Víkurfréttir - 09.11.1995, Blaðsíða 11
WfCURFRÉTTIR
9. NÓVEMBER 1995
11
JÚHANNIGEIRDAL SVARAÐ
ÍB'
l'HINCESS MARŒLLA
ORGHESE
JUVENA
Jóhann minn þú hefur því j
miður ekki skilið aðalatriðin í
grein minni um daginn. Þar legg
ég áherslu á að þið bæjarfulltrú-
arnir ættuð frekar að einbeita
ykkur að því að gera umhverfið
hér lífvænlegt í stað þess að
hundelta einstaka menn úti í bæ,
líkt og STAZY lögreglan gerði.
Hlutverk pólitíkusa er að vinna í
orsökunum en ekki að fitla við
afleiðingarnar, annars verður
enginn heildarávinningur.
Út úr snúningur
Annars er út úr snúningur þinn
varla svara verður. Þegar rökin
eru fá er mjög þægilegt að grípa j
til út úr snúninga og hártoganna.
Ég skil svo sem þína afstöðu. Þú j
þurftir auðvitað að svara grein-
inni sem ég skrifaði því þú hefur
persónugerft sjálfan þig sem
andlit réttvísinnar í formi skatta-
lögreglu.
Dæmisagan
þín styður mitt mál
Sagan sem þú nefnir í upphaft j
greinar þinnar styður einmitt það j
sem ég sagði, þ.e. að ef kerfið
býður upp á það og ef ávinning- j
urinn er nægilegur munu ein-
hvetjir freistast til að svíkja und-
an skatti. En hver er að svíkja
undan skatti í dæmisögunni
þinni? Mér er spum. Jú í mörg-
um tilfellum er það einmitt neyt-
andinn sem samþykkir að fella
niður lögboðin gjöld s.s. virðis-
aukaskatt, þvf hann hagnast mest j
á því sjálfur. Því miður er það
svo að ef kerfið býður upp á
svindl og menn hagnast umtals- j
vert á því þá verður það stundað. j
Þess vegna vil ég að þið stjóm-
málamennirnir snúið ykkur að
því að leiðrétta kerfið í stað þess
að eltast við einstaka skattsvik-
ara, sem þó eru svo margir s.s.
allir sem hafa keypt vörur án
virðisaukaskatts.
Eg er á móti skattsvikum
Með skrifum mínum er ég
ekki að segja að ég styðji skatt-
svik eða annað svindl. Þvert á
móti. Ég er heldur ekki að ásaka
einn né neinn um skattsvik, held-
Magnús I).
Jóhannesson
rekstrar- og
stjórnunar-
fræðingur
ur einungis að benda á að það
skiptir máli hvort menn í áhrifa-
og valdastöðum eru að eyða
kröftum sínum á orsökina eða af-
leiðinguna. Ef kröftunum er beitt
á afleiðinguna mun orsökin aldrei
verða upprætt.
Dæmi
Dæmi um muninn á orsök og
afleiðingu er sagan um hann Jón
sem kom til læknis með öxi í
hausnum og kvartaði um höfuð-
verk. Læknirinn leit á Jón og lét
hann hafa verkjalyf.. Læknir-
inn leitaði ekki orsakanna, sem
var öxin, heldur læknaði afleið-
inguna, sem var höfuðverkurinn.
Öfundin
Jóhann þú minnist á að ég falli
í þá lágkúrulegu gryfju að ”-
flokka alla viðleitni manna til að
auka réttlæti, undir öfund”. Þú
veist það eins vel og ég að það er
alls ekki sama hvemig réttlætinu
er náð fram. Þú skýtur ekki fyrst
og spyrð svo. Það er því alls ekki
nóg að vera að gera sitt besta, þú
verður að vera að gera hið rétta.
Þegar ég nefndi öfundina í
grein minni, var það ekki til að
væna bæjarfulltrúana um að öf-
undast út í einhverja aðila hér í
bæ, eins og margir hafa kannski
haldið. Ég minntist á öfundina
sem áskorun til allra í Reykjanes-
bæ um að láta nú það atriði þjóð-
arsálar Islendinga sem hvað mest
er áberandi, öfundina, ekki ráða
gjörðum sínum og samræðum.
Að lokum
Jóhann ég hef ekki nokkra
löngun til að munnhöggvast við
þig um þá leið sem þú hefur val-
ið þér. Ég er einfaldlega að
benda þér og öðmm bæjarfulltrú-
um á að þessi leið er ekki vænleg
til árangurs. Því beini ég því til
ykkar bæjarfulltrúanna að þið
sameinist í tilraun til að uppræta
orsakimar í stað þess að fitla við
afleiðingamar, sem leiða ekki til
neins nema neikvæðs heildarár-
angurs fyrir bæjarfélagið.
