum og landsmönnum nær og fjær bestu þjóðhátíðarkveðjur. Páll Ketilsson i BF0' mKT f ^ Wm a STYRKÞEGAR LIÐVEISLU, f.v.: Guðný, Kristinn, Starkaður, Magnús, Margrét og I’áll Jónsson, sparisjóðsstjóri. Peningaveisla liðveislu! Sparisjóðurinn í Keflavík af- henti kr. 100.000 styrki til þriggja félaga í Liðveislu, náms- mannaþjónustu Sparisjóðsins, á föstudaginn. Einnig fengu tveir stúdentar, Magnús Konráðsson og Starkaður Barkarson, við- urkenningu fyrir góðan náms- árangur úr Fjölbrautaskóla Suð- urnesja, kr. 50.000 hver. Dómnefndin var skipuð Hjálmari Arnasyni skólameistara sem var formaður dómnefndar, Friðfinni Skaptasyni fram- kvæmdarstjóra Atvinnuþróunar- félags Suðurnesja og Guðjóni Guðmundssyni framkvæmda- stjóra SSS. Dómnefndin valdi eftirfarandi einstaklinga með hliðsjón af námsárangri: Guðný Reynisdóttir, en hún er að ljúka námi frá Pennsylvania State University í ráðgefandi sál- arfræði. Margrét Sturlaugsdóttir sem er að ljúka B.S. námi frá Charelston Southern University í Sálfræði og íþróttafræði. Krist- inn Már Pálmason en hann er að ljúka námi í málunardeild frá Myndlista- og Handíðaskóla ís- G\e2 ilega þjóðKötíð ! ÍKUR __l r^fírJ B AR - RESTAURANT - CAFFÉ Hafnargötu 19a - Simi 14601 Ráar bar: Trúbadorar BARA TVEIR fimmtudags-, föstudags- og laugardagskvöld BÍTLAHÁTÍÐ Á ÞJÓÐHÁTÍÐ HLJÓMSVEITIN JÓN FORSETI rifjar upp bestu bítlalögin föstudags- og laugardagskvöld TIL HAMINQJU MEÐ DAQINN, QÓÐIR ÍSLENDINQAR! - Ráar eldhús - HELQARMATSEÐILL Á ÞJÓÐHÁTÍÐ: Forréttur C/ljáð hörpuskel með paprikusósu Aðalréttur Qrillaður lambahryggur smurður með Dijon og raspi Desert Frönsk bananatcrta með blönduðum ávöxtum AÐEINS KR. 2.200.- Snyrtilegur klæðnaður Kvennahlaup! Kvennahlaup ÍSÍ veröur haldið Kvennréttindadaginn I9. júní og verður hlaupið í öllum sveitaifélögum á Suð- urnesjum að þessu sinni. Lagt verður af stað frá Sund- miðstöðinni í Keflavík, í- þróttamiðstöðinni í Sand- gerði, Iþróttamiðstöðinni í Garði, Iþróttamiðstöðinni í Vogum og Sundlauginni í Grindavík. Þátttökugjald er kr. 500. Flakkararnir á götuna! Listamenn á vegum Nor- ræna hússins verða í göngu- götu Flug Hótels sunnu- daginn 19. júní næstkomandi, kl. 14:00. Það er í tilefni af 50 ára lýðveldisafmælinu sem Nor- ræna húsið á Islandi stendur fyrir ferðalagi norrænna listamanna um landið dagana 9.-19. júní n.k. Hópurinn kallar ' sig NORRÆNU FLAKKARANA og í honum eru átta manna danskur kór, sem syngur létt og skemmti- leg norræn lög, fimm þjóð- lagatónlistarmenn frá Sví- þjóð og Damnörku sem munu syngja og spila og síðast en ekki síst eru tveir leikarar frá Færeyjum með barnaleikrit. Leikritið fjallar um Snata og er byggt á færeysku ævintýri. Þar koma fyrir kóngur og drottning, tröll og skessur og allt sem tileyrir góðu æv- intýri. Nordisk Kulturfond, Tea- ter og Dans i Norden, Nor- ræna ferðaskrifstofan og margar deildir Norræna fé- lagsins á Islandi hafa veitt þessari menningaruppákomu dýrmætan stuðning og gert þetta verkefni möguleg. Vonast er til að sem flestir fái að njóta þessarar skemmt- unar sem boðið er upp á, segir í fréttatilkynningu frá Norræna húsinu. Aðstaða við kirkju- garð í Njarðvík Þjónustuhús kirkjugarðs Njarð- víkursókna verður opnað formlega 19. júní nk. húsið er staðsett norð- vestan við kirkjugarðinn en þar verða m.a. áhöld til garðyrkju, vatn, gróð- urmold og geymsla fyrir verkfæri. Sr. Bragi Friðriksson prófastur blessar þjónustuhúsið og sr. Baldur Rafn Sigurðsson sóknarprestur llytur ritn- ingarorð. Húsið verður opið al- menningi til sýnis á vígsludaginn 18:00-21:00. Útafakstur og árekstrar Nokkuð hefur verið um um- ferðaróhöpp í lögsagnarumdæmi Keflavíkurlögreglunnar á síðustu dögum. Ekki hafa orðið alvarleg slys á fólki. Kl. 21:45 á fimmtudagskvöld í síðustu viku varð umferðarslys við Seltjörn þegar bifreið var ekið útaf veginum. Ekki urðu alvarleg slys á fólki. Þá varð harður árekstur ú mót- um Vesturgötu og Kirkjuvegar á föstudagskvöldið kl. 19:30. Þar sluppu allir við meiðsl.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.