Víkurfréttir - 09.11.1995, Page 2
2
9. NÓVEMBER 1995
VlffURFRÉTTIR
«*i»i!ffc/It<f/f/(f Ijöld ojr/ t€»ppi
GLUGGAHREINSUNf
AlhliiUt lirrhifirriiint/ar!
S í Ifl I 4 2 1 2 6 0 4
Plastbátaeigendur
takið eítir!
Getum bætt við okkur verkefnum við
plastbátaviðgerðir, breytingar og lengingar.
Smíðum einnig slynkubretti, flotkassa og
perustefni. Fljót og góð þjónusta.
Réttindamenn ineð viðurkenningu
Siglingamálastofnunar.
Tökum einnig að okkur viðgerðir á
boddyhúsum og brettaköntum bifreiða. Eigum
til skyggni á Toyota HI-Lux, Bronco II og Ford
Ranger. Allt efni lil plastviðgerða.
Vesturbraut 6, Keflavík
Sími 421-3234
Guðspekifélag
Suðurnesja
-Eru kenningar hindrun
á veglausri leið?
Sunnudaginn 12. nóvember kl.
20:00 spjallar Sigurður Bogi Stef-
ánsson um ýmsar hugrenningar
sem á hann hafa leitað. Er andleg
leið okkar t.d. rekin áfram af því
sem við höfum þegar fundið? Eru
kenningar hindrun á veglausri
leið?
Fundurinn, sem haldinn er í sal
Verslunarmannafélags Suður-
nesja, er ókeypis og öllum opinn.
Léttar veitingar verða seldar í lok
fundarins fyrir þá sem vilja.
♦ Nýr skipulngsuppdráttur hefur verið gcrður af kirkjulóðinni og
umhverfinu í kring. Þar er nú búið að lcysa bílastxðavandamál
með úthlutun á lóðinni Kirkjuvegur 20 auk þess sem bílastxði
verða á Skjaldarlóðinni ogvíðar eins oggerthafði verið ráðfyrir.
Breytingar á deiliskipulagi á kirkjuloðinni i Keflavik:
Bílastæðamál leyst
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar
samþykkti á fundi sínum sl.
þriðjudag breytingar á deili-
skipulagi á kirkjulóðinni við
Kirkjuveg2l íKeflavík.
Kirkjan hefur fengið útlilut-
aða lóðina Kirkjuveg 20 undir
bílastæði og þannig fullnægt
kröfum um bílastæði sem farið
er fram á, en gert er ráð fyrir
a.m.k. einu bílastæði fyrir sex
sæti. Var þetta einn af helstu
þáttunum sem óskað var lag-
færingar á frá núverandi skipu-
lagi.
Athugasemdir við breytingar
á deiliskipulaginu bárust frá
eigendunt fimmtán húsa við
Kirkjuteig og Kirkjuveg. Þar
voru helst þrjú atriði dregin
fram. í fyrsta lagi að umferð um
hverfið muni aukast með til-
heyrandi slysahættu og óþæg-
indum og að ekki væri gert ráð
fyrir nægjanlegum bílastæðum.
I svari bæjaryfirvalda kemur
frani að aðkorna að kirkju og
safnaðarheimili sé frá a.m.k.
þremur breiðum götum sem
tengjast við megin umferðaræð-
ar, sem eru Aðalgata, Vestur-
gata og Hafnargata. Að því leyti
séu aðstæður góðar. Með út-
hlutun á lóðinni við Kirkjuveg
20 er kröfum um bílastæði full-
nægt. Aðrar kvartanir íbúa voru
um að byggingin (nýtt safnað-
arheimili) væri stílbrjótur við
umhverfið í gamla bænum og í
annan stað að eigur viðkomandi
íbúa í nágrenninu muni rýma í
verði. Umsagnir vegna þessara
athugasemda voru á þá leið að
stfll eða útlit húss hafi ekki ver-
ið til umfjöllunar við afgreiðslu
deiliskipulags. Um hugsanlegt
verðfall á eignum var ekki tekin
afstaða til þar sem slfkt sé mjög
afstætt hugtak.
