Víkurfréttir - 29.10.1998, Blaðsíða 10
cmai ai fjaii i oyiuuy-
unni auk fjölda fólks
sem adstodar
við smíðar, hár-
greiðslu,förðun,
leikmuni, hljóð,
ofl.ofl.
„Mér fannst þetta
leikrit taka á málum
sem við þekkjum í
dag og koma öllum
við og má þar nefna
umræðuna um hvort
nýta eigi náttúruauð-
lindir íslands eða
ekki".
Frá æfíngu á
Máttarstólpum þjóð-
félagsins á þriðjudags-
kvöld. VF-myndir: Dagný
Leikarar úr
| höfuðborginni |
; í Keflavík ;
I Laugardaginn 31. októ- *
J ber kl.14. kemur hingað
hópur áhugaleikara af
I höfuðborgarsvæðinu og |
I verður irieð leikhússport |
I í Frumleikhúsinu úsamt I
I félögum úr Leikfélagi I
J Ketlavíkur. Öllum er vel-
komið að koma að fylgj-
I ast með.
Frumleikhúsið:
| Myndlist - Leiklist |
. Mæðginin Hjördís Árna- .
I dóttir og Rúnar Jóhann- |
I essonar verða með olíu- |
I mj ndir til sýnis og sölu í I
I Frumleikhúsinu, Vestur- I
[ götu 17, á meðan sýning-
[ ar Leikfélags Keflavíkur
I á Máttarstólpum þjóðfé- |
I lagsins standa yfir. |
I Þau gafa bæði starfað I
I með Baðstofunni að und- I
anförnu og notið þar I
leiðsagnar Sossu og
I Reynis Katrínarsonar. .
I Hjördís hefur einnig not- |
I ið leiðsagnar Jóns Agúst- |
I ar Pálmasonar. I
I______________________I
Níunda uppsetn-
ing Huldu með LK
Stórverkið Máttarstólpar
þjóðfélagsins eftir Henrik
Ibsen. Leikstjóri er Hulda
Ólafsdóttir en hún er einnig
þýðandi verksins. Höfundur
tónlistar er Sigurður Guð-
mundsson, Ijósahönnun er í
höndum Árna Baldvinsson-
ar og Sveindís Valdiinars-
dóttir sér um búningana.
Alls taka um 2(1 leikarar
þátt í sýningunni auk fjölda
fólks sem aðstoðar við smíð-
ar, hárgreiðslu,förðun, leik-
muni, hljóð, ofl.ofl.
Leikstjórinn Hulda Ólafs-
dóttir er leikfélaginu vel
kunnug, en þetta er níunda
uppsetning hennar með fé-
laginu. Aðrar uppsetningar
eru Skemmtiferð á vígvöll-
inn, Erum við svona?, Við
kynntumst fyrst í Keflavík,
Hjónabönd, Lína
Langsokkur, Stígvélaði kött-
urinn, Stöndum saman og
Leikhúslíf. Uppselt er á
frumsýningu, en önnur sýn-
ing verður sunnudaginn 1.
nóvemberkl.16. Þriðja sýn-
ing þriðjudaginn 3. nóvem-
ber kl.20.30. og fjórða sýn-
ing fimmtudaginn 5. nóv-
ember kl.20.30. Miðasala
ir symngu. Sinn Irumleik-
hússins er 421 2540. Það er
von þeirra sem að sýning-
unni stöndum að seni flestir
suðurnesjamenn sjái sér
fært að niæta og eiga með
þeim notalegt kvöld.
Leikfélag Keflavíkur frumsýnir máttarstólpa þjóðfálagsins eftir
Ibsen í leikstjórn Huldu Ólafsdóttur:
m ríkI þltt
STBBURAfu
Leikfélag Keflavíkur frum-
sýnir n.k. föstudag stofuleik-
ritið Máttarstólpar jjjóðfé-
lagsins eftir Ibsen sem þrátt
fyrir háan aldur virðist enn
eiga erindi til okkar.
Alls taka yfir 30 manns þátt í
sýningunni en æfingar hafa
staðið yfir frá ágústlokum.
Leikstjóri er Hulda Ólafsdóttir
en hún þýðir jafnframt verkið.
En af hverju skyldi hún hafa
valið einmitt þetta „stykki”?
„Ég var búin að ganga með
það lengi í maganum eða frá
því að ég las það fyrir mörg-
um árum”, segir Hulda sem
jafnframt viðurkennir að hafa
aldrei séð leikritið á sviði áður
fyrr en nú.
Áðspurð um hvað Máttar-
stólpar þjóðfélagsins fjaJli um
svarar hún eftir nokkfa um-
hugsun „tvískinnung, r öllum
mannlegum samskiptum. Allt
liefur sínar mörgu hliðar og
hvar liggur sannleikurinn,
ha?”, segir Hulda með
áherslu.
Hún segist alltaf hafa verið
hrifin af Ibsen.
„Mér fannst þetta leikrit taka
á málum sem við þekkjum í
dag og konia öllunt við og má
þar nefna umræðuna um hvort
nýta eigi náttúruauðlindir Is-
lands eða ekki. Ibsen samdi
Máttarstólpana fyrir 120 árum
síðan, þá 50 ára gamall og var
það hið fyrsta af mörgum
samfélagslegum leikritum
hans sem jafnframt vakti at-
hygli á höfundinum á heints-
vísu. Mér finnst leikritið segja
svo mikið í dag um okkur
sjálf og þau átök sem enn eiga
sér stað íþjóðfélaginu”, segir
Hulda og eru Suðurnesja-
menn hvattir til þess að láta
Máttarstólpa þjóðfélagsins
ekki fram hjá sér fara.
10
Víkurfréttir