Morgunblaðið - 27.04.2016, Síða 3
Á ÁSVÖLLUM
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Snæfell úr Stykkishólmi á besta körfu-
boltalið landsins í kvennaflokki, en lið-
ið varð í gærkvöld Íslandsmeistari
þriðja árið í röð eftir sigur á Haukum,
67:59, í oddaleik liðanna sem fram fór í
frábærri umgjörð í Schenker-höllinni.
Snæfell er þar með bæði Íslandsmeist-
ari og bikarmeistari og þjálfarinn Ingi
Þór Steinþórsson bætti enn einni
skautfjöðrinni í hattinn á farsælum
þjálfaraferli sínum. Það verður fagnað
í Hólminum næstu daga, en stór hluti
íbúa Stykkishólms var mættur á Ás-
velli í gær til að styðja við bakið á stolti
bæjarins sem kvennalið Snæfells er
svo sannarlega.
Það mátti greinilega merkja tauga-
spennu hjá leikmönnum beggja liða til
að byrja með. Jafnræði var með lið-
unum í fyrsta leikhlutanum en Snæfell
var þó skrefinu á undan og var þremur
stigum yfir, 18:15, að loknum fyrsta
leikhlutanum. Meistararnir náðu að
halda Helenu Sverrisdóttur algjörlega
í skefjum, en hún náði aðeins að skora
þrjú stig í leikhlutanum og það voru
síðustu stig Haukanna í honum.
Snæfell náði góðu áhlaupi í öðrum
leikhlutanum. Bryndís Guðmunds-
dóttir gaf tóninn með tveimur þriggja
stiga körfum með skömmu millibili og
Snæfellsliðið spilaði frábæra vörn og
ekki síst á Helenu. Helena náði aðeins
að skora eina körfu í leikhlutanum og
var með slaka skotnýtingu enda oft
þvinguð í erfið skot. Þá var Pálína
Gunnlaugsdóttir án stiga, en sóknar-
leikur Haukanna gekk engan veginn
upp. Sóknarleikurinn var skömminni
skárri hjá Snæfellingum en tíu stiga
forysta þeirra í hálfleik, 31:21, var
mest góðum varnarleik að þakka.
Haiden Denise Palmer hitti mjög illa,
aðeins úr 4 af 16 skotum sínum.
Þriðji leikhlutinn einkenndist af
mistökum á báða bóga og á tímabili
var leikmönnum fyrirmunað að koma
boltanum rétta leið. Áfram hélt
Palmer að spila góða vörn á Helenu og
fékk líka góða hjálparvörn, en hvorki
Helena né Pálína komust á blað í leik-
hlutanum og varSnæfell yfir, 41:33, að
honum loknum.
Helena of sein í gang
Það losnaði heldur betur um Helenu
í fjórða leikhlutanum og hún sá um að
hleypa smá spennu í leikinn. Hún rað-
aði niður hverjum þristinum á fætur
öðrum og Haukunum, sem höfðu verið
8-10 stigum undir allan leikinn, tókst
að minnka muninn í fjögur stig þegar
rúm mínúta var eftir. Snæfellsliðið fór
þó ekki á taugum og tókst að landa
sigri í þriðju tilraun í Firðinum í úr-
slitaeinvíginu. Fögnuðurinn var ósvik-
inn hjá leikmönnum og stuðnings-
mönnum liðsins þegar bikarinn fór á
loft.
Haiden Palmer var eins og ávallt
potturinn og pannan í leik Snæfells en
hittni hennar var þó ekkert til að
hrópa húrra fyrir. Snæfell fékk líka
gott framlag frá Gunnhildi Gunnars-
dóttur, Bryndísi Guðmundsdóttur og
Berglindi Gunnarsdóttur en sterkur
varnarleikur lagði öðru fremur grunn-
inn að sigri liðsins.
Helena Sverrisdóttir var að vanda
atkvæðamest í liði Hauka en það var
greinilega af henni dregið eftir mikið
álag og skotnýting hennar var mjög
slök. Það var ekki fyrr en í lokaleik-
hlutanum sem hún sýndi sitt rétta
andliti en það var allt of seint. Pálína
Gunnlaugsdóttir var langt frá sínu
besta, sem og María Lind Sigurðar-
dóttir, en þrátt fyrir tapið getur ungt
lið Hauka borið höfuðið hátt.
Þriðji meistaratitillinn
í röð hjá Hólmurum
Snæfell vann í þriðju tilraun á Ásvöllum og er Íslandsmeistari þriðja árið í röð
Snæfell skrefinu á undan allan leikinn Náðu að halda Helenu í skefjum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sigurstund Íslandsbikarinn á lofti og Aftureldingarkonur fagna innilega að loknum leiknum í Fagralundi í gærkvöld.
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2016
Schenker-höllin, fimmti og síðasti úr-
slitaleikur kvenna, þriðjudag 26. apríl
2016.
