Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.12.1995, Síða 15

Víkurfréttir - 07.12.1995, Síða 15
VffCtfHFRÉTTIR 7. DESEMBER 1995 13 LOFT & VEG6 Ódýr innimálning 4 Itr. (rá kr. 1.253.^ gjafi í 25 ár. Hundruð þúsundir manna - venjulegt fólk hefur sótt námskeið hans. Venja er að um eitt þúsund manns sæki hefðubundið John Gray nám- skeið. John Gray er fyrir venjulegt fólk. Það er einmitt styrkur hans. Hann talar tungumál, sem fólk skilur. Líkingamálið hittir í mark - bara titillinn er gríp- andi. I raun hefur fólk upplifað eigið líf með því að lesa Karlar eru frá Mars, konur eru frá Venus. I raun verið að lesa um eigið líf. Sjálfur leggur hann áherslu á breyskleika sinn. Fyrra hjónaband hans hafi ver- ið misheppnað og sársaukafullt og sagan hafi verið að endur- taka sig í síðara hjónabandinu þegar hann loks áttaði sig og tengdist konu sinni betur. Upp frá því tók líf hans líka stakka- skiptum og hann nýtur mikillar velgegni. Dr. Gray segir: “Karlar og konur tjá sig ekki aðeins á ólíkan hátt, heldur er einnig munur á þeim hvað varðar hugsun, tilfinningar, skynjun, viðbrögð, svörun, ást, þarfir og þakklæti. Það er næstum eins og þau séu ekki frá sama hn- etti, - séu frá Mars og Venus og tali ólík tungumál...Nauð- synlegt er að skilningur sé fyrir hendi til þess að bæta tengsl kynjanna. Skilningur eykur sjálfsvirðingu og reisn einstak- lingsins og vekur um leið gagnkvæmt traust, persónulega ábyrgð, eykur samvinnu og ást....Mér er það mikil ánægja að veita þér hlutdeild í Karlar eru frá Mars, konur eru frá Venus. Megir þú eilíflega vaxa í visku og ást. Megi draga úr tfðni skilnaða og fjöldi ham- ingjuríkra hjónabanda aukast. Börn okkar eiga betri heim skilinn.” Maðurinn á bak við Gray á íslandi af Suðurnesjum Fjölmiðlar í Bandaríkjunum og Evrópu hafa keppst við að birta viðtöl við Gray. Hann er löngu þjóðkunnur vestanhafs og hefur til að mynda komið fimm sinnum fram í vinsælasta umræðuþætti veraldar, hjá Oprah Winfrey. Og nú er John Gray kominn til íslands ef svo má að orði komast. Maðurinn á bak við Gray á íslandi er af Suðurnesj- um, Ólafur Grétar Gunnarsson. Hann hefur stofnað bókaútgáf- una Vöxt ásamt félögum sín- um, Halli Hallssyni, fram- kvæmdastjóra M&M, Manna og málefna og Axel Guð- mundssyni, grafískum hönn- uði. Ólafur fékk útgáfuréttinn af John Gray f Bandaríkjununt. Upphafið af samstarfi við Gray Og af því er skemmtileg saga. Um hana segir Ólafur Grétar. "I byrjun þessa árs var ég í Bandaríkjunum. Þá sá ég hjón koma fram í sjónvarpi og af mikilli hrifningu lýsa John Gray og hvernig hann bókstaf- lega hefði bjargað hjónabandi þeirra. Gleði og ánægja skein úr andlitum þeirra. Ég hugsaði með mér - þetta er sjálfsagt enn eitt yfirboðið og bullið, en ákvað að fara í bókaverslun og kíkja á bókina. Jú, sjálfur átti ég misheppnaða sambúð og hafði ekki náð að fóta mig í sambandi. Það vakti forvitni mína,” segir Ólafur Grétar. Hamingja og gleði í hverju andliti I bókaverslun blasti við aug- um bók Johns Gray. Hún raun- ar var allt um vefjandi. Var efst á metsölulista New York Times og hafði selst í 2 millj- ónum eintaka. I dag eru rúm- lega 4 milljónir eintaka seld. Og Ólafur órétar heldur áfram. “Eg keypti eintak