Víkurfréttir - 22.02.1996, Blaðsíða 3
Lítil sprengja fannst á salerni í biðsal
Leifsstöðvar í gærmorgun. Hreingemingar fólk
fann sprengjuna í rusladalli.
LFnt var að ræða lítinn hólk með fimm
púðurlengjum sem innihalda litlar sprengikúlur
líkt og í flugeldum. Kveikjuþráður stóð út úr
sprengjunni. Ljóst er að sprengjunni hefur verið
komið fyrir á salerninu í morgun þvf við
reglubundna hreingemingu í gærkvöldi fannst
ekki neitt.
Sprengjusérfræðingar frá Landhelgisgæslunni
komu á staðinn og skoðuðu sprengjuna. Ef
kveikt hefði verið í henni hefði getað orðið
talsvert tjón. Að sögn Óskars Þórmundssonar,
yfirlögregluþjóns á Keflavíkurflugvelli hefði
mesti skaðinn getað orðið hefði sprengjan
spmngið um borð í flugvél.
Engir málmhlutir voru í sprengjunni og því
fannst hún ekki við hefðbundna gegnumlýsingu
í vopnaleit.
Loðnuskipið Dagfari GK 70
fékk á sig brotsjó rétt fyrir
klukkan átta f gærmorgun.
Skipið var þá á Sandvíkinni, um
5 sjómílur frá Reykjanesi í
aftakaveðri en alls fór
veðurhraðinn í um 70 hnúta, um
og yfir tólf vindstig. Ölduhæð
var yfir tólf metrar. Fyrst í stað
var óttast um afdrif skipsins
sem var sambandslaust á aðra
klukkustund.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF
Líf kom að skipinu um kl. 9.30
en varðskipið Týr sem var í
Keflavík um morguninn var
komið á staðinn um kl. 11.
Þegar brotið reið á skipið sem
var með fullfermi af loðnu brot-
nuðu fjórir gluggar í brú bak-
borðsmegin og síðan einn
stjórnborðsmegin. Tvö önnur
skip, Breki VE og Hákon ÞH
komu fljótlega á vettvang eftir
óhappið.
Dagfari hélt sjó í allan gærdag
en vindhraði átti að minnka
með kvöldinu og var talið að
skipið myndi reyna að sigla til
Keflavíkur eða Njarðvíkur
undir morguninn.
Ekkert stórtjón varð í óveðrinu
og flóðunum í gær svo vitað sé.
ALLfiR MTNDIR Á180 KK.
EIN ELDRIFYLGIR MEÐ.
Giltlir frá og með 22. febrúar til 14. mars.
MYnd-Lvst
Imyndbandaleiga í
HÓLMGARÐI 2 - SÍMI 421 5005
wmi «odi\í: iii\divuii» nu.ra
BYE BYE
V íkurfréttir
3