Víkurfréttir - 09.11.1995, Síða 12
12
9. NÓVEMBER 1995
VlKURPRÉTTIR
STRÆTI
Minning:
Þorgeir
*
Oskar
Karlsson
Á laugardaginn var afi minn, Geir afi, eins og ég kallaði
hann, borinn til grafar. Hann var hörkuduglegur alla sína ævi,
og þegar ég hugsa til baka þá var sjaldgæft ef hann var ekki
að vinna eða sinna áhugamálum sínum. Þegar ég var lítil, þá
bjuggu afi og Sóley á Sólvallagötu 4 og var alltaf gott að
koma þangað. Mér eru minnisstæðust þau kvöld er fjölskyld-
an kom saman að kvöldi jóladags og þá var borðaður góður
matur og spiluð spil. Síðan var það fyrir nokkrum árum síðan
að þau fluttu að Kirkjuvegi 1, eða að Hombjargi. Þangað var
einnig gott að koma. Líka var gaman að vera í sumarbústaðn-
um, sem staðsettur er á fallegum stað og dyttaði afi að honum
f frístundum sínum. Það var alltaf stutt í glettnina hjá Geir afa
og hafði hann gaman af meinlausum hrekkjum. Þó svo að
heilsan hafi brostið, þá barðist hann til endaloka. Ég mun
alltaf minnast þín og ég veit að nú ertu að safna saman kröft-
um. til að takast á við önnur verkefni. Ég þakka þér fyrir sam-
verustundir okkar, elsku Geir afi minn, og ég mun alltaf varð-
veita þær minningar sem ég á.
Birgitta María Vilbergsdóttir
Leikfélag Keflavíkur
frumsýndi s.l. föstu-
dagskvöld leikritið
Strætið eftir Jim Cartwright í
leikstjórn Þrastar Guðbjarts-
sonar. Skemmst er frá að segja
að undirritaður skemmti sér
ágætlega og þótti sýningin vera
mikill sigur fyrir Leikfélag
Keflavíkur. Leikritið var sýnt á
Litla sviðinu í Þjóðleikhúsinu
við geysilega góða aðsókn fyrir
nokkrum misserum. Ættu
Suðurnesjamenn ekki að láta
þessa sýningu fram hjá sér
fara. Leikarar í sýningunni
stóðu sig allir mjög vel.
Hafsteinn Gíslason var frábær
í aðalhlutverkinu, Guðný Krist-
jánsdóttir, Birgir Sanders og
Einar Lars Jónsson, svo ein-
hverjir séu nefndir. Einnig voru
þau Kristín Kristjánsdóttir,
Ómar Ólafsson og Jón Páll
Eyjólfsson skemmtileg í sínum
hlutverkum Leiksýningin er í
raun nokkrar sögur þar sem
skiptast á skin og skúrir, sorg
og gleði. Sveiflurnar þarna á
milli eru miklar og þar mátti
sjá mjög góð tilþrif hjá mörg-
um hinna yngri leikara og ljóst
að leikstjórinn hefur þar náð
góðum árangri. Hann bryddaði
einnig upp á þeirri nýbreytni að
nota allt húsið sem leiksvið og
kom það mjög vel út. Leikar-
amir léku í rauninni stanslaust í
tæpar 3 klukkustundir, því þeir
voru byrjaðir að leika í anddyri
Félagsbíós fyrir sýningu og
léku einnig í hléi. Það er ljóst
að í húsinu felast miklir mögu-
leikar og ef Leikfélagið ber
gæfu til þess að fá þar fastan
samastað í framtíðinni verður
það mikil lyftistöng fyrir allt
menningarlíf í sveitarfélaginu
en það er nú önnur saga. Einn
löst sá ég þó á sýningunni sem
ég get ekki látið hjá líða að
nefna og það er hin mikla
áhersla sem lögð er á tóbaks-
reykingar leikaranna. Ég held
að skilaboðin hefðu alveg
komist jafn vel til skila þótt
ekki hefði verið reykt ein
einasta sígaretta. Sérstaklega
fannst mér það óviðeigandi
þegar tekið er tillit til yngstu
leikaranna sem enn eru á
grunnskólaaldri. Ég held að
listagyðjunni hefði lfka staðið á
sama. Sviðsmyndin var sann-
færandi og skemmtileg, tón-
listin viðeigandi þótt betra
hefði verið að hafa hana lifandi
og ljósamennirnir skiluðu sfnu.
