Víkurfréttir - 22.02.1996, Side 19
Stórleikur í
kvennakörfu
Tvö efstu liðin í 1. deild kvenna í
körfubolta, Keflavík og Breiðablik
eigast við í Keflavík næsta mið-
vikudag. Það lið sem sigrar í leikn-
um verður deiidarmeistari en
Keflavíkurstúlkur fengu þann titil á
síðasta ári.
Keflavíkurstúlkur leika við IS á
mánudag og samkvæmt kokkabók-
unum ætti það að verða öruggur
sigur hjá Keflavík. Bæði Keflavík
og Breiðablik hafa aðeins tapað
tveimur leikjum í vetur og má því
búast við speannandi leik.
Úrslit leikja
í DHL - deildinni
Keflavík-ÍR 93:88 (45:38)
Stig Keflavíkur: Guðjón Skúlason 24, Falur
Harðarson 18, Albert Oskarsson 16, Sigurður
Ingimundarson 10, Jón Kr. Gíslason 8, Elent-
ínus Margeirsson 7, Gunnar Einarsson 6,
Davíð Grissom 4.
Stigahæstir hjá IR: Eiríkur Önundarson 21,
John Rhodes 20, Herbert Amarson 17.
UMFG-Skallagrímur 99:61 (50:25)
Stig UMFG: Marel Guðlaugsson 20, Páll
Axel Vilbergsson 15, Brynjar Harðarson 15,
Guðmundur Bragason 12, Helgi Jónas Guð-
finnsson 12, Rodney Dobard 11, Unndór Sig-
urðsson 7, Ingi Karl Ingólfsson 5, Ami Stef-
án Bjömsson 2.
Stigahæstir hjá Skallagrími: Grétar Guð-
laugsson 13, Bragi Magnússon 11.
Tindastóll - UMFN 65:78 (39:48)
Stig UMFN: Rondey Robinson 19, Gunnar
Örlygsson 17, Teitur Örlygsson 10, Sverrir
þór Sverrisson 8, Friðrik Ragnarsson 8,
Kristinn Einarsson 8, Páll Kristinsson 6, Jó-
hannes Kristbjömsson 2.
Stigahæstir hjá Skallagrími: Pétur Guð-
mundsson 18, Hinrik Gunnarsson 18.
Nágrannaslagur í Njarðvík í kvöld:
Nýr Kani með Keflavík
í Ljónagryfjunni í kvöld
„Þetta verður örugglega hörkuleikur
eins og alltaf þegar þessi lið mætast og
þá skiptir staða þeirra í deildinni engu
máli. Það verður góð umgerð um leik-
inn og ég á von á mikilli stemmingu
Fyrir þá hlytur það að vera spumingin
um hvemig þeim tekst að nyta sér nyja
erlenda leikmanninn," sagði Hrannar
Hólm þjálfari Islandsmeistara Njarð-
víkinga sem taka á móti Keflvíkingum
í Ljónagryfjunni í Njarðvík í kvöld.
Njarðvíkingar hafa nú sigrað í 14 leikj-
um í röð og em á mikilli siglingu en
þeir eiga nú tvo erfiða leiki framund-
an, fyrst Keflvíkinga í kvöld og síðan
Hauka í Hafnarfirði á sunnudaginn.
„Fyrir okkur held ég að byrjunin í
kvöld skiptir miklu máli, við höfum
verð of lengi í gang í mörgum leikjum
og því ætlum við að snúa við í kvöld.
A sunnudag verða það svo Haukamir -
við töpuðum tvívegis fyrir þeim með
eins stig mun í Hafnarfirði á dögunum
þar sem þeir hafa ekki tapað leik í vet-
ur og við ætlum okkur að verða fyrsta
liðið sem nær að snúa þeirri þróun
við,“ sagði Hrannar Hólm ennfremur.
„Þetta verður örugglega hörkuleikur
og spuming verður hvemig við stönd-
um okkur með nýja Bandaríkjamann-
inn Dwight Stewart sem kom til lands-
ins á þriðjudaginn. Stewart er mikill
vexti, 2.03 metrar á hæð og vegur 120
kíló - og það sem ég hef séð til hans á
myndböndum vekur væntingar.