Magnús B. Jóhannesson
rekstrar- og stjórnunarfræðingur
iMeira
i trúa
I Jóhann Geirdal bæjarfulltrúi
| skrifaði grein í Vfkurfiéttir þann
| 2. nóvember s.l. og er greinin sú
■ ama tilefni af þessum skrifum
■ mínum. Tilefni ritsmíðar Jó-
! hanns eins og ég skil greinina var
I símtal ónafngreindrar konu og
I grein Magnúsar B. Jóhannesson-
| ar, rekstrar - og stjómunarfræð-
| ings í Víkurfréttum 26. október
| s.l.
Jóhann Geirdal fjallar í grein
. sinni um skattsvik, samkeppnis-
* aðstöðu og siðgæðisþrep fyrir-
I tækja. Hann mun trúlega einnig
I vera að verja þann gjörning
| þegar hann ásamt fleirum bæjar-
i fulltrúum ákváðu að setja á stofii
■ njósnasveit til að fylgjast með
. samborgurum í leit að skattsvik-
! urum.
Jóhann segir í grein sinni að
I rekstrarumhverfi sem ekki stand-
| ist við lög eða gildandi reglur sé
| heiðarlegum atvinnurekendum
■ erfitt. Einnig segir Jóhann að
■ nauðsynlegt sé að gera um-
| hverfið vinalegt fyrir alla - bæði
‘ fyrirtæki og íbúa. En bíðum nú
I við.
I____________________________
fi
ETIENNE AIGNER
CATALYST
FOR MEN
snyrtivörukynning
föstudag kl. 13-18
Staðgreiðsluafsláttur
og kaupauki
IfcifnciT~götvi 3~?W Sími 42 / 33//
um bæjarfull-
á villigötum
Eg hef nú um skeið komið að
rekstri fyrirtækis á Suðumesjum
sem á í samkeppnisbaráttu við
fyrirtæki sem er 100% í eigu
bæjarins. í þeirri samkeppni hef
ég ekki orðið var við vinalegt
umhverfi, siðgæði, hvað þá
heiðarlega samkeppnisaðstöðu.
Jóhann Geirdal reyndar eins og
aðrir bæjarfulltrúar virðast líta á
ónefnt samkeppnisfyrirtæki sem
óskabam Keflavíkur og telja sig
bundna við að verja hagsmuni
þess hvað sem tautar og raular. |
Jóhann hefur samþykkt ásamt !
öðrum bæjarstjómarmönnum að
kaupa alla þjónustu af eigin fyrir-
tæki án tillits til hagkvæmni.
Hann hefur samþykkt að gefa út
bæjarábyrgðir fyrir tugi milljóna
handa bæjarfyrirtækinu en á
sama tíma neitað mínu fyrirtæki
um bæjarábyrgð þó svo að nægar
tryggingar væru fyrir hendi. Þetta
þýðir að bæjarfyrirtækið fær
lægstu hugsanlegu vextina en við
þá hæstu. Jóhanni er kunnugt um
að forsvarsmaður bæjarfyrirtæk-
isins hótaði að hætta að auglýsa í
skólablaði fjölmennasta skóla
Suðumesja ef nemendafélagið
keypti þjónustu af öðmm en hon-
um. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins sem tengjast útgerð
hafa emjað á torgum um að þeir
sitji ekki við sama borð og aðrir
en síðan taka þeir sig til og
samþykkja einokun handa
öðmm. Þvilík hræsni. Kallar Jó-
hann þetta vinalegt umhverfi?
Eðlilega samkeppnisaðstöðu?
Eða gott siðgæði?
Ég gerði mér miklar vonir um
breytt viðhorf með nýju fólki eft-
ir bæjar- og sveitarstjómarkosn-
ingamar í vor. En því miður kom
fljótlega á daginn að nýju bæjar-
fulltrúarnir eru hugmynda-
snauðir, allt of leiðitamir og spila
því sömu plötur og fyrirrennarar
þeirra. Bæjarfulltrúar hins nýja
bæjarfélags em á villigötum og
þeir em hlutverki sínu ekki vaxn-
ir eins og þeir starfa. Bæjarfull-
trúar verða að gera sér grein fyrir
því að þeir em aðeins þjónar en
ekki herrar - og því fyrr sem þeir
átta sig á því, því betra fyrir alla.
Björn Blöndal
_______________________________I
MEÐ STÓRTÓNLEIKA OG ÞORLEIF GUÐJÓNSSON í BRODDIFYLKINGAR
ÁLAPARRlÉlSANDGERÐI
NK. LAUGARDAGSKVÖLD, 11. NÓVEMBER KL. 23:00 TIL 02:??
Bubbi spilar löq af væntanleqri plötu sm tileinkuó er minninqu Hauks Morthens.
MIÐAVERD A T0NLEIKA OG
DANSLEIKKR. 1.000.-
Príréttaður kvöldverður
(súpa - kj* ötréttur/f iskréttur - eftirréttur)
oq miði á tónleika oq dansleik kr. 2.200.-
VEITINGASTADUR
RESTAURANT
Strandgötu - Sandgerði
Símar 423-7977 og 423-7978