Að lokum vil ég ítreka ánægju
mína með sýninguna og skora
á Suðurnesjamenn að láta þetta
tækifæri ekki fram hjá sér fara.
Kjartan Már Kjartansson.
Leikfélag Keflavíkur:
Hvet alla tll að
sjá Stræti
- segir séra Baldur
Rafn Sigurðsson
Leikfélug Keflavíkur er að
sýna leikrilið Stræti í Félagsbíói
í Keflavík. Undirritaður fór á
leiksýningu sl. sunnudagskvöld
og var mjög ánægður með
hvernig Leikfélagið kom verk-
inu frá sér. Sýningin er mjög
lifandi og heldur áhoifandanum
vel við efnið allan tímann. Þeg-
ar mætt er á leiksýninguna er
vel tekið á móti áhorfandanum
og í leikhléi heldur sýningin
áfram.
Ég vil hvetja alla Suður-
nesjamenn til að sjá Stræti hjá
Leikfélagi Keflavíkur. Best er
að fara sem fyrst svo þið verðiö
ekki of sein að sjá þennan ýkta
raunverulcika stórborgarstrætis.
Hleypa þeir
þessum á sýninguna?
Leikfélag Keflavíkur frumsýndi sl.
föstudagskvöld leikritið Stræti eftir
Jim Cartwright. Leikarar í sýningunni
blanda sér meðal áhorfenda í anddyri
Félagsbíós fyrir sýningu. Hafsteinn
Gíslason leikur stóra rullu í sýning-
unni í hlutverki skrautlegs róna. Einn
áhorfandi á frumsýningu áttaði sig
ekki á því að leikarar væru á meðal
áhorfenda og sagði við kunningjan
sér við hlið. ,Ætla þau hjá Leikfélag-
inu virkilega að hleypa þessum
manni inn á sýninguna eins og hann
er til fara og í því ástandi sem hann
er“... Það sem betra er að viðkomandi
áhorfandi er náskyldur Hafsteini.
Stórgóð sýning
Það er hins vegar af Strætinu að
segja að þama fer stórgóð sýning og
tekst leikfélagsfólki vel upp. Fjörugir
kaflar í leikritinu halda fóíki við efrtið
og margir sýningargestir höfðu á orði
eftir frumsýninguna að orðaforði
þeirra hefði aukist mjög við að horfa
á sýninguna en orðbragðið í Strætinu
er ekki það fínpússaðasta sem til er...
Reykjanesbær: \
Kaffihús við !
smábátahöfn j
Samþykkt hefur verið í .
bæjarstjóm Reykjanesbæjar !
að veita Fídon hf. lóðina ‘
Duusgata 10, fyrir kaffihús I
úr timbri. I
Verður kaffihúsið staðsett |
við endann á Duushúsunum, |
þ.e. á hæðinni fyrir ofan |
smábátahöfnina í Grófinni.
Byggingamefnd bæjarsins J
samþykkti að veita fyrirtæk- [
inu byggingarleyfi sem og *
I stöðuleyfi til fimm ára.
I_________________________________I
Stekkjarkot
vel sótt
Um fimmhundruð manns
heimsóttu þurrabúið Stekkjar-
kot f Innri-Njarðvík í sumar
fyrir utan sérstaka hópa.
Vaxandi áhugi er fyrir kotinu
yfir vetrarmánuðina fyrir
þorrablót og er ætlunin að
leigja það út fyrir slíkar uppá-
komur.
I fundargerð ferðamála-
nefndar kemur einnig fram að
hópar grunnskólabama ofan af
Keflavíkurflugvelli Itafi aukið
komu sína í Stekkjarkot sem og
grunnskólabörn úr Keflavík og
Njarðvík.
