Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.06.1994, Blaðsíða 9

Víkurfréttir - 15.06.1994, Blaðsíða 9
VllfUHFRÉTTIR 15. JÚNI 1994 9 ♦ Reykkafari nýkominn út úr lnisinu eftir að hafa barist við elditin á efstu Uæð Stigagangsins við Sólvallagötu 40. ♦ Þeir voru tnargir súrefniskiitarnir sem tæmdust. Hér skipta slökkviliðs- menn um einn sltkan. ♦ Allur tiltækur búmaður var notaður. Fengintt var körfubíll og úr körfunni börðust menn við eldititt við þakskegg- ið. Myndirnar eru teknar af Ijósmyndurum Víkurfrétta, O.K., hbb, SiP og pket. Jóhann Geirdal, for- maður húsfélagsins: Gengið rösklega fil verks Jóhann Geirdal, formaður hús- félagsins í Stóru blokkinni, sagði að endurbætur væru hafnar af miklum krafti og menn gengu rösklega til verks. Nú er unnið að því að koma þaki á húsið, raf- virkjar eru að störfum og inntök- um í húsið verður breytt. Þegar lokið verður við þakið verður far- ið í viðgerð á stigagöngum og síðan verdur farið að huga að við- gerðum á íbúðum. Jóhann sagði að vinnuflokkar frá bænum undir stjóm Þorsteins Vals Baldvinssonar hafi staðið sig með mikilli prýði og Þor- steinn Valur vilji allt fyrir fólk gera. Margir íbúar í húsinu hafa haft samband við blaðið og koma á framfæri þökkum til björgunar- manna. Þeim er hér með komið á framfæri. Kristjátt Pálsson, fijrir miðju, blæs af kertunum fjórum, sem standa fyrir fjögur fyrstu og síðustu ár lians í bæjarstjórn Njarðvíkur. Honum til liliðar eru Ingólfur Bárðarson, forseti og Stefán fónsson, bæjarritari. Síðasti fundur bæjarsijórnar Njarðvíkur Bæjarfulltrúar Njarðvíkur blésu af fjórum kertum á síð- asta bæjarstjórnarfundinum sem haldinn var á miðvikudag í síðustu viku. Þeir blésu í burtu síðustu fjögur árin í bæjarstjórn Njarðvíkur. Fundurinn fór frant í Stapa í Njarðvík og bar keim af því aö þetta var síðasti fundur bæjarstjórnar Njarðvíkur, l'ulltrúar báru fram kveöjur en sem kunnugt er gekk sam- eining bæjarfélaganna í gildi sl. laugardag. Meðfylgjandi ntyndir voru teknar á bæjarstjórnarfundin- um. Ragnar Halldórsson, Þorbjörg Garðarsdóttir blása með tilþrifum. Steindór Sigurðsson hugsar sig um tvisvar áður en hann lætur til skarar skriða. Mikið starf björgunarsveilanna Félagar í Björgunarsveitinni Suðurnes og í björgunarsveit- inni Sigurvon unnu mikið og gott starf í tengslum við brun- ann í Stóru blokkinni sl. fimmtudag. Björgunarsveitar- fólkið lokaði öllum leiðum að brunastað fyrir óviðkomandi umferð og annaðist umferðar- stjórnun. Göturnar fylltust nefnilega af fólki þegar það varð vart við brunann. Einnig tók björgunarsveitar- fólkið til hendinni þegar hreins- að var til í rústunum eftir brun- ann. Söfnunarátak Rauða Krossdeild á Suður- nesjum og Brosið efna til söfn- unarátaks á morgun, fimmtudag vegna brunans í Stóru blokk- inni. Þar geta hlustendur keypt út lög og þannig stutt við bakið á þeim sem misstu eigur st'nar í brunanum. Sjúkrahús Suðurnesja: Færrí fæðingar Aðalfundur Sjúkrahúss og Heilsugæslustöðvar Suðurnesja fyrir árið 1993 var haldinn þann 6. maí síðastliðinn á Flughóteli. Rekstur S.H.S. gekk vel fjár- hagslega og var hagnaður af rekstri en ársreikningur H.S.S. sýndi tap að þessu sinni. A árinu fæddust 139 stúlkur og 142 drengir en það er fækkun um 7,6% miðað við árið á undan. 135 konur sóttu Foreldranám- skeið, helmingi fleiri en árið á undan. Mæting í árlega krabba- meinsskoðun á vegum Krabba- meinsfélags Islands hefur verið í lakara lagi hér á Suðurnesjum miðað við aðra landshluta og árið 1993 var h'klega engin und- antekning en mætingin var 50% lakari en 1992. Góðir Suðurnesjamenn! Gleðilega þjóðhátíð. Sendum Suðurnesja- mönnum og lands- mönnum öllum inni- legar hamingjuóskir á þjóðhátíðardaginn Keflavíkurverktakar SUÐURNESJA- MENN! Til hamingju með 50 ára lýðveldisafmælið. #5Pf\R!5JÓDURIMM - Jér UVK rútuz ÍBK LEIKJASKÓLI ® veröur haldinn eins og undanfarin ár og hefst mánudaginn 20. júní nk. Fótbolti - Körfubolti - Handbolti - Frjálsar íþróttir - Fimleikar - Sund - Pútt og leikir - úti og inni. Farið í heimsóknir, ferðalög, skoðunarferðir o. fl. Kennt verður mánud. - fimmtud. kl. 9:30-12:00 og 13:00-15:30. Frjáls mæting föstudaga kl. 10:00-13:00. Innritun hefst fimmtudaginn 16. júní í íþróttarvallarhúsinu við Hringbraut kl. 13:00. Leikjaskóli ÍBK

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.