Víkurfréttir - 09.11.1995, Page 14
14
9. NÓVEMBER 1995
VÍKUHFRÉTTIR
! NFS síöan 1
I Núna næstu vikur mun rit- I
| stjórn Vizkustykkis, skólablað |
■ FS, sjá um skrif á síðu þessa. ■
■ Við munum skrifa um allt það ■
J helsta sem gerist innan veggja J
1 skólans sem og utan hans. Við ■
I minnum ykkur kæru FS-ingar á ■
I að Vizkustykkið er ykkar blað I
| líka, ekki bara okkar sjálfselsku |
| púkanna, því hvetjum við ykkur ■
■ eindregið til að skrifa okkur ■
. greinar urn það sem þið viljið og .
* viljið ekki. Eitt mottó hér til 1
■ ykkar að lokum: Gerum betur í I
I vetur! (Stolið einhverstaðar) I
| Ástar þakkir; Brynja, |
| Marta, Thelnia, Smári, Bryn- |
■ hildur, Gunnhildur og Gugga. ■
| Unglingavandamálíð ]
Kæra fólk sent nennir að lesa. ■
, Mig langar til að fá að vita hvar ,
J þessi samtök sem standa fyrir [
■ Unglingavandamálinu eru til I
I húsa. Mig langar að fá að koma I
| í fréttunum þar sem ég er með |
I Unglingavandamálinu niður í |
■ bæ. Unglingavandamálið virð- ■
I ist nefnilega hanga þar mjög .
[ mikið, allavega heyri ég bara [
• uni Unglingavandamálið fer út t •
I sjoppu, Unglingavandamálið í I
| sundi og Unglingavandamálið í |
I bíó. Aldrei fæ ég að vera |
■ „memm”, afhverju ekki? Er ég ■
I ekki unglingavandamálinu sam- ,
J boðin, ég get gert eitthvað Ijótt [
■ af ntér. Ég get lamið niann og ‘
I annan, ég get htingið niður í bæ I
| ofurölvuð, í rauninni get ég gert |
| allt það sem Unglingavanda- |
■ málið biður mig um. Þannig að ■
. kæra fólk sem þekkir Unglinga- ,
J vandamálið, má ég vera með? J
■ Ég er búin að vera unglingur í *
I rúmlega 6 ár og aldrei nokkum- I
| tímann hef ég séð Unglinga- |
| vandamálið, ég bið aftur má ég |
■ vera með Unglingavandamálinu ■
I eða þá Brad Pitt. Maður verður ,
[ að þekkja einhvem nú á dögum [
■ til að vera „INN”.
Brvnja Magnúsdóttir. I
I I
i Söfnun FS-inga i
fyrip Flateypínga
FS-ingar létu ekki sitt eftir I
I liggja og söfnuðu fyrir þá sem I
| um sárt eiga að binda vegna |
I náttúruhamfaranna á Flateyri. |
■ FS-ingar héldu ball þann 27. ■
I október og létu ágóðann renna ,
J til landsöfnunarinnar; Samhugur J
I í verki, alls 120.000 þúsund I
I krónur. Mánudagskvöldið 30. I
| október stóð FF. Félag fram- |
| haldskóla, fyrir blysför frá |
■ Hlemmi niður á Ingólfstorg. ■
I Um sextíu FS-ingar fóru með ,
J rútu og fóru Ifka fjölmargir á [
I einkabílum. Forseti íslands, frú '
I Vigdís Finnbogadóttir leiddi I
| gönguna að Ingólfstorgi þar sem |
| haldin var stutt en falleg bæna- |
■ stund þar sem viðstaddir vott- ■
I uðu samúð sína. Allur ágóði af ,
J blysasölunni rann til söfnunar- [
I innar, Samhugur í verki. Að ■
I lokunt viljum við þakka SBK, I
| Stapanum og Pizza 67 fyrir |
| framlag sitt.
