Morgunblaðið - 27.04.2016, Qupperneq 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2016
Það má segja að vorið í Hafn-
arfirðinum sé rautt á íþróttasvið-
inu, en Haukarnir eru heldur bet-
ur í eldlínunni í úrslitakeppni
karla og kvenna í handbolta og
körfubolta þessa dagana. Haukar
eru með lið í úrslitum á öllum
þessum vígstöðvum og það er
greinilega verið að vinna gott
starf á Ásvöllum.
Ég hef reyndar haldið því
fram að Hafnarfjörður sé mesti
íþróttabær landsins, en fyrir utan
góðan árangur Haukanna á hand-
boltavellinum og körfuboltavell-
inum er FH ríkjandi Íslandsmeist-
ari í Pepsi-deild karla, FH á marga
af bestu frjálsíþróttamönnum
landsins, Hafnfirðingar eiga
sundmenn í fremstu röð og svona
mætti lengi telja. Ég vil taka það
fram að ég er Hafnfirðingur og er
svokallaður Gaflari!
Peter Baumruk vinur minn
úr Haukunum hefur í nógu að
snúast þessa dagana. Hann starf-
ar sem húsvörður í
Schenker-höllinni á Ásvöllum, en
þar hefur verið og er áfram vett-
vangur hvers leiksins á fætur
öðrum í úrslitakeppnunum í
körfubolta og handbolta. Baum-
ruk og kollegar hans í Schenker-
höllinni hafa því haft nóg að gera
við það að þrífa húsið og gera
það klárt á milli leikja en þess á
milli fylgist Baumruk auðvitað
grannt með syni sínum, Adam
Hauki, stórskyttu Haukaliðsins í
handbolta.
Leicester-menn nær og fjær
verða með hugann í Manchester-
borg á sunnudaginn, en þar getur
lið þeirra fullkomnað æv-
intýralegt tímabil með því að
tryggja sér Englandsmeistara-
titilinn. Með sigri gegn 20-földum
meisturum Manchester United á
Old Trafford verður Leicester
meistari. Mikið innilega vona ég
að Leicester landi titlinum en
bara ekki á Old Trafford.
BAKVÖRÐUR
Guðmundur
Hilmarsson
gummih@mbl.is
LIÐ VIKUNNAR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Einn nýliði er í liði vikunnar hjá
Morgunblaðinu í dag, en liðið er nú
valið fjórtándu vikuna í röð úr hópi
íslenskra knattspyrnumanna í karla-
flokki, hvar sem þeir spila.
Nýliðinn er Guðmundur Þór-
arinsson, sem lét að sér kveða í
fyrsta byrjunarliðsleiknum með
norsku meisturunum Rosenborg og
skoraði í 4:0 sigri gegn Viking frá
Stavanger í Þrándheimi.
Guðmundur er á miðjunni ásamt
Gylfa Þór Sigurðssyni, sem þótti
skásti útispilari Swansea þegar liðið
steinlá 4:0 fyrir toppliði Leicester í
ensku úrvalsdeildinni.
Rosenborg á annan fulltrúa í lið-
inu, en miðvörðurinn Hólmar Örn
Eyjólfsson er í liðinu í þriðja sinn í
síðustu fjórum leikjum. Hann stóð
sig vel í tveimur sigurleikjum
Rosenborg í síðustu viku og skoraði í
sigrinum á Viking.
Ragnar Sigurðsson er miðvörður
við hlið Hólmars, en Ragnar skoraði
í bikarleik gegn Dinamo Moskva og
spilaði í 180 mínútur í tveimur leikj-
um rússneska liðsins Krasnodar.
Alfreð Finnbogason skoraði í
þriðja leik Augsburg í röð og í
fimmta sinn í sex leikjum, ásamt því
að leggja upp seinna markið í óvænt-
um 2:0 útisigri gegn Wolfsburg.
