Víkurfréttir - 22.02.1996, Blaðsíða 9
; ■ ■ d j i
J.
mm
Minkurinn Skúli
Þegar starfsmenn í húsgagnavöruhúsi vamarliðsins ú
Keflavíkurflugvelli mætlu til vinnu sinnar á þriðjudags-
| ntorgun rruetti þeim minkur t dýnudeildinni og telja þeir
að hann hafi verið í húsgagnaleit er hann fannst. Tókst
þeim að veiða hann í pappakassa og ala hann á andar-
steik. Minkinum hefur verið gefið nafnið Skúli og er
hann líklega eldisminkur.
♦ Þorleifur Ásgeirsson og Magnús Matthíasson virða minkinn fyri
VF-mynd/Dagný.
Tóbak hefur
ekkert breyst!
Mikil umfjöllun hefur verið í
fjölmiðlum undanfarið um
vímuefnavanda ungs fólks,
við fáum dökka mynd af
ungdómnum í dag og skýrt er frá því
hversu auðvelt sé fyrir unglinga að nálg-
ast fíkniefni. Umræðan hefur gengið svo
langt að fullyrt er að í skólunum tíðkist
notkun eiturlyfja og jafnvel sala.
Margir foreldrar hafa skiljanlega áhyggjur
af þessu og spytja sig spuminga.
Það er því mikill ábyrgðahlutur að halda
slfku fram án þess að geta sýnt frammá eitt-
hvað haldbært, umræðan er því mjög vand-
meðfarin svo hún virki ekki gagnstætt. Það
hefur sýnt sig í rannsóknum að unglingar
hafa tilhneigingu til að ofmeta reykingar
jafnaldra sinna. það reynist því gagnlegt að
leiðrétta þá ályktun með könnununt á tó-
baksneyslu þeirra. Þessar kannanir hafa þvf
reynst gagnlegar sem forvamir. Sama gæti
verið uppá teningnum varðandi önnur fíkni-
efni. Hver kannast ekki við „Já, en það em
allir sem..“
í kjölfar á þeirri umræðu, sem hefur verið
um eiturlyf, alsælu ofl. þá hef ég fengið að
heyra raddir sem segja: „Nú er sígarettan
bara saklaus í samanburði við allt hitt eitr-
ið“. En er það svo ? Nei, tóbakið hefur
nefnilega ekkert breyst. Það skaðar heilsu
manna ekkert síður nú en áður og sýnt hef-
ur verið frammá með fjölda rannsókna.
Hættan er bara sú að þegar við förurn að
umgangast efni eins og tóbak sem sjálf-
sagðan hlut í tilvemnni, þá verður það sak-
lausara í huga okkar. Tóbakið er fíkniefni,
það veldur sterkri fíkn sem verður oft svo
sterk að líkja má henni við þá fíkn sem
heróinneytendur þekkja. Þess vegna gengur
fólki ntjög illa að hætta reykingum. Tó-
baksneysla veldur dauða fjölmargra á ári
hveiju um allan heim, á íslandi deyja 300
manns af völdum tóbaksnotkunar á hverju
ári.
Rannsóknir hafa sýnt fram á að sá seni
reykir, er líklegri til þess að prófa önnur
fíkniefni en sá sem reykir ekki.
Sá sem reykir ekki er oft á tíðum með já-
kvæðari sjálfsmynd og aukinn persónu-
þroska miðað við þann sem reykir.
Reyklausir einstaklingar hafa frekar stjóm á
sínum málum,
ráða við hvatir
eða freistingar
og geta veitt
þeim útrás eftir
betri leiðum en
með því að
reykja. Þeir ráða
frekar við áreiti frá umhverfmu, geta varist
hópþrýstingi sem er vel þekktur hjá ung-
lingum, þeir líta á líkamann sem sína eign
og vilja veija hann.
Það er því til mikils að vinna með því að
halda uppi öflugum vömum gagnvart fíkni-
efnum ýmis konar líka tóbaki. Ég vil því
hvetja alla foreldra og uppalendur bama og
unglinga að sýna nú gott fordæmi og um-
gangast tóbakið sem hvert annað fíkniefni.
Rósa Víkingsdóttir, fræðslufulltrúi Krabba-
meinsfélags Suðumesja í tóbaksvömum.
Varnarliðið - laust starf:
Franrakvæmdastjóri
Stofnun verklegra framkvæmda
Flotastöð varnarliðsins
(Director of Fiscal/Personnel Division
of Public Works Department)
Um er að ræða starf er hentar vel einstak-
lingi sem er tilbúinn að takast á við krefj-
andi og síbreytileg verkefni, sem getur
unnið sjálfstætt og á gott með að
umgangast aðra.
Starfið er m.a. að vera til ráðgjafar forstjóra
stofnunarinnar, auk þess að gera fjármála-
áætlanir og samninga við innlenda og
erlenda aðila og hafi umsjón með skiptingu
fjármagns og mannafla milli hinna ýmsu
deilda stofnunarinnar. Unnið er eftir
bandarískum og íslenskum reglum
eftir því sem við á.
Hæfniskröfur:
Staðgóð starfsreynsla við fjármálastjórn
eða rekstur. Háskólapróf er æskilegt, t.d. í
viðskiptafræði. Krafist er mjög góðrar
munnlegrar og skriflegrar kunnáttu í ensku.
Skriflegar umsóknir á ensku berist til Varn-
armálaskrifstofu Utanríkisráðuneytis, ráðn-
ingardeild, Brekkustíg 39, 260 Reykjanes-
bæ, eigi síðar en 5. mars 1996.
Starfslýsing liggur frammi á sama stað og
er mjög nauðsynlegt að væntanlegir um-
sækjendur lesi hana áður en þeir sækja um,
þar sem að ofan er aðeins stiklað á stóru
um eðli og ábyrgð starfsins.
\n’da .
,0Bá
0SSSSS
l \v\- ~~
Tónlistarskólinn í Keflavík
Tölvusýning
á ”Degi tónlistarskólanna”
iaugardaginn 24. febrúar 1996 kl. 13.00 - 18.00
Opið hús í tónlistarskólanum að Austurgötu 13,
Tölvusýning frá Tölvuvæðingu,
Tæknivali og Appleumboðinu.
Allt það nýjasta í tölvutóniist og margmiðlun.
Tónlistarskólinn
í Keflavík
Aögangur ókeypis og öllum heimill
allan daginn. Kaffi á könnunni.
Tilvaliö tækifæri fyrir alla bæjarbúa
aö kynna sér starfsemi skólans.
Apple-umboðið y4-r-| Ta&knival tölvuweðing hf.
V íkurfréttir
9