Stewart sem kemur frá háskólanum í
Arkansas sem lék til úrslita í háskóla-
keppninni í Bandaríkjunum í fyrra og
sigraði í keppninni árið þar áður er
bæði sterkur undir körfunni og er ein-
nig góð 3ja stiga skytta. „Fyrir okkur
hefur leikurinn ekki minni þyðingu en
fyrir Njarðvfkinga sem em að beijast
um efsta sætið við Hauka, því við
erum að berjast um þriðja sætið við
Grindvíkinga og megum því illa við
að tapa í kvöld,“ sagði Jón Kr. Gísla-
son þjálfari og leikmður Keflvíkinga.
Ekki var leikið f DHL-deildinni á
sunnudag, en Suðumesjaliðin sigmðu
öll f sínum leikjum á fimmtudag og
þar vakti mesta athygli góður sigur
Keflvfkinga gegn ÍR-ingum, en þeir
léku án erlends leikmanns þar sem
Lenear Burns hafði verið látinn taka
pokann sinn. „Okkur fannst hann ekki
sýna nægilegan metnað í garð félags-
ins og þegar hann lét hafa það eftir sér
að þetta lið myndi aldrei vinna titil
eins og það væri skipað varð mælirinn
fullur. Við töldum að það væri ekki til
neins að vera með dýrann erlendan
leikmann sem væri sama um hvemig
leikimir fæm svo það var ákveðið að
láta hann fara - okkar metnaður er
meiri en þetta svo við áttum ekki sam-
leið með honum lengur," sagði Jón Kr.
Gíslason þjálfari og leikmaður Kefi-
víkinga.
A Sauðár-
króki þurftu
Njarðvíking-
ar að taka á
öllu sem
þeir áttu í
síðari hálf-
leik þegar
norðanmenn
vom komnir
með 6 stiga
forustu. þá
s ý n d u
Njarðvíking-
ar hversu
♦ LA Burns treður
ekki oftar með
Keflavík.
megnugir þeir geta verið og með góð-
um leik tókst þeim að Ieggja norðan-
menn. „Það var ákveðið kæraleysi í
gangi hjá okkur og menn töldu sig
ætla að taka auðveld stig, en annað
kom nú á daginn,“ sagði Hrannar
Hólm um leikinn.
Borgnesingar sáu aldrei til sólar í
Grindavík þar sem heimamenn höfðu
örlög þeirra í hendi sér næstum allt frá
upphafi. Grindvíkingar urðu þó fyrir
því óhappi að missa leikstjórnanda
sinn Hjört Harðarson meiddan útaf
þegar á fyrstu mínútunum, en maður
kemur í manns stað og Helgi Jónas
Guðfinnsson tók stöðu Harðar og skil-
aði henni mjög vel.
Bjórfrá 10 kr. glasið
Léttvín frá 90 kr. flaskan
\\U rí'
xðax-
♦ Reykjanesmeistarar UIVIFN í 8. flokki í körfu.
Körfubolti/yngri flokkar:
UMFN Reykjanesmeistari í 8. flokki
Njarðvíkingar sigruðu í Reykjanesmótinu í 8. flokki í körfubolta en mótið fór ffam í Njarðvík
3. feb. sl.
Strákamir úr UMFN sigruðu í öllum leikjum sínum, fyrst UMFG 54-27 síðan Stjömuna 50-
24 og í þriðja leiknum unnu þeir UBK 73-32. í úrslitaleiknum höfðu þeir svo betur gegn
Haukum 49-32. Þjálfari liðsins er Sverrir Þór Sverrisson.
Það er auðveldara
en þú heldur að
gera þitt eigið vín.
OPIÐ
Kl.. 1.1:00 ’l'll. 18:00
r ^
\ó
Hafnargötu 25 - sími 421 1432
íþróttahúsið í Keflavík:
DHL-deildin
Sunnudagskvöldið 25. febrúar kl. 20.00
KEFLAVÍK TINDASTÓLL
L
Landsbanki
íslands
Útibúin á Suðurnesjunum
AFRAM KEFLAVIK!
Víkurfréttir
19