Víkurfréttir - 02.05.1996, Síða 10
Keflavíkursókn
Aöalsafnaöarfundur veröur haldinn
sunnudaginn 5. maí í Kirkjulundi.
Fundurinn hefst kl. 13.00 að aflokinni
guðsþjónustu sem hefst kl. 11.00.
Dagskrá:
Venjulega aðalfundarstörf
Sóknarnefnd
SJúkrahús
Suðurnesja
Hér með er óskað eftir tilboðum í akstur með
starfsfólk milli Sjúkrahússins í Keflavík og
Víðihlíðar í Grindavík. Allar frekari upplýsing-
ar veitir undirritaður í síma 422-0580 eða á
skrifstofunni Mánagötu 9, Keflavík. Tilboðum
óskast skilað til undirritaðs í síðasta lagi fyrir
kl. 17.00 þriðjudaginn 7. maí n.k.
Framkvæmdastjóri
Sálarrannsóknarfélag
W Suðurnesja
Höfum fengið til starfa miðil frá Akureyri,
Skúla Lorenzson. Skúli er góður transmiðill og
skyggnilýsingamiðill og mun hann starfa
hjá félaginu 6. og 7. maí n.k. Tímapantanir
eru þegar hafnar.
Nánari upplýsingar í síma 421 3348
I Orlofshús
Orlofshúsum Verslunarmannafélags Suður-
nesja verður úthlutað á skrifstofu félagsins
Vatnsnesvegi 14, Keflavík frá og með fimmtu-
deginum 2. maí kl. 20.00 (húsið opnar kl.
19.45)
Um er að ræða:
Orlofshús Svignaskarði, ath nýuppgert
Orlofshús Ölfusborgum
Orlofshús Hrísum, Eyjafirði
Orlofshús Kjalbraut nr. í landi Vaðness i
Grímsnesi
íbúð Smárahlíð 14a, Akureyri (2 herbergi)
íbúð Dalsgerði 7b, Akureyri (3 herbergi)
Vikuleiga er kr. 8.000 fyrir alla staðina nema Dals-
gerði 7b kr. 10.000 og greiðist við úthlutun.
Athugið:
Þeir sem ekki hafa fengið orlofshús síðustu 5
ár hafa forgang til 15. maí n.k.
Orlofsnefnd
Ástkœr eiginkona mín, móðir
okkar, tengdamóðir, amma,
dóttir og tengdadóttir
Kolbrún Jónsdóttir
Hjallavegi 5e Ytri-Njarðvík
verður jarðsungin frá Ytri-Njarðvíkurkirkju,
föstudaginn 3. maí kl. 14.00
Þorvaldur Reynisson
Sigríður Soffía Ólafsdóttir, Sigurður Tómas Hallmarsson
Guðleif Hafdís Indriðadóttir, Gestur Arnar Gylfason
Reynir Liljar Þorvaldsson Jón Asgeir Þorvaldsson
Arnar Freyr Gestsson Steinar Sigurðsson
Soffía Asgeirsdóttir Sigurlilja Þórólfsdóttir
♦ Sólning hefur flutt dekkjaframlelðslu sína úr Kópavogi til Njarðvíkur þar sem það hefur
haft dekkjaverkstæðl í mörg ár.
Dekkjaverksmiðja Sólningar
flutt til Njarðvíkur
Sólning hefur lokið flutningi á
dekkjaverksmiðju sinni til
Njarðvíkur þar sem fyrirtækið
hefur haft dekkjaverkstæði við
Fitjabraut 12 í mörg ár. „Þetta
er fyrst og fremst hagræðing
hjá okkur“, sagði Páll Amason,
verksmiðjustjóri fyrirtækisins.
Flutningur dekkjaframleiðslu
Sólningar hefur staðið yfir í
nokkrar vikur. I vikunni var
verið að ljúka við uppsetningu
tækja- og vélasamstæðu en
Sólning framleiðir bæði heit-
sóluð fólksbfladekk og heitsól-
uð vörubfladekk.
