Víkurfréttir - 09.11.1995, Blaðsíða 6
6
9. NÓVEMBER 1995
VllOIRFRÉTTIR
♦ Þórgunnur Gunnarsdóttir, Unita í Öldunni, innan um alltvöru-
úrvalið tfatnaði sein á boðstólnum er t Öldunni í Sandgcrði.
VF/mynd: Hilmar Bragi
Allt á einum stað í Öldunni:
Vöruúrvalið aldrei
verið eins mikið
Vöruúrvalið í Öldunui í
Sandgerði hefur oft veriö mik-
ið en aldrei eins og nú. Búðin
er í raun troðfull af nýjum vör-
um. Verð á fatnaði hefur farið
lækkandi síðustu misseri og
segir Þórgunnur Gunnarsdóttir
í Öldunni verslunina vera vel
samkeppnishæfa í verði á fatn-
aði. Aldan flytur mikið beint
inn af fatnaði og það hefur
einnig leitt til lægra vöruverðs.
í Öldunni er að finna fatnað á
alla fjölskylduna og einnig
mikið af fatnaði sem tískuvöru-
verslanir eru að bjóða upp á.
Aldan fagnar 25 ára afmæli á
næsta ári en það eru þær Þór-
gunnur Gunnarsdóttir og Lydía
Egilsdóttir sem reka fyrirtækið
ásamt eiginmönnum sínum.
Bensínstöð fyrirtækisins var
nýverið endurbætt frá grunni
og hefur orðið mikil söluaukn-
ing þar enda hefur vöruúrval
verið aukið og má nú fá keypta
mjólkurvöru, brauð og kjöt í
Bensín-Öldunni. Á næsta ári
verður haldið upp á aldarfjórð-
ungsafmælið með pompi og
prakt en það er gaman að segja
frá því að sumir af þeim fjörtán
starfsmönnum sem vinna hjá
versluninni Öldunni hafa unnið
hjá fyrirtækinu allt upp í 20 ár.
Atvinna
Óskum eftir að ráða starfsmenn
í fiskverkun.
Upplýsingar í síma 421-6263.
Fiskverkun Péturs og Óla
Heiðargerði 4, Vogum.
jS
Tilboð óskast
Gerðahreppur óskar eftir
tilboðum í rekstur
Samkomuhússins í Garöi.
Allar nánari upplýsingar gefur
sveitarstjóri, á skrifstofu Gerðahrepps,
Melbraut 3, sími 422-7108.
Tilboð þurfa að berast á skrifstofu
Gerðahrepps á síðasta lagi
20. nóvember 1995.
Hreppsnefnd áskilur sér rétt til að taka
hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Sveitarstjóri
Fyrirsætur: íris Eggertsdóttir og Freydís
Kolbeinsdóttir
Förðun: Sigríður Hrönn Guðmundsdóttir
og Kolbún Hjartardóttir
Ljósmynd: Hilmar Bragi Bárðarson
Umsjón og stíll: Hilmar Bragi
Þórunn Alda og Sigrún Lind:
Islandsmeistanar í parakeppni
Þórunn Alda Gylfadóttir og Sigrún Lind Ingólfsdóttir, hársnyrtistofunni Edilon í Keflavík, urðu Is-
landsmeistarar í parakeppni á íslandsmóti Sambands hárgreiðsiu- og hárskerameistara sem fram fór á
Hótel íslandi sl. sunnudag. Að sögn þeirra sem vel þekkja til voru þær vel að sigrinum komnar, en
þernað var að útbúa par þar sem auðsjáanlegt var hvað verið væri að túlka.
Um förðun módeianna sáu þær Vilborg Einarsdóttir og Vilborg Ása Bjömsdóttir. Módelin heita
Amar og Maggý og voru að sögn Þeirra Þórunnar Öldu og Sigrúnar Lindar gripin glóðvolg þegar þau
„slysuðust" inn á Edilon skömmu fyrir keppnina.
♦ Þórunn Aldn Gylfadóttir og Sigrún Lind Ingólfsdóttir úsamt módelum sínum sein færðu þeiin titilinn
íslandsmeistarar í parakeppni 1995. VF/mynd: Jói, Ediloit.