Sýslumaðurinn í Keflavík
Vatnsnesvegi 33, Keflavík
Sími 421-4411
UPPBOÐ
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins
að Vatnsnesvegi 33, Keflavík, fimmtudaginn
16. nóvember 1995 kl. 10:00, á eftirfarandi
eignum:
Austurbraul I, efri hæð, 0201, Kefiavík, þingl.
eig. Haukur Bjarnason, gerðarbeiðendur
Bæjarsjóður Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafha,
Lífeyrissjóður Suðumesja og Ríkisútvarpið.
Baldursgata 12, neðri hæð, Keflavík, þingl. eig.
Davíð Þór Valgarðsson, gerðarbeiðendur
Bæjatsjóður Keflavikur, Njarðvíkur og Hafna
og Húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar rikisins.
Básvegur 1, vesturhluti, 0101 og 0102,
Keflavík, þingl. eig. Þb. Skagaröst hf„ gerðar-
beiðendur Bæjarsjóður Keflavíkur, Njarðvíkur
og Hafna, Gjaidtökusjóður, Kjartan Ólafsson
og Landsbanki íslands.
Básvegur 7, Keflavík, þingl. eig. G.H.
fiskverkun, gerðarbeiðandi Gjaldheimta
Suðumesja.
Efstahraun 13, Grindavík, þingl. eig. Jón Öm
Pálsson, gerðarbeiðandi Bæjarsjóður
Grindavíkur.
Elliðavellir 12, Keflavík, þingl. eig. Haraldur
Hinriksson., gerðarbeiðendur Byggingarsjóður
ríkisins, Bæjarsjóður Keflavíkur, Njarðvíkur og
Hafna og Lífeyrissjóður sjómanna.
Fitjabraut 12, Njarðvík, þingl. eig. Sólning hf„
gerðarbeiðandi Gjaldheimta Suðumesja.
Garðbraut 25A, Garðí, þingl. eig. Gestur
Þorláksson og Pálína Gunnarsdóttir, gerðar-
beiðandi Gjaldheimta Suðumesja.
Gistihúsið við Bláa Lónið, þingl. eig.
Svartsengi hf„ gerðarbeiðendur Landsbanki
íslands og Sparisjóðurinn í Kefiavík.
Hafnarbakki 7, Njarðvík, þingl. eig. Vélsmiðja
Suðurnesja hf, gerðarbeiðandi Gjaldheimta
Suðumesja.
Hafnargata 19, 0101, Sandgerði, þingl. eig.
Jónína Hrönn Baldursdóttir, gerðarbeiðendur
Byggingarsjóður ríkisins, Húsbréfadeild
Húsnæðisstofnunar ríkisins, Lífeyrissjóður
Suðumesja og Islandsbanki hf.
Hafnargata 29, Grindavík, þingl. eig. Gullvík
hf„ gerðarbeiðandi Byggðastofnun.
Hafnargata 42, fyrsta hæð 0001, Keflavík,
þingl. eig. Gunnar Bjömsson, gerðarbeiðendur
Ari Sigurðsson, Bæjarsjóður Keflavíkur,
Njarðvíkur og Hafna og VIS hf.
Hafnargata 47, neðri hæð, Keflavík, þingl. eig.
Eirikur Hansen, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn
í Keflavík VSK.
Hafnargata 70, Keflavík, þingl. eig. Jónína
Guðrún Fæiseth, gerðarbeiðendur Bæjarsjóður
Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna og Spari-
sjóðurinn í Keflavík.
Heiðarbrún 5, Keflavík, þingl. eig. Ólafur
Sigurjónsson og Inga María Henningsdóttir,
gerðarbeiðandi Kreditkort hf.
Heiðarhraun 19, Grindavík, þingl. eig. Skúli
Óskarsson, gerðarbeiðendur Bæjarsjóður
Grindavíkur og Vátryggingafélagið.
Hlíðargata 1, Sandgerði, þingl. eig. Andrés
Eyjólfsson, gerðarbeiðandi Gjaldheimta
Suðumesja.