Smári L. Kristinsson. i
Gagngenan breytingar
í Járn og Skip
Miklar breytingar hafa verið
gerðar í versluninni Járn og
Skip að undanförnu. „Við höf-
um bæði aukið vöruúrval og
þjónustu", sagði Einar Stein-
þórsson, verslunarstjóri í Járn
og Skip í samtali við Víkur-
fréttir.
Að sögn Einars er um að
ræða gagngera endurskipulagn-
ingu á öllum verslunarháttum,
deildir hafa verið stækkaðar og
færðar til og þjónusta öll við
viðskiptavininn bætt enn frek-
ar.
Það sem helst má nefna er að
tvær deildir, - fittings og máln-
ingardeildin hafa verið stækk-
aðar um helming og færðar til.
Gerður hefur verið útgangur úr
búðinni út í timbursölu. Þá hafa
verið settir upp útstillingarekk-
ar með því parketúrvali sem
Harðviðarval býður upp á og
því sem Járn og Skip flytur inn
beint. Einnig hefur verið settur
upp stór sýningarrekki með
flísaúrvalinu frá Alfaborg, sem
Járn og Skip er umboðsaðili
fyrir á Suðurnesjum. Einar
sagði að nú væri boðið upp á
aukið úrval á lager en það sem
ekki væri til á staðnum yrði út-
vegað, ýmist samdægurs eða
daginn eftir. „Við höfum einnig
bætt okkur í teppa og dúkaúr-
vali og munum áfram bjóða eitt
mesta úrval landsins í blöndun-
artækjum.
Eftir þessar gagngeru breyt-
ingar á fólk ekki að þurfa að
fara í Reykjavík. Það getur
fengið hlutina hér á sama verði
og þar og við flytjum vöruna
hingað viðskiptavinum að
kostnaðarlausu", sagði Einar
Steinþórsson.
♦ Járti og Skip iiefnr
tekið miklum stakkn-
skiptum siðustu daga.
A myndinni hérfyrir
iSi ofan er Eittar
Steitiþórsson versl-
unarstjóri við tirval
hattdverkfæra. A
tttyttditttti til hliðar
gefttr að líta
gólfefttarekka versl-
tittarittttar.
ingameistari
-góður árangur
Keflvíkinga
Ágætis árang-
ur náðist á ung-
lingameistara-
móti Islands í
sundi um síðustu
helgi og gefur
hann góð fyrir-
heit um frammi-
stöðuna í bikarkeppninni sem
verður haldin eftir þrjár vikur. Af
einstaka keppendum bar Eydís
Konráðsdóttir af. Hún sigraði f
fimm greinum og var með besta
afrek mótsins er hún synti 100
metra flugsund á 1:04,82.
Róbert Birgisson kom svo
sannarlega á óvart er hann sigr-
aði í 400 metra fjórsundi. Hann
náði glæsilegum endaspretti og
vann upp 3-4 metra forskot hafn-
firska landsliðsmannsins Hjalta
Guðmundssonar. Arnar Már
Jónsson krækti í silfurverðlaun í
1500 metra skriðsundi, Róbert
hafnaði í 3. sæti í 400 metra
skriðsundi og Sunna Dís Ingi-
bjargardóttir einnig í 800 metra
skriðsundi.
í heildina var mikið um bæt-
ingar og er takmarkið hjá sund-
fólki Keflavíkur að ná góðum ár-
angri í bikarkeppninni.
Afmæli
Dumb og
Dumber
áttu aftnœli 2. og
3. nóv. Haldiö
verður strand-
arpartý ú Keflavíkurbryggju wn
helgina. Vinsamlegast mœtið ineð
klúta.
Strandverðimir!
Þettaerhann
Sveinn Ingi.
Þamaerhann
lítill trítill en er
alltafað stœkka
enda 9 ára í dag.
Til hamingju
með daginn elskn SveitnL
Pabbi, maiuia og VeigarÞór.
Sjáið! Þetta er
hann Nonni.
Hann á afiiuiii í
dag og er 14 ára.
