Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.06.1994, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 15.06.1994, Blaðsíða 16
OPNUNARTIMI I HEIMSENDINGUM Mánud.- fimmtud. 11:30 - 23:30 Föstud.-laugard. 11:30 - 05:00 Sunnudaga 11:30 - 01:00 SÍMI 14067 VVHRH Stærsta frétta- og auglýsiitgablaðið á Suðurnesjum ttíKUR F R E T T I R 24/15 Fimmtudagui' 15/6 1994 Fjöldahjálparstöð Rauða krossins: Mikið hringt Rauða kross deildin opnaði fjöldahjálparstöð í Holtaskóla strax eftir brunann í stóru blokk- inni. Þar var tekið á móti ölluni í- búum fjöibýlishússins og þeir fengu húsaskjól meðan útveguð var gisting hjá vinum og ættingj- um. Það er fyrir beiðni Almanna- varna Suðurnesja sem Rauði krossinn opnaði fjöldahjálparstöð- ina. Fljótlega gekk að koma öllum í húsaskjól, en ein fjölskylda gisti í Holtaskóla fram á sunnudag. Frá síðasta föstudegi hefur RK- deild Suðurtiesja rekið upplýs- ingamiðstöð og hjálparstöð í hús- næði Rauða krossins að Hafnar- götu 15 í Keflavík. Þangað getað íbúar Stóru blokkarinnar leilað með alla aðstoð. Þar er mikið magn af fatnaði og einnig er RK- deildin að opna móttöku fyrir hús- gögn. I kjölfar brunans var stofnaður reikningur við Sparisjóðinn í Njarðvík nr. 43 10 00. Rauði kross Islands lagði til hálfa millj- ón og Rauða kross deild á Suður- nesjum annað eins. Þá hefur safn- ast vel inn á reikninginn síðustu daga. Söfnunarbaukur var m.a. látinn ganga á flokksþingi Al- þýðuflokksins og þar söfnuðust á þriðja hundrað þúsund krónur. Þá hafa einstaklingar og fyrirtæki tekið vel við sér með tjárframlög- um inn á reikninginn. Guðmundur RJ. Guðmundsson, varaformaður RK-deildar á Suður- nesjum, sagði í samtali við blaðið að öllum íbúum hússins hafi verið færðar 10.000 krónur hver til fata- kaupa. Afganginum af þeim pen- ingum sem safnast verður varið til þeirra sem fóru verst út úr brunan- um og voru með allt sitt ótryggt. Hjálparstöðin við Hafnargötu er opin virka daga frá kl. 10-19 og síminn þar er 14747. Þar gela íbú- ar Stóru blokkarinnar fengið allar upplýsingar og leitað aðstoðar með sín mál. Hardur árekstur Mjög harður árekstur varð á Fitjum á mánudagsmorgun. Tvær bifreiðar rákust harkalega saman á gatnamótum Stekks og Reykjanesbrautar með þeim afleiðingum að önnur bifreiðin valt og hin stórskemmdist. Þriðja bifreiðin skemmdist minniháttar. Flytja þurfti fólk á sjúkrahús, en meiðsli voru óveruleg. Myndina tók SiP á slysstað. Íslandssíldin: Þórshamar fiskar vel „Þetta er vissulega síldarstemning en ekkert mok eins og það sem var hér áður fyrr" segir Jón Eyfjörð skipstjóri á Þórshamri en skipið landaði fullfermi alls 565 tonnum á Norðftrði í fyrsta túrn- um. I gær þriðjudag voru þeir á leið í land með 480 tonn af vænni sfld. Nótin rifnaði mjög illa í síðasta kasti en úr því náðust þó um 150 tonn. Jón telur að Íslandssíldin sé á norðurleið. „Það er ekki mikið að finna en þó náðum við fullfermi í fyrsta túrnum. Við fengum þessa síld við landhelgislínuna þannig að það er sóla- hringssigling á miðin og til baka." ♦ Sprengjusveit LHG var kölluð til og með tækjum stnum og tól- um var leitað að sprengju í Iþróttahúsinu í Keflavík. Landhelgis- gæzlan hefur m.a. yfir liuiulum að ráða sem cru þjálfaðir í að leita uppi sprengicfni. Mynd: SiP Enn unnið að rannsókn sprengjuhótunarinnar Lögreglan í Keflavík vinnur enn að rannsókn sprengjuhótun- arinnar sem barst vegna Krata- þingsins í Iþróttahúsinu við Sunnubraut í Kellavík. Það var karlmaður sem hringdi á lög- reglustöðina í Keflavík kl. 14:05 á laugardag og las upp yf- irlýsingu þar sem sagt var að sprengja væri í Iþróttahúsinu. Lögreglan og slökkvilið Brunavarna Suðurnesja fóru á vettvang og einnig var sprengju- sveit Landhelgisgæzlunnar köll- uð til með sín tæki og tól. Svæðið var lokað af og eftir þriggja tíma leit var þingstörf- um haldið áfram þar sem engin sprengja fannst. Eins og fyrr greinir er enn unnið að rann- sókn málsins, en lögreglu tókst ekki að rekja símtalið. MUNDI Nú verða framsóknar- menn að drífa sig..! BAKKASTÍG ló NJARÐVÍK - SÍMI 1 2560 RÉTTINGAR FRAMRÚÐUSKPTI DU PONT BÍLALÖKK GÆÐI Á GÓÐU VERÐI r' i "i Samvinmiferðir Lanúsýn OPJVUNAR' 1 )œími á 1(1. 09*17 Gleði- lega þjóð- hátíð Sími 14777 | helgina...! ...bjóðum við ; sérstakiega uppá j ! kaffiveitingar um j miðjan daginn. Opið alla laugardaga kl. 10-12 í ðumar IIEHÓK Hafnargötu 36 - Sími 13066 Landsbanki íslands Útibúin á Suöurnesjum Óskum Suðurnesjamönnum gleðilegrar þjóðhátíðar • Keflavík - Sími 11288 • Leifsstöð - Sími 50350* Sandgerði - Sími 37800 • Grindavík - Sími 68799 /, / z l. i /i /,

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.