Mörk Alfreðs hafa átt drjúgan þátt í
að koma liðinu af mesta hættusvæði
deildarinnar og hann er í liði vik-
unnar í áttunda sinn á tíu vikum.
Eiður Smári Guðjohnsen þótti
besti maður vallarins þegar Molde
vann Vålerenga 4:0 í norsku úrvals-
deildinni og er í framlínunni með Al-
freð í úrvalsliðinu.
Ari Freyr Skúlason var besti mað-
ur OB, samkvæmt dönskum fjöl-
miðlum, þegar liðið mátti sætta sig
við 2:0 ósigur gegn Midtjylland í
Herning í dönsku úrvalsdeildinni.
Birkir Már Sævarsson er í hægri
bakvarðarstöðunni eftir tvo ágæta
leiki og 180 mínútur með Hammarby
í sænsku úrvalsdeildinni.
Theódór Elmar Bjarnason og Jó-
hann Berg Guðmundsson eru á
köntunum, en báðir skoruðu fyrir lið
sín. Elmar gerði dýrmætt mark þeg-
ar AGF tryggði sér rétt til að spila
til úrslita í dönsku bikarkeppninni.
Hannes Þór Halldórsson varði
mjög vel þótt honum tækist ekki að
forða Bodö/Glimt frá ósigri gegn
Strömsgodset í Noregi.
Guðmundur
í liðinu í
fyrsta skipti
Alfreð skorar enn fyrir Augsburg og
er í liðinu í áttunda skipti á tíu vikum
Lið vikunnar 19.-25. apríl (14)
Skoruð mörk1 : 0 ÚrslitSpilaðar mínútur Hve oft í liðinu2
Gylfi Þór Sigurðsson
Swansea
0:4
76
12
Ari Freyr
Skúlason
OB
90
0:2
7
Alfreð Finnbogason
Augsburg
2:0
90
8
Hólmar Örn Eyjólfsson
Rosenborg
2 : 1 4:0
90/90
3
Hannes Þór Halldórsson
Bodö/Glimt
5 3:4 0:2
90/90
Theódór Elmar
Bjarnason
AGF
2:2 1 : 2
90/82
4
Eiður Smári Guðjohnsen
Molde
4:0 0:4
75/42
4
Birkir Már
Sævarsson
Hammarby
3 : 1 1 : 1
90/90
6
Ragnar Sigurðsson
Krasnodar
1 : 3 4:0
90/90
6
Guðmundur
Þórarinsson
Rosenborg
4:0
82 Jóhann BergGuðmundsson
Charlton
1 : 3
90
8
Guðmundur
Þórarinsson
Eiður Smári
Guðjohnsen
Skallagrímur úr Borgarnesi
tryggði sér í gærkvöld sæti í úrvals-
deild karla í körfuknattleik á ný
eftir eins árs fjarveru með því að
sigra Fjölni, 91:75, í oddaleik í
Grafarvogi í kvöld.
Liðin voru búin að sigra hvort
annað á víxl en í kvöld gerðu Borg-
nesingar út um leikinn í fjórða leik-
hluta eftir hnífjafna baráttu fram
að því. Staðan var 59:58 fyrir Fjölni
þegar fjórði leikhluti hófst en þá
skoruðu Skallagrímsmenn 33 stig
gegn 16.
Kristófer Gíslason skoraði 24 stig
fyrir Skallagrím, Jean Cadet 22 og
Sigtryggur Arnar Björnsson 14 en
Collin Pryor skoraði 23 stig fyrir
Fjölnismenn, Garðar Sveinbjörns-
son 14 og Róbert Sigurðsson 13.
Skallagrímur fylgir því Þór frá
Akureyri upp í úrvalsdeildina og
liðin taka sæti Hattar og FSu.
vs@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Oddaleikur Hamid Dicko úr Skallagrími með boltann en Sigtryggur Arnar Björnsson, samherji hans, og Bergþór
Ægir Ríkharðsson úr Fjölni fylgjast með. Skallagrímur á bæði karla- og kvennalið í efstu deild næsta vetur.
Borgnesingar í úrvalsdeildina
Aganefnd HSÍ
lauk ekki í gær
afgreiðslu á
þeim fjórum er-
indum sem fyrir
nefndinni lágu í
gær eftir kapp-
leikina tvo í und-
anúrslitum Ol-
ísdeildar karla í
handknattleik
sem fram fóru í
fyrrakvöld. Fjögur rauð spjöld
voru sýnd í leikjunum, þar af þrjú í
viðureign Aftureldingar og Vals.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins verða engin eftirmál að
spjöldunum þremur í Mosfellsbæ.
Leikmennirnir Jóhann Gunnar
Einasson og Jóhann Jóhannsson,
Aftureldingu, og Valsmaðurinn
Sveinn Aron Sveinsson verða ekki
úrskurðir í leikbann. Ástæðan mun
vera sú að skýrsla var send til aga-
nefndar vegna leikbrotanna
þriggja.
Hvað skal gera við Kára?
Meiri vangaveltur eru innan
aganefndar vegna rauða spjaldsins
sem Kári Kristján Kristjánsson,
leikmaður ÍBV, fékk í fyrri hálfleik
viðureignar ÍBV og Hauka í Vest-
mannaeyjum. Hann sýndi Hákoni
Daða Styrmissyni að margra mati
óviðeigandi eða ógnandi framkomu
þegar þeir gengu af leikvelli eftir
að þeir fengu tveggja mínútna
refsingu hjá dómurunum Antoni
Gylfa Pálssyni og Jónasi Elíassyni.
Glöggir menn sem Morgunblaðið
talaði við í gær, og þekkja regl-
urnar til hlítar, telja ekki útilokað
að Kári sleppi með skrekkinn eða
fái eins leiks bann. Niðurstaða
liggur fyrir í dag. Fyrir leikinn í
fyrrakvöld hafði Kári fengið tvö
rauð spjöld á leiktíðinni en hvorugt
þeirra kostaði hann leikbann.
Næsti leikur ÍBV og Hauka verður
á föstudag en Valur og Afturelding
leiða saman hesta sína annað
kvöld. iben@mbl.is
Kári Kristján
Kristjánsson
Vangaveltur
vegna rauðu
spjaldanna
Karlalið Fjölnis
steig stórt skref í
átt að sæti í Olís-
deild karla í
handknattleik á
næstu leiktíð
þegar liðið vann
Selfoss, 23:20, á
Selfossi í gær-
kvöldi. Þar með
hefur Fjölnir tvo
vinninga gegn
engum Selfossliðsins í keppninni um
sæti í efstu deild. Næsti leikur verð-
ur á heimavelli Fjölnis í Dalhúsum á
föstudagskvöldið og vinni heima-
menn þann leik hafa þeir tryggt sér
sæti í deild þeirra bestu í fyrsta
sinn.
Selfossliðið var sterkara í fyrri
hálfleik í viðureigninni í gær.
Fjölnismönnum gekk illa að skora.
Markstangir Selfossmarksins
þvældust fyrir skotunum. Aðeins
einu sinni í fyrri hálfleik var Fjöln-
isliðið yfir, það var í stöðunni 6:5,
rétt eftir að leiktíminn var hálfn-
aður. Selfoss skoraði tvö síðustu
mörk fyrri hálfleiks og hafði þriggja
marka forskot þegar gengið var til
búningsherbergja, 11:8.
Leikmenn Fjölnis jöfnuðu metin
fljótlega í síðari hálfleik, 11:11, og
náðu forystu í leiknum eftir það.
Þeirri forystu héldu þeir til leiksloka
og fögnuðu sætum sigri undir stjórn
Arnars Gunnarssonar. iben@mbl.is
Stórt skref
stigið hjá
Fjölni
Arnar
Gunnarsson