Holtsgaa 37, Njarðvík, þingl. eig. Þóra Steina
Þórðardóttir, gerðarbeiðendur Gjaldheimta
Suðumesja og Ltfeyrissjóður verslunarmanna.
Holtsgata 46, Sandgerði, þingl. eig. Ólafur
Gíslason, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður sjó-
manna.
Hringbraut 50 efri hæð, Keflavtk, þingl. eig.
Dánarbú H. Klöru Ólafsdóttur, gerðarbeið-
endur Lífeyrissjóður Suðurnesja og Spari-
sjóðurinn í Keflavík.
Hringbraut 67, neðri hæð, Keflavík, þingl. eig.
Sæmundur Friðriksson og Sigrún Guðjóns-
dóttir, gerðarbeiðendur Bæjarsjóður Kefla-
víkur, Njarðvíkur og Hafna, Gjaldheimta
Suðumesja, Húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar
ríkisins, Lífeyrissjóður Suðurnesja og
Lffeyrissjóður sjómanna.
Hringbraut 85, neðri hæð, Keflavík, þingl. eig.
Kristinn R. Karlsson og Kristín K. Ólafsdóttir,
gerðarbeiðendur Gjaldheimta Suðurnesja,
íngvar Helgason hf. og Lifeyrissjóður sjóman-
na.
Lágmói 4, Njarðvík, þingl. eig. Sverrir
Víglundsson, gerðarbeiðendur Byggingar-
sjóður ríkisins og Lífeyrissjóður starfsmanna
ríkisins.
Lyngmói 6, Njarðvík, þingl. eig. Sigurður
Guðjónsson, gerðarbeiðandi Gjaldheimta
Suðumesja.
Mánagata 9, Grindavík, þingl. eig. Pétur
Gíslason, gerðarbeiðendur Bæjarsjóður
Grindavíkur, Gjaldheimta Suðurnesja,
Landsbanki Islands og Vátryggingafélag
Islands.
Meiðastaðavegur 7b, (Meiðastaðir vesturbýli)
Garði, þingl. eig. Pétur Sævarsson, gerðar-
beiðandi Gjaldheimta Suðumesja.
Mummi KE-30, skipaskr. nr. 542, þingl. eig.
Sæaldan hf, gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður
sjómanna og Olíufélagið hf.
Njarðvikurbraut 26, ásamt bílskúr, Njarðvík,
þingl. eig. Ester Guðmundsdóttir, gerðar-
beiðandi Bæjarsjóður Keflavíkur, Njarðvíkur
og Hafna.
Silfurtún 20c, 2 hæð, Garði, þingl. eig. Snorri
Einarsson og Málffíður Guðlaugsdóttir, gerðar-
beiðandi Gjaldheimta Suðumesja.
Smáratún 38, efri hæð, Keflavík, þingl. eig.
Guðmundur Karl Þorleifsson, gerðarbeiðendur
Gjaldheimta Suðumesja og íslandsbanki hf.
Vatnsholt 5d, Keflavík, þingl. eig. Steinunn
Þorleifsdóttir, gerðarbeiðandi Bæjarsjóður
Keflavikur, Njarðvíkur og Hafna.
Vitabraut 3, Hafnir, þingl. eig. Sæsteinn hf„
gerðarbeiðendur Bæjarsj. Keflavíkur,
Njarðvikur og Hafna, Fiskveiðasjóður íslands
og Gjaldheimta Suðumesja.
Víkurbraut 9, 0201, norðurendi, Grindavík,
þingl. eig. Ami Bjöm Bjömsson, gerðarbeið-
andi Gjaldheimta Suðumesja.
Sýslumaðurinn í Keflavík
7. nóvember 1995.
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum
vetður háð á þeim sjálfum sem hér segir
Geiðavegur 22, Garði, þingl. eig. Ingvi Steinn
Sigtryggsson, gerðarbeiðendur Byggingar-
sjóður ríkisins, Gjaldheimta Suðurnesja,
Landsbanki íslands, Lífeyrissjóður Suðumesja,
Póst og símamálastofnunin og Trygginga-
miðstöðin hf, 15. nóvember 1995 kl. 10:30.