Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.05.1996, Side 15

Víkurfréttir - 02.05.1996, Side 15
Margir bílstjórar eins og beljur að vori: 48 teftnir fyrir of hraðan akstur - einn á 169 og lyktaði af áfengi Lögreglan í Keflavík hefður á síðustu 14 dögum tekið yfir 50 ökumenn fyrir of hraðan akstrur. Hraðametið á ökumaður bifhjóls sem tek- inn var á Sandgerðisvegi á 179 km. hraða. Bílstjóri var hins vegar tekinn á Reykja- nesbraut á 169 km. hraða og lyktaði jafnframt af áfengi að sögn lögreglu. Þrjár bif- reiðar voru teknar „í beit“ við Grindavíkurveginn á 136 km. hraða. Þar virtist um kappakstur að ræða. Ungur ökumaður var tekinn á Garð- vegi með 4 mánaða skírteini á 144 km. hraða. Þá var ann- ar tekinn á Garðvegi í Gróf á 102 km. harða á mörkum þess þar sem skipt er úr 50 yfir í 70 km. hámarkshraða. Einnig voru fjölmargir aðrir teknir á rúmlega 100 km. hraða. Sjö hafa verið sviptir ökuleyfi tímabundið. Tónleikar á sumardaginn fyrsta Á sumardaginn fyrsta stóð Tónlistarskólinn í Keflavík fyrir tvennum tónleikum. Á fyrri tónleikunum bmgðu forskólanem- endur á leik, fluttu m.a. lög frá Asíu með tilheyrandi búningum og látbragði. Auk þess lék litla lúðrasveitin fyrir tónleikagesti sem íylltu sal Tónlistarskólans að Austurgötu 13. Hinir síðari vom burtfararprófstónleikar Andrésar Bjömssonar, trompetnemanda. Með Andrési lék Krystyna Cortes á píanó. Tónleikamir fóm fram í Ytri-Njarðvíkurkirkju og á myndinni em Krystyna og Andrés ásamt Ásgeiri Steingrímssyni sem hef- ur verið aðalkennari Andrésar síðustu ár. Málmsuðukeppni FS1996 Málmsuðukeppni Fjölbrauta- skóla Suðurnesja '96 verður haldin laugardaginn 4. maí kl. 10.00 - 14.00 í málmsuðu- stofu skólans. Keppt verður á þremur mis- munandi sviðum sem em upp- suða með pinna (PF kverk- suða), lárétt logsuða (PA) og lárétt hlífðargassuða (PA). Suðutími er 45 mínúmr en ef keppandi hefur ekki lokið sín- um verkefnum eftir 60 mínút- ur verður hann látinn hætta. Suðumar verða síðan metnar og gangast undir sjónskoðum auk þess sem þijár bestu suð- umar verða röntgenmyndaðar. Ákveðinn stigafjöldi verður gefinn fyrir sjónskoðun og röntgenskoðun og einnig gef- ur réttur suðutími ákveðin stig. Sigurvegari verður krýndur FS meistari í málmsuðu 1996 og mun Landsbanki fslands og útibúin á Suðurnesjum veita verðlaun fyrir þijú efstu sætin. Söngnemendur í Ytri-Njarðvíkurkirkju Laugardaginn 4. maí n.k. munu söngnemendur Tón- listarskólans í Keflavík halda tónleika í Ytri-Njarð- víkurkirkju og hefjast þeir kl. 15.00. Flutt verður fjöl- breytt og skemmtileg efnis- skrá þar sem nemendur syn- gja einir sér og saman. Áð- gangur er ókeypis og verður tónleikagestum boðið upp á kaffi og meðlæti í safnaðar- heimili kirkjunnar að tón- leikunum loknum. Tónleikar í YtPi-Njarövíkurkirkju Húnakórinn í Reykjavík og kór Átthagafélags Stranda- manna halda sameiginlega tónleika í Ytri-Njarðvíkur- kirkju sunnudaginn 5. maí kl. 21.00. Þar verður boðið upp á fjölbreytta efnisskrá og er söngstjóri Húnakórs- ins Sesselja Guðmundsdótt- ir. Söngstjóri Strandamanna er Erla Þórólfsdóttir og und- irleikari er Laufey Kristins- dóttir. Sjúkpaþjálfun Bjapgap Björg Hafsteinsdóttir körfu- knattleikskona úr Keflavík hefur opnað eigin sjúkra- þjálfunarstofu að Faxabraut 2 í Keflavík. Björg er nýútskrifaður sjúkraþjálfari og sagðist hún vinna að endurhæfingu sjúklinga í samráði við lækna í gegnum Trygginga- stofnun. Fypsti fopsetafpam- boðsfundupinn Fyrsti frambjóðandi til for- seta sem heldur fund á Suð- umesjum er Guðrún Péturs- dóttir. Hún heldur fund á Hótel Keflavík á sunnudag kl.14. Gullpottur á Ránni Einhver Suðurnesjamaður hafði heppnina með sér sl. mánudagskvöld þegar hann vann Gullpottinní Gull- námunni, á Ránni. Upp- hæðin var 10.938.779 krón- ur og eyddi sá sem hafði heppnina með sér aðeins 500-600 krónum. ♦ Níundi flokkur Keflavíkur íslandsmeistarar í körfu. F.v. efri röð: Jón Guðbrandsson, þjálfari, Eiður Brynjarsson, Magnús Gunnarsson, Hákon Magnússon, Sæmundur Oddsson, Sævar Sævarsson, Jón Hafsteinsson, Sævar Gunnarsson. Neðri röð f.v.: Guðmundur Birgisson, Ari Þór Guðmannsson, Sigurður Sigurbjörnsson, Daníel Þórðar- son, Gísli Einarsson, Margeir Margeirsson og Davíð Þór Jónsson. ♦ Jón Guðbrandsson hampar bikarnum en hann hefur náð mjög góðum ár- angri í þjálfun undanfarin ár. Keflaviskir íslandsmeistanar Níundi flokkur Keflavíkur í körfu varð Islandsmeistari ný- lega. Keflvíkingar unnu KR- inga í úrslitaleik með yfir tutt- ugu stiga mun í Laugardals- höllinni. Jón Guðbrandsson hefur þiálfað strákana í mörg undanfarin ár en mun ekki gera það á næsta keppnistíma- bili en undir hans stjóm náðu þeir frábæmm árangri. BINGÓ • BINGÓ • BINGÓ TIL ÍRLANDS MEÐ LIONS Bingó í Stapa öll fimmtudagskvöld kl. 20:30. í kvöld verður dregið um ferð til DUBLIN með SAMVINNUFERÐUM LANDSÝN og vöruúttektir í SAMKAUPUM. MEÐ HÆSTA VINNINGSHLUTFALLI SEM ÞEKKIST LÁTTU EKKI HAPP ÚR HENDI SLEPPA MÆTTU Á BINGÓ í STAPANUM í KVÖLD. Lionsklúbbur Njarðvíkur HRAÐFRYSTIHÚS TIL SÖLU FISKVEIÐASJÓÐUR ÍSLANDS auglýsir til sölu hraðfrystihús við Strandgötu 6-8 Sandgerði, áður eign Útgerðarfélagsins Barðans hf. Tilboð í eignina óskast send á skrifstofu sjóðs- ins fyrir kl. 15.00, þriðjudaginn 14. maí 1996. Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Guð- jónsson á skrifstofu sjóðsins, Suðurlandsbraut 4, Reykjavík sími 588 9100 Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. FISKVEIÐASJÓÐUR ÍSLANDS Y íkurfréttir 15

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.