Hann tekurá
móti kossum í
skólanum í Sand-
gerði kl. 8:00-12:25 eða á diskó-
tekinu í kvöld sem er í Sandgerði
kl. 20.
Til hamingju með daginn Nonni
okkar.
Þínar stelpur, Dísa og Heiða.
Sjáið! Þetta er luin Heiða (strákar,
hún erálausu). Hún verður 15 ára
Jostud. 10. nóv. og
tekur á móti kossum
(mega vera blautir)
í skólanum í Sand-
gerðikl. 8:00-23:45
eða á Hqfiiargöt-
urmi á fóstudags-
kvöldið. Ljóð um Heiðu:
Heiða litla lipurtá
lahbaryfir hóla
Gengur aðeins beint á
ská ogfiwnhjá honuni Ola.
Til hamingju. Þtiiar vinkonur,
Dídí og Skotta.
Brids:
JGP mótið á
Suöurnesjum
Lokið er fjóruni umferðum af 9 í
JGP-minningarmótinu hjá Brids
félagi Suðurnesja. Sveit Arnórs
Ragnarssonar fékk fullt hús stiga
síðasta spilakvöldið og tók foryst-
una í mótinu, hefir hlotið 88 stig.
Staða efstu sveita er annars þessi:
Guðfinnur KE 82
Garðar Garðarsson 67
Svala Pálsdóttir 62
Sigurjón Jónsson 58
Spilaðir eru tveir 14 spila leikir á
kvöldi. Spilað er í Hótel Kristínu á
mánudagskvöldum kl. 19:45.
♦ Þórður Marelsson nuddari að
störfum í Sandgerði. VFhnynd:
Hilmar Bragi
Vill sjá fleiri
sem ekkert
amar að!
- segir Þórðitr mtdd-
ari í Sandgerði
Þórður Marelsson nuddari
hóf nýverið störf á Snyrti- og
nuddstofu Rósu Guðna í Sand-
gerði. Þórður lærði nudd fyrir
tveimur árum hjá Rafni Geirdal
og hóf störf sem nuddari í
Sandgerði í byrjun september.
Þórður er að bjóða upp á nudd
við vöðvaspennu, slökunar-
nudd og einnig íþróttanudd.
Þórður sagði í samtali við Vík-
urfréttir að það væri nauðsyn-
legt fyrir nuddara að komast í
samband við líkama fólks og
hlusta á skilaboð líkamans.
Hann sagði það vera fólk á öll-
um aldri sem þyrfti á nuddi að
halda og hann sagðist vilja sjá
miklu fleiri sem ekkert amar
að! - fólk á að koma f nudd til
að láta sér líða betur. Þá er
nuddið uppbyggilegt fyrir lík-
amann eins og að stunda eró-
bikk eða aðrar íþróttir.
Viðskiptavinir Þórðar koma
víða að og sagði hann talsvert
af fólki koma úr Garðinum og
Keflavík þó svo stærsti hópur-
inn sé úr Sandgerði.
Keila:
Hafsteínn og
Sigurborg efst
Hafsteinn Sigurvinsson og
Sigurborg Hafsteinsdóttir urðu
efst í tvíkeilu hjá Keilufélagi
Suðurnesja um síðustu helgi.
Úrslit:
1. Hafsteinn Sigurvins/
Sigurborg Hafsteinsd. 1190
2. Ævar Ölsen/
Jón Friðrik Ólafsson 1150
3. Ingiber Óskarsson /
Ólafía Sigurbergsd. 1113
4. Bergþóra Sigurjónsd./
Sigurvin Sigurv. 1113
Það var hart barist um 3. sætið.
Tvisvar varð að leika bráða-
bana. Sá fyrri var jafn uppá
pinna en í þeim síðari náðu
Ingiber og Olla einum pinna
meira.
Iþróttahúsið í Keflavík: s
DHL deildin. ^
Sunnudagur 12. nóvember kl. 20:00.
KEFLAVÍK - ÍR
te L
Landsbanki
íslands
Útibúin á Suöurnesjunum
AFRAM KEFLAVIK!