Víkurfréttir - 07.01.1999, Page 22
Bi Getraunaspekingar í hópleik:
JLögregían i Keflavih
telur ád allt ad ^&vÓ
maríns hafi verid á
þremandagledi vid Ida
vepi i Keflavik i gær-
kvöldi. Haijó'arholdfMpt y
vel fram^g skiiniilmjning
var tirfyrirmyiídar. ^
Nýr hópleikur að
hefjast hjá Keflavík
Þorrinn sigraði í fyrsta hópleik
Keflvíkinga í getraunum.
Þorraspekingar eru engir aðrir
en þjálfarar Keflvíkinga, þeir
Gunnar Oddsson og Sigurður
Björgvinsson ásamt Birni
Bergssyni. Þeir fengu 40 þús.
kr. að launum fyrir fyrsta
sætið.
I 2. sæti varð REX en á bak
við hann er Siguður Helgi
Jónsson og hlaut hann 20 þús.
kr. peningaverðlaun. Þriðji
varð gamalreyndur tippari,
Haraldur Ólafsson en hann
tippar undir nafninu 13-13.
Hann hlaut 10 þús. kr. að
launum.
Næsti hópleikur er að hefjast
og verða spilaðar 10 leikvikur
en átta bestu telja. Að sögn
Elíasar Kristjánssonar, tipp-
stjóra Keflvíkinga er alltaf
opið í K-húsinu við Hring_
braut á föstudags- og laugar-
dagskvöldum fyrir tippara. A
staðnum eru tippáhugamenn
sem eru tilbúnir að leiðbeina
þeim sem vilja reyna með sér.
Elías vildi vekja athygli á því
að ekki kostar mikið að vera
með hóp, það þarf í það
minnsta aðeins einn í hópinn
og ódýrasta kerfíð er auðvitað
ein röð, 10 kr. Algeng kerfi
eru síðan frá 500- 1000 kr. í
næsta hópleik verða peninga-
verðlaun fyrir þrjú fyrstu
sætin eins og í þessum sem
var að ljúka..
Tipparar nota tölvuna og
internetið mikið og þvf geta
margir verið við þessa iðju
heima. En getraunaáhuga-
menn vilja hvetja menn til að
líta við í K-húsinu (K-video)
en þar horfa menn gjaman á
útsendingar frá enska bolt-
anum.
Tipparar sein styðja Kefla-
vík merkja við 230 á sínum
getraunaseðlum.
0 - t 1 \ J ' nBTw v
W[%\ \ 11
/ y 11
Anna María er ofarlega á öllum svidum í kvennakörfunni.
Fastar í þriðja sæti
Keflavíkurstúlkum tókst ekki
að komast upp að hlið Stúdína
í öðru sæti deildarinnar er
liðin mættust í þessum fyrsta
kappleik 1999.
Lítið var skorað enda
varnarleikur beggja liða
sterkur en Stúdínur höfðu
sigur 44-41 eftir að staðan í
hálfleik hafði verið 25-20.
Anna María Sveinsdóttir
sterk á svellinu
Skv. upplýsingum úr gagna-
grunni KKÍ er Anna María
Sveinsdóttir ein af þremur
bestu leikmönnum VlS-deild-
arinnar.
Hún er ofarlega á öllum
sviðum, stigaskori ( 5),
fráköstum (2), stoðsend-
ingum (2), stolnum boltum (2)
og vítanýtingu (I). Þær
stúlkur sem veita henni ein-
hverja keppni eru báðar frá ÍS,
Alda Leif Jónsdóttir og Signý
Hermannsdóttir.
Kerri Chatten mætt
Njarðvíkurstúlkur hafa nælt
sér f annan erlendan leikmann
í stað þeirrar sem strauk af
landi brott í desember. Sú
nýja er yngri, stærri og að
ljúka fjögurra ára ferli hjá
Providence háskólanum
vestra sem er hátt skrifaður í
kvennaboltanum.
14
Víkuifréttir