og það er skemmst frá því að segja að ég hreifst svo af bókinni að ég ákvað að fara á hjónanámskeið hjá John Gray ásamt banda- rískri vinkonu minni. Þar voru þá um 450 hjón og stemmingin ólýsanleg. John Gray var í einu orði sagt frábær, gleði og ham- ingja skein úr hverju andliti. Andrúmsloftið hreif okkur. Hjón sem fara á námskeið og sýna í verki vilja til þess að vaxa í ást og visku, njóta vel- gegni í lífinu; það er leiðin til árangurs. Það er heilbrigð af- staða. Þetta hafði sterk áhrif á mig og mig langaði að veita Is- lendingum hlutdeild í John Gray. Mér fannst hann eiga er- indi við okkur.” Ólafur Grétar kom þvf að máli við John Gray og falaðist eftir rétti til þess að gefa bók hans út á íslensku. Gray tók honum Ijúflega, leist vel á unga Islendinginn og þeir sam- mæltust um samstarf. Og nú er bókin komin út og Islendingar hafa tekið hanni ákaflega vel. Pabbi minn er... að læra að verða betri pabbi Ólafur Grétar á tvö böm, El- ínu Ingu, 8 ára og Daníel 4 ára. Hann segir að þau kunni að meta þessa afstöðu sína, en þó átti Daníel litli í fyrstu erfitt með að skilja af hverju faðir hans sækti námskeið. “Hvað lærir þú á nám- skeiði, pabbi,” spurði drengurinn. Honum fannst sem eðlilegt er að 30 ára gamall faðir hans vissi allt. En þegar ég sagði honum að ég væri að læra að verða betri pabbi varð hann alsæll. Og nú segir hann stoltur við félaga sína og hvern sem heyra vill: Pabbi minn er á námskeiði að . læra að vera betri pabbi,” segir Ólaf- ur Grétar. Viðtökur lofa góðu og benda til þess að landsmenn séu reiðubúnir að taka boðskap hans opnum huga. Um 40 landskunnir Islendingar hafa lokið lofsorði á bókina og telja hana eiga fullt erindi við lands- menn. Svo vitnað sé í nokkra: “Ekkert er fólki - ekki síst hjónum - hollara en að geta tal- að saman með gagnkvæmum skilningi og virðingu. Bókin r dropinn sýnir óvenjulega útfærslu á þessum merkilega þætti mann- legra samskipta...”, segir Hjálmar Arnason, alþingis- maður. “Bókin ætti að vera öll- um skyldulesning” segir Arni Sigfússon, borgarfu 11 trúi í Reykjavík og Arni Þór Hilm- arsson, félagsmálstjóri segir: “Það er trú mín að bókin verði íslensku samfélagi til blessun- ar, komi í veg fyrir niðurbrot Vissir þú að vöruúrvalinu í Dropanum hefur verið breytt og það bætt til muna. Hvort sem þig vantar hugmynd að fallegri gjöf, lítinn pakka i skóinn, litrika mólningu ó eldhúsið, mottu í ganginn, dúk ó baðið, parket ó stofuna eða skemmtilega hluti til þess að skreyto með fyrir jólin littu þó endilega inn - það mun koma þér þægilega ó óvart... margra fjölskyldna og stuðli að hamingjuríkara uppeldi æsku landsins.” Og loks Sigurður Gísli Pálmason í Hagkaup sem segir: “Ég hvet fólk eindregið til að lesa bókina.” “Þannig hafa viðbrögðin verið - öll á einn veg, ánægju- leg og jákvæð,” segir Ólafur Grétar Gunnarsson. jsrir- «« oúkur»»» BLOMABUÐIN HAFNASGOTU 6 - SIMI 421 4722 § <ARIAR [RU fRAMARS KQnur eru frá Venus Bók scm bætir samskipti og styrkir sambönd .-..gcfur svör scmvtrttesi svoctnfötd.cnfáu tomafo.ft -.bvtípndJ og gcfand, Ursning...' sera Pálmi Matthíasson OPIÐ LAUGARDAGA TIL KL. 18:00 Kahrs parket ^dropinn 421 4790

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.