Víkurfréttir - 12.06.1997, Blaðsíða 8
Glaðningur með gjaldeyrinum!
Þegar keyptur er ferðagjaldeyrir í íslandsbanka fyrir 30.000 kr.
eða meira fylgir skemmtilegur sumarglaðningur; tennisspaðasett,
peningastaukur og sólskyggni. Gjaldeyrir er til ^
t afgreiðslu í öllum útibúum íslandsbanka.
qjaldey
ISLANDSBANKI Það verður stað á ströndinni í sumar!
Guð gaf mér eyra!
Það var brugðið á leik á vortón-
leikum Tónlistarskólans í Keflavík
nýlega í Keflavíkurkirkju. Þegar
nokkrir nemendur léku lagið „Guð
gaf ntér eyra“ vildu þær Þóra Björg
Sigurþórsdóttir og Edda Rós
Skúladóttir, sem báðar eru fiðlu-
nemendur, heyra örlítið betur og
fengu þess vegna stærri eyru til
þess!! VF-mynd: pket.
Margir vegir á Suðurnesjunt eru
illa farnir og í raun stórhættu-
iegir vegna þess hversu djúp
hjólför eru komin í þá. Reykja-
nesbrautin er sem stórfljót á
rigningardögum og sömu sögu er
að segja af Grindavíkurvegi.
Skilti hafa verið sett upp við
brautina til að vara við djúpum
hjólförum. Það er bara ekki nóg.
Urbóta er þörf!
Kjarna • Hafnargötu 57
Keflavík
Símar 421 5222 • 898 6900 • 899 0599
Sjúkrahús Suðurnesja:
Þrír sækja
um stöðu
yfirlæknis
Þrír umsækjendur eru urn stöðu
yfirlæknis Sjúkrahúss Suðumesja
en sem kunnugt er sagði Hrafnkell
Óskarsson upp stöðu sinni fyrir
skömmu. Þetta eru þeir Konráð
Lúðvíksson yfirlæknir fæðinga-
deildar Sjúkrahúss Suðurnesja,
Sveinn M. Sveinsson, skurðlæknir
sem starfað hefur í Svíþjóð og
Ársæll Kristjánsson, þvagfæra-
skurðlæknir úr Reykjavík.
Þá bámst tvær umsóknir um stöðu
svæfingalæknis, frá Jóni Stein-
grímssyni í Noregi og Maríu
Sverrisdóttur í Hollandi. Báðar
stöðumareru 100% störf.
Að sögn Jóhanns Einvarðssonar
framkvæmdastjóra Sjúkrahúss- og
heilsugæslu voru nöfn umsækj-
enda kynnt á stjómarfundi í vik-
unni en untsóknimar hafa nú verið
sendar til umsagnar hjá stöðunefnd
eins og venja er.
8
Víkuifréttir