Morgunblaðið - 27.04.2016, Page 1
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2016
ÍÞRÓTTIR
Íslandsmeistarar Afturelding sigraði HK í fjórða úrslitaleik liðanna í blaki kvenna og náði
Íslandsmeistaratitlinum úr höndum Kópavogsliðsins. Mosfellingar unnu alla titlana í vetur. 2-3
Íþróttir
mbl.is
Á ÁSVÖLLUM
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
,,Þetta er geggjuð tilfinning. Ég kom
til Snæfells til að vinna titla og það
hef ég svo sannarlega gert,“ sagði
Bryndís Guðmundsdótttir, leik-
maður Snæfells, við Morgunblaðið
eftir sigurinn á Haukum í hreinum
úrslitaleik um Íslandsmeistaratitil-
inn í Dominos-deild kvenna í körfu-
knattleik að Ásvöllum í gær. Bryn-
dís ákvað að yfirgefa Keflavík vegna
ósættis rétt fyrir mótið og hún hefur
svo sannarlega reynst Snæfells-
liðinu góður liðsstyrkur. Bryndís
skoraði 12 stig og lék stórt hlutverk í
varnarleik síns liðs.
,,Það var kominn tími til að vinna
Haukana á Ásvöllum og við höfðum
svo mikla trú á okkur sjálfum. Við
náðum að stjórna leiknum frá upp-
hafi til enda og ég held að flest hafi
gengið upp sem við ætluðum okkur
að gera. Fyrir fjórða leikinn breytt-
um við um og létum Haiden spila
vörnina á Helenu og ég kom í hjálp-
arvörnina. Þetta gekk ljómandi vel
og átti sinn þátt í að við unnum þessa
tvo síðustu leiki. Ég ætla svo sann-
arlega að halda áfram í Snæfelli
enda ekki hægt að fara frá liðinu á
þessum tímapunkti,“ sagði Bryndís.
Boltinn vildi ekki ofan í
,,Þessi niðurstaða er auðvitað
gríðarleg vonbrigði. Við vildum svo
mikið vinna titilinn á heimavelli en
því miður fór ekki svo. Okkur gekk
bara ekkert að koma boltanum ofan í
körfuna. Við fengum endalaust mik-
ið af góðum skotum en boltinn vildi
bara ekki fara ofan í,“ sagði Helena
Sverrisdóttir, leikmaður Haukanna,
við Morgunblaðið eftir leikinn. Hel-
ena skoraði 26 stig og kom stór hluti
þeirra í síðasta leikhlutanum en hún
var í strangri gæslu stóran hluta
leiksins.
„Snæfell tvöfaldaði vörnina á mig
og stundum þrefaldaði en mér
fannst við alveg leysa það vel. Við
náðum að opna fyrir frí skot en við
náðum ekki að nýta þau. Þegar
svona gerist er erfitt að vinna leiki.
Auðvitað getur verið að tauga-
spenna hafi sett strik í reikninginn
enda mikið undir en við mætum bara
sterkari til leiks á næsta tímabili.
Við erum með ungt lið sem á fram-
tíðina fyrir sér,“ sagði Helena.
Þetta var frábært einvígi
,,Ég er í sigurvímu og mér líður
ótrúlega vel núna. Við höfðum allan
tímann trú á að við gætum unnið
einn leik á Ásvöllum og það tókst í
þriðju tilraun. Sterkur varnarleikur,
góð liðsheild, þolinmæði og frábær
stuðningur skilaði okkur Íslands-
bikarnum. Uppleggið var að taka
frumkvæðið frá byrjun. Það tókst og
við litum aldrei til baka eftir það.
Þetta var frábært einvígi, það er æð-
islega gaman að spila við Haukana
og ég þakka þeim kærlega fyrir
þessa frábæru úrslitakeppni. Um-
gjörðin í kringum þessa leiki var
meiriháttar og í kvöld var hálfur
bærinn mættur til að styðja við bak-
ið á okkur. Það voru ekki margir eft-
ir heima,“ sagði María Björnsdóttir,
leikmaður Snæfells.