Páll sagði að með flutningnum
hefði fyrirtækið tekið norður-
enda Sólningarhússins í notkun
en það var í leigu undanfarin
ár. Verksmiðjan verður í þeim
hluta ásamt þeim hluta sem
hýsti dekkjaverkstæðið áður.
Það flyst í suðurendann sem
áður var verkstæði fyrir vöru-
bfla og einnig lager. A pijónun-
um er síðan að byggja stál-
grindarhús undir lager á sömu
lóð.
Starfsmenn í verksmiðjunni
em að jafnaði sex en geta orðið
fleiri á haustin. Páll sagði að
nokkur samdráttur hafi orðið í
starfseminni í kringum 1990
og hefði verið viðvarandi þar
til nú að nokkur kippur hefur
orðið, sérstaklega hjá stærri
verktakafyrirtækjum. Aðspurð-
ur um verð og gæði sóluðu
fólksbfladekkjanna sagði hann
það vera um helmingi lægra en
á dýrari og þekktari dekkjun-
um en svipað eða aðeins lægra
en á ódýrari dekkjunum sem
hefðu verið flutt inn frá Kóreu
og fleiri stöðum.
Flestir starfsmenn Sólningar í
dekkjaverksmiðjunni koma af
höfuðborgarsvæðinu en tveir af
sex hafa þó ákveðið að skipta
um starf. Páll sagði að starfs-
mannamál myndu skýrast með
haustinu þegar einhver reynsla
hefði komið með flutningnum
en ijóst væri að ráða þyrfti í
einhver störf.
Fjölskylduganga í
IMjanðvík 4. maí
I tilefni af Vímuvamardeginum
munu Lionessur og Lionsmenn
í Njarðvík fara í fjölskyldu-
göngu laugardaginn 4. maí og
verður lagt af stað frá Ytri-
Njarðvíkurkirkju kl. 11.00,
Hefur Lionshreyfmgin á íslandi
ákveðið að fyrsti laugardagur í
maí mánuði ár hvert skuli til-
einkaður vímuvömum og er það
f ellefta skipti sem haldið er upp
á þennan dag.
Að göngu lokinni verður boðið
upp á kaffi og meðlæti og
einnig munu félagar úr skátafé-
laginu Víkveijum selja merki í
tilefni dagsins.
Kirkja
Keflavíkurkirkja
Sunnudagur 5. niaí: 4. sunnudagur
eftir páska.
Guðsþjónusta kl. 11.00. Sr. Sigfus
Baldvin Ingvason prédikar og þjónar
fyrir altari ásamt sóknarpresti. Kór
Keflavíkurkirkju syngur. Organisti:
Einar Öm Einarsson. Aðalsafnaðar-
fundur í Kirkjulundi eftir messu.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Mánudagur 6. maí:
Lokafundur Bjarma í Kirkjulundi kl.
20.30. Ef veður verður gott munum
við leggja til að farið verði í göngu í
Garðskagafjöru. Prestarnir.
Njarðvíkurprestakall
Innri-Njarðvíkurkirkja
Sunnudagur 5. maí: Guðsþjónusta kl.
11.00. Aðalsafnaðarfundur Innri-
Njarðvíkursafnaðar haldinn eftir guðs-
þjónustuna.
Sóknarnefnd
Y tri-Njarðvíkurkirkja
Sunnudagur 5. maí: Guðsþjónusta kl.
14.00. Kór Félags eldri boigara á Suð-
umesjum syngur við afhöfnina. Stjóm-
andi Agota Joó. Einsöngur Bima Rún-
arsdóttir. Aðalsafnaðarfundur Ytri-
Njarðvíkursafnaðar haldinn eftir guðs-
þjónustuna. Sóknarnefnd
Hvítasunnukirkjan/
Vegurinn
Bamakirkja sunnudaga kl. 11.00 og
samkomakl. 14.00. Allir velkomnir.
Safnaðarheimili
aðventista Blikabraut 2:
Laugardagur kl. 10.15. Guðþjónusta
og Bihlíurannsókn.
Kaþólska kapellan
Keflavík Skólavegi 38
Messa kl. 14.00 á sunnudögum. Allir
hjartanlega velkomnir.
10
V íkurfréttir