Þessi breyting á deiliskipu-
lagi verður send Skipulags-
stjórn ríkisins til samþykktar. I
franthaldi af því fengnu getur
málið er varðar bygginguna
sjálfa haldið áfram en eins og
kunnugt er var samþykkt í at-
kvæðagreiðslu á aðalsafnaðar-
fundi fyrr á árinu, að byggja
nýtt safnaðarheimili á kirkju-
lóðinni.
Efstaleiti 36, Kellat ík
142 ferm. einbýlishús ásamt bflskúr, sem er inni-
falinn í stærð. Húsínu verður skilað fullfrágengnu að
ulan. en óinnréttað. Ath. Hægt er að skila húsinu
lengra komnu, ef óskað er eftir. Hagst. Húsbréfalán
áhvílandi. Hagst. útborgun. 7300.000.-
Klapparstígur 5, Njarðvík
178 femi. einbýlishús ásamt 39 ferm.
bílskúr. Ath, 4ra herbergja íbúð ú e.h.
með sér inngangi. á n.h. 2ja herb. íbúð
með sérinngangi. Teppalagður stigi
milli hæða. " 10.600.000,-
Háteigur 8, Keflavík
68 ferm. 2ja herbergja íbúð í góðu
ástandi. Góðir greiðsluskilmálar.
4.200.000.-
Háaleiti 7, Keflavík
58 ferm. 2ja herbergja n.h. með sérinn-
cansi. Lág útborgun.
2.600.000.-
Sólvallagata 32, Keflavík
4ra herbergja e.h. 108 ferm. ásamt 39
ferm. bílskúr. Ibúðin er mikið endur-
nýjuð m.a. þak, miðstöðvarlögn og raf-
magn. Skipti á ódýrari íbúð kemur til
greina. Mjög eftirsóttur staður. Tilboð
Tjarnargata 11, Sandgerði
200 ferm. húseign á tveimur hæðum,
ásamt tveimur skúrbyggingum 127
ferm. Þessar fasteignir þarfnast
viðgerða, en gefa mikla möguleika.
“ 6300.000,-
Túngata 2011, Keflavík
102 ferm. parhús suðurendi. Húsið er í
mjög góðu ástandi. Hagstæðir
greiðsluskilmálar.
5300.000,-
Sólheimar 7, Sandgerði
85 ferm. einbýlishús ásamt 42ja ferm.
bílskúr. Laust strax.
4.800.000.-
Faxabraut 36A, Keflavík
79 ferm. 3ja heitergja íbúð á e.h. með
bílskúrsrétti. íbúðin er mikiðend-
urnýjuð, m.a. allar lagnir. Nýlegir
gluggar. Ný máluð. Hagstæð lán áhví-
andi. Góðir greiðsluskilmálar. Nánari
upplýsingar á skrifstofunni. Laus strax.
Tilboö
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
Sími 421 4848
Stofan verður lokuð nk. mánudag
13. nóv. og fyrir hádegi þriðjudag
og miðvikudag 14. og 15. nóv.
Félag Framsóknarkvenna
Fundur nk. þriðjudaginn 14. nóv.
kl. 20. í Framsóknarhúsinu.
Fundarefni:
Drífa fræðir okkur um Kínaferðina.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
Byggingaverkfræðingur
■byggingatæknifræðingur
óskast til starfa sem fyrst. Æskilegt er að
viðkomandi hafi nokkra starfsreynslu.
Umsóknir skulu vera skriflegar,
m.a. með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf.
Umsóknarfrestur er til 24. nóvember n.k.
VERKFRÆÐISTOFA
SUÐURNESJA EHF.
Hafnargötu 58 Keflavík