„Við höfum sýnt þjóðinni að við
erum með besta lið Íslands. Við unn-
um bæði bikarinn og Íslandsmótið
og nú verður sko fagnað næstu dag-
ana, held ég. Það verður alla vega
gríðarlegt fjör í rútunni vestur í
Hólminn,“ sagði María.
Ræð bara ekkert við mig
Alda Leif Jónsdóttir var grátandi
af gleði þegar undirritaður spjallaði
við hana í sigurgleði Snæfells.
,,Þetta er yndisleg tilfinning og ég
ræð bara ekkert við mig. Við vorum
staðráðnar í að sýna hvort liðið er
betra og við gerðum það svo sannar-
lega. Varnarleikurinn var frábær og
lagði öðru fremur grunninn að sigr-
inum. Ég ætlaði að hætta í fyrra en
ég sé svo sannarlega ekki eftir því að
hafa haldið áfram. Þetta er búið að
vera svo skemmtilegt og frábært
tímabil,“ sagði Alda Leif.
Morgunblaðið/Eggert
Gleði Leikmenn Snæfells höfðu svo sannarlega ástæðu til að fagna innilega eftir sigurinn í oddaleiknum gegn Haukum í gærkvöld. »2-3
Kom til að vinna titla
Bryndís Guðmundsdóttir fór frá Keflavík til Snæfells rétt fyrir mót Með
ungt lið sem á framtíðina fyrir sér, sagði Helena Yndisleg tilfinning, sagði Alda
Vafi leikur á
hvort Magnús
Stefánsson,
fyrirliði ÍBV,
geti leikið með
liðinu gegn
Haukum í þriðja
undanúrslitaleik
liðanna á Íslands-
mótinu í hand-
knattleik á föstu-
daginn. Magnús
hlaut slæma byltu í viðureign lið-
anna í fyrra kvöld og fékk þungt
högg á öxlina. Magnús fór í mynda-
töku í gær og liggur niðurstaða
hennar fyrir í dag.
Auk meiðslanna í öxlinni hefur
Magnús ekki bitið úr nálinni eftir
að hafa handarbrotnað fyrir fá-
einum vikum. iben@mbl.is
Magnús fór í
myndatöku
Magnús
Stefánsson
Arnór Ingvi
Traustason,
landsliðsmaður í
knattspyrnu,
þurfti að bíða í
átta mínútur eft-
ir því að geta
tekið vítaspyrnu
undir lok leiks
Norrköping og
Hammarby í
sænsku úrvals-
deildinni í gærkvöld.
Á 89. mínútu leiksins var dæmd
vítaspyrna á gestina úr Hammarby,
en staðan var þá 2:1 fyrir Norrköp-
ing. Það var meira en stuðnings-
menn Stokkhólmsliðsins þoldu,
hluti þeirra reyndi að komast inn á
völlinn og stöðvaði dómarinn leik-
inn á meðan stillt var til friðar.
Loksins þegar leikurinn gat haf-
ist á ný tók Arnór vítaspyrnuna og
skoraði af öryggi sitt fyrsta mark í
deildinni á þessu tímabili, án þess
að Ögmundur Kristinsson í marki
Hammarby fengi rönd við reist.
Meistarar Norrköping eru þar
með á toppi deildarinnar. Íslend-
ingarnir fimm í liðunum tveimur
spiluðu allir og fjórir þeirra leikinn
á enda. vs@mbl.is
Beið eftir víti
vegna óláta
Arnór Ingvi
Traustason
Björg Hafsteinsdóttir körfuknatt-
leikskona vann fimmtán stóra titla með
Keflvíkingum á árunum 1988 til 1997.
Björg fæddist árið 1969 og lék allan
sinn feril með Keflavík. Hún var í stóru
hlutverki í mikilli sigurgöngu liðsins
sem varð átta sinnum bikarmeistari og
sjö sinnum Íslandsmeistari á umræddu
tímabili, og árið 1998 bætti hún við
báðum titlunum sem liðsstjóri liðsins.
Björg var lengi fastamaður í landsliði Ís-
lands og lék 33 landsleiki.
ÍÞRÓTTA-
MAÐUR
DAGSINS