Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.10.1998, Blaðsíða 12

Víkurfréttir - 29.10.1998, Blaðsíða 12
Viðtal: Páll Ketilsson Myndir: Hilmar Bragi 't;,. wðÍÍSsVV Keflvíkingurinn Jóhann B. Guðmundsson sló í gegn í fyrsta byrjunarliðsleik sínum með Watford: mm „Guddr' fehk gæsahuð þegar nafn hans var sungiö „Þetta var ótmleg upplifun og ekki laust við að maður fengi gæsahúð þegar maður heyrði nafn sitt sungið á áhorf- endapöllunum. Það er auðvit- að varla hægt að byrja betur”, sagði Keflvíkingurinn Jóhann B. Guðmundsson sem fékk óskabyrjun með enska 1. deildarliðinu Watford þegar hann skoraði tvö mörk í 2:2 jafntefli gegn Port Vale í ensku deildinni sl. laugardag. Óvæntur séns „Þessi séns kom óvænt þó vissulega hafi ég gert mér vonir um að komast í hópinn. Eg var búinn að vera í honum í tvígang á síðustu vikum, og kom inná síðustu tólf mínút- urnar í sigurleik okkar gegn Arnari, Guðna Bergs og fé- lögum gegn Bolton en þá tá- brotnaði hægri bakvörður okkar. í næsta leik var kant- maðurinn sem ég hef verið að berjast við um stöðu settur í bakvarðarstöðuna og ég fór í hans stöðu á kantinum”, sagði Jóhann léttur í bragði þegar við slógum á þráðinn til hans í Watford. Jóhann hefur frá því í mars þegar hann kom til Englands verið í herbergi hjá enskri konu en átti að fá íbúð til afnota í gær. „Guddi - Guddi" í leiknum gegn Port Vale skoraði Keflvíkingurinn ungi bæði mörk Watford. Fyrra markið skoraði hann með föstu skoti með vinstri fæti eftir að boltinn hafði óvænt komið fyrir fætur hans inn í ntiðjum teig. I seinna markinu kom fyrirgjöf inn í markteig. „Boltinn kom beint á hausinn á mér. Ég þurfti rétt aðeins að færa mig og náði að skalla boltann þokkalega sem endaði alveg út við stöng og inn”. Eftir seinna markið fóru áhagendur Watford að syngja nafn Jóhans á pöllunum „Guddi”, „Guddi”!! en það er hann kallaður. „Þetta er nokk- urs konar stytting á Guð- mundsson”, segir Jóhann og hlær, „það er hægt að segja að maður hafi fengið góða gæsa- húð þegar maður heyrði |retta". Jóhann vonast til að geta fylgt þessari frammistöðu eftir og gerir sér vonir um að vera í byrjunarliði Watford í næsta leik sem er á útivelli gegn Bury. Jóhann segir að það hafi verið skemmtileg tilviljun að faðir hans kom út og fylgdist með honum í fyrsta sinn með liðinu. Maður leiksins Stuðningsmenn Watford gerðu meira en að syngja nafn lians á leiknum. Þeir kusu hann mann leiksins og það gerðu einnig allir fjölmiðlar sem fjölluðu um leikinn. I dagblaðinu News of the world er stór mynd af Jóa þar sem hann fagnar öðru markinu. Þegar tíðindamaður Víkur- frétta spurði Jóhann hvort hann gæti ekki útvegað sér Ijósmynd af sér í nýja bún- Ur bikarurlsitajeik Keflavikur og IBV a ingnum svaraði hann því til að faðir hans haft farið í verslun þar sent ntyndir af leikmönn- um og ýmislegt tengt liðinu er selt, haft hann fengið þau svör að allar myndir af nýju hetj- unni í Watford haft selst upp. Jóhann segir að hann verði að halda sér á jörðinni þó vel hafi gengið í fyrsta heila leiknum með liðinu sem stórstjarna poppsins í Bretlandi, Elton John, á meirihluta í, en Kefl- víkingurinn fékk bréf frá hon- um 11 jótlega eftir að hann kom til liðsins þar sent hann bauð hann velkominn og óskaði honum góðs gengis en Itvað sagði framkvæmdastjóri liðs- ins, Graham Taylor við markahrókinn eftir leikinn? „Hann hafði nú ekki mörg orð en sagði; „Well done son”!, sagði Jóhann en jretta er hægt er að þýða; „Góður leikur strákur”! eða eitthvað í þá átt- ina. Með ísraelum og Belga Jóhann er einn fjögurra út- lendinga hjá Watford. Hann kont til liðsins í mars síðast- liöinn fyrir 85 þús. pund eða rétt tæpar 100 millj. ísl. króna. Hjá Watford eru fyrir tveir leikmenn frá ísrael. annar er kunnur landsliðsmaður og lék áður með Liverpool og Tottenham og heitir Ronnie Rosenthal. Þá er einn belgfsk- ur leikmaður hjá liðinu. Peningarnir Það skiptir ntiklu ntáli að komast í 14 manna leik- mannahópinn hjá Watford hvað peninga varðar. Þeir fá bónusana sem geta verið tölu- verðar upphæðir. Þrjátíu og fimm atvinnumenn æfa nteð Watford og það er hart barist um hverja stöðu í liðinu. Þessi frammistaða Jó- hanns sl. laugardag getur því skipt ntiklu máli fyrir hann. 12 Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.