Gangur leiksins: 0:1, 6:8, 11:12,
15:18, 15:19, 17:22, 19:29, 21:31,
26:31, 28:33, 29:36, 33:41, 37:45,
41:49, 47:57, 55:59, 55:63 57:67,
59:67.
Haukar: Helena Sverrisdóttir 26/17
fráköst, Jóhanna Björk Sveinsdóttir
10/7 fráköst/3 varin skot, Sylvía Rún
Hálfdanardóttir 8/5 fráköst/3 varin
skot, Auður Íris Ólafsdóttir 5, Pálína
María Gunnlaugsdóttir 5/8 fráköst,
Sólrún Inga Gísladóttir 3, Dýrfinna
Arnardóttir 2.
Fráköst: 29 í vörn, 15 í sókn.
Snæfell: Haiden Denise Palmer 21/
12 fráköst, Gunnhildur Gunnarsdóttir
14/9 fráköst, Bryndís Guðmunds-
dóttir 12, Berglind Gunnarsdóttir
11/4 fráköst, Alda Leif Jónsdóttir
3/3 varin skot, María Björnsdóttir 2,
Hugrún Eva Valdimarsdóttir 2, Andr-
ea Björt Ólafsdóttir 2.
Fráköst: 23 í vörn, 11 í sókn.
Snæfell sigraði 3:2 og er Íslands-
meistari.
Haukar – Snæfell 59:67
Meiðsli semSara Björk
Gunnarsdóttir,
landsliðskona í
knattspyrnu,
varð fyrir á æf-
ingu með Rosen-
gård í vikunni
reyndust ekki
eins alvarleg og
óttast var í fyrstu. Sara staðfesti við
mbl.is í gær að hún hefði fengið
krampa í læri, en ekki hefði verið um
tognun eða rifinn vöðva að ræða.
Hún reiknar með að missa bara af
einum leik og stefnir á að spila með
liðinu í næstu viku.
Þýska meistaraliðið BayernMünchen staðfesti í gær að það
hefði áhuga á að fá miðvörðinn Mats
Hummels til liðs við sig frá Borussia
Dortmund. Hummels var hjá Bay-
ern áður en hann gekk í raðir Dort-
mund árið 2008 en náði aðeins að
spila einn leik með Bayern-liðinu.
Hummels hefur lengi verið í sigtinu
hjá Manchester United, en hann er
27 ára gamall.
Björgvin Stef-ánsson,
markakóngur 1.
deildar karla í
knattspyrnunni á
síðasta ári, er
genginn til liðs
við Valsmenn frá
Haukum. Björg-
vin er 21 árs og gerði 20 mörk í 22
leikjum Hauka í 1. deildinni í fyrra.
Hann hefur verið í U21 árs lands-
liðshópi Íslands. Haukar fengu í
staðinn framherjann Hauk Ásberg
Hilmarsson lánaðan frá Val.
Steve Kerr, þjálfari Golden StateWarriors, var í gær útnefndur
þjálfari ársins í NBA-deildinni í
körfuknattleik. Undir stjórn Kerr
hefur Golden State átt frábært tíma-
bil, en liðið vann 73 leiki í deildar-
keppninni en tapaði aðeins 9 og er
það besti árangur liðs í deildakeppn-
inni frá upphafi. Terry Stotts, þjálf-
ari Portland, varð annar í kjörinu og
í þriðja sæti hafnaði Gregg Popo-
vich, þjálfari San Antonio Spurs.
Dele Alli, semfarið hefur á
kostum með Tott-
enham Hotspur á
yfirstandandi
leiktíð, var í gær
kærður af enska
knattspyrnu-
sambandinu fyrir
ofbeldisfulla
hegðun í leik liðsins gegn WBA í
fyrrakvöld. Alli, sem var á dögunum
kjörinn besti ungi leikmaðurinn í
ensku úrvaldsdeildinni, missti stjórn
á skapi sínu og kýldi Claudio Yacob,
miðvallarleikmann WBA, í magann.
Atvikið fór framhjá Mike Jones,
dómara leiksins, en náðist hins veg-
ar á myndbandsupptöku. Líklegt
þykir að Alli verði dæmdur í þriggja
leikja bann fyrir atvikið.
Fari svo að Leicester landi enskameistaratitlinum í knattspyrnu
hefur liðið verið í 147 daga í toppsæti
ensku úrvalsdeildarinnar. Til sam-
anburðar var Chelsea í 274 daga í
toppsætinu á síðustu leiktíð þegar
liðið varð meistari en Manchester
City var aðeins 15 daga í toppsætinu
tímabilið 2013-14.
Haukur Lárusson gekk í gær íraðir 1. deildarliðs Fram frá
Fjölni og skrifaði undir tveggja ára
samning við félagið. Haukur er 29
ára gamall miðvörður sem hefur
leikið allan sinn feril með Fjölni en
hann kom aðeins við sögu í einum
leik liðsins í Pepsi-deildinni í knatt-
spyrnu á síðustu leiktíð. Árið þar á
undan lék hann 15 leiki í deildinni og
skoraði eitt mark.
Fólk sport@mbl.is