Víkurfréttir - 07.01.1999, Qupperneq 14
M I N N I N G
Jón Norðdal Arinbjömsson
Þann 27. desember s.l. lést
Jón Norðdal Arinbjömsson,
Nonni Arin, eins og hann var
kallaður meðal vina. Jón
fæddist í Keflavík 7. jan
1921. Utför hans var gerð frá
Keflavíkurkirkju 5. janúar.
Fyrir nokkrum árum fékk
Jón kransæðastíflu og var
heilsuveill upp frá því og lést
svo mjög skyndilega. Að
leiðarlokum langar okkur að
minnast vinar okkar með
nokkrum línum.
Foreldrar Nonna voru hjónin
Ingibjörg Pálsdóttir hús-
móðir og Arinbjörn
Þorvarðarson, best þekktur
sem sundkennari bæði voru
þau stórglæsileg. Þau bjuggu
í Keflavík allan sinn búskap
og eignuðust þrjú börn.
Margrét elst þá Jón og
Þorvarð, Jón lifði systkini
sín.
Eins og aðrir unglingar á
þeim tíma byrjaði Nonni
ungur að vera við báta á
vertíðum og vinna á sumrin
það sem til féll. Hann varð
strax vinsæll af vin-
nufélögum sökum dugnaðar
og ljúfmennsku.
Þegar „Nýsköpunartogarinn”
Keflvíkingur kom til
landsins veturinn 1948
komust færri á togarann en
vildu. Skipstjórinn var reyn-
dur togarakall og hafði tak-
ntarkaða trú á þessum
„bátamönnum”. Hér var fátt
um vana togaramenn.
Togarinn átti að skapa vinnu
hér svo áhersla var lögð á að
ráða sem flesta heimamenn,
en vissast þótti að vanda
valið. Sjálfgefið var að
Nonni veldist í skipshöfnina.
A bv. Keflvfking vorum við
fyrst með honum. Svo fór að
strax í fyrsta túr hafði skip-
stjórinn orð á að vart hafi
hann verið með snarpari
mönnum í aðgerð og þar fór
Nonni fremstur, fyrstur til
verka, handlaginn og snög-
gur. Hann vann sér strax
hylli allra, jafnt yfirmanna
sem undirmanna. A ýmsu
gat gengið og túrar orðið lan-
gir, slíkt fór mis vel í menn.
Aldrei stóð Nonni í þrætum
og ekki skipti hann skapi á
hverju sem gekk. Flestir
reyktu, yfirleitt tók hver úr
sínum pakka og stakk
honum svo í vasann, tóbak-
sleysi vildu menn forðast í
lengstu lög. Nonni kunni
ekki við slíkt, þegar hann
fékk sér rettu bauð hann
öllum viðstöddum þótt hann
væri koinn á síðasta pakka.
Hann varð þvf gjarnan
tóbakslaus fyrstur manna
þótt vel nestaður væri í byr-
jun túrs. Hann gerði sér
aldrei rellu út af morgun-
deginum.
Þetta litla dæmi lýsir Nonna
betur en langt mál. Útgerð
togarans stóð aðeins í fá ár,
eftir að hann var seldur snéri
Nonni sér að bátunum á ný
og var lengi með Óskari
Ingiberssyni. Allsxstaðar fór
sama orð af honum. Þegar
Nonni fór í land réðist hann í
málningarvinnu uppi á
Keflavíkurflugvelli og vann
við það þar til hann hætti að
vinna fyrir nokkmm ámm.
Síðustu ár var púttið hans
helsta afþreying. I
Púttklúbbnum hitti liann,
m.a. gamla félaga og var vin-
sæll af öllum sent fyrr. I
haust byrjuðum við að koma
í Púttklúbbinn. Þar tók
Nonni okkur opnum örmum
og lagði sig fram um að
kenna okkur „listina” með
sinni göntlu góðu ljúf-
mennsku. Hans leiðsagnar
fáum við því miður ekki að
njóta meir, nema í min-
ningunni.
Nonni giftist eftirlifandi
eiginkonu sinni Oddnýju
Valdimarsdóttur, Stellu árið
1952. Hún bjó þeim fallegt
og þægilegt heimili, sem
hann kunni vel að meta og
njóta. Þau eignuðust tvær
dætur, Aldísi og Ingibjörgju.
Einn son, Hafstein átti Nonni
áður en þau giftust.
Við vottum Stellu og öllum
ástvinum Jóns samúð okkar
og biðjum Guð að blessa
góðan dreng.
Hermann Helgason
og Olafur Björnsson
Hestun
fældist í
skrúðgöngu
Hestúr fældist og féll við
með þeim afleiðingum að
knapi varð undir hestinum í
þrettándaskrúðgöngu í
Keflavík í gærkvöldi.
Knapinn var fluttur á
sjúkralnisið í Keflavík en
fékk að fara heim að lokinni
skoðun. Að sögn lögreglu
hlaut maðurinn mar á baki,
en slasaðist ekki alvarlega.
Sjúkrabifreið sem sótti hinn
slasaða átti erfitt með að
komast til og frá slysstað
vegna mannfjölda. Engin
önnur óhöpp urðu í
tengslum við þrettánda-
gleðina svo vitað sé og fór
hún vel fram að sögn
lögreglu.
Áætlað er að hátt í 3000
manns hafi tekið þátt í
hátíðarhöldunum sem fram
fóru við Iðavelli í Keflavík í
gærkvöldi. Dagskráin var
með ágætuni, söngur,
hl jóðfæraspil, brenna,
púkar og síðan glæsileg
flugeldasýning í boði
Revkjanesbæjar þar sem
trompið var 16” tívolí-
bomba sem var sprengd í
lok sýningarinnar.
UMBOÐSAÐILAR OKKAR A SUDURNESJUM ERU:
Reykjanesbær:
Umboósskrifstofan
Hafnarqötu 36
Keflavík
Sími 421 5660
, Crindavík:
Asa Einarsdóttir
Borqarhrauni 7
Sími 426 8080
Vogar:
Islandspóstur hf
Tjarnargötu 26
Simi 424 6200 r Sandgerði:
Islandspóstur hf
Suðurgötu 2-4
Sími 423 7500
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vœnlegast til vinnings
FRETTAVAKT
2222
ERT ÞU VITNIAF FRETTNÆMUM ATBURÐI? - HRINGDU STRAX!
